Fálkinn


Fálkinn - 15.05.1937, Side 8

Fálkinn - 15.05.1937, Side 8
8 F Á L K I N N F Á L K I N N 9 Svo segja l'róðir menn, að tekjur Englands og þá einkum Lundúnaborgar, af krýningunni, sem fram fór núna í vikunni, muni verða engu minni en tekj- ur Frakklands af heimssýning- unni, sem nú er að hefjast í París. Svo mikill fjöldi aðkomu manna streymir til London í til- efni af krýningunni. Og þó voru það ekki nema fáeinir útvaldir sem feiigu að vera viðstaddir sjálfa krýninguna. Westminster kirkjan, sem krýningin fór fram í, er tiltölulega lítil kirkja, og þó að rýmt liafi verið þaðan hinum mörgu listaverkum, sem þar eru að jafnaði og settir upp bráðabirgðapallar til að sitja á, kvað það hafa verið hið mesta vandaverk, að útvega þar rúm þeim, sem þóttu sjálfsagðir til ])ess að fá inngöngu. En fólk ferðaðist langar leiðir lil London, til þess að fá að sjá krýningarskrúðgönguna rjett i svip. Það er löng leið, sem skrúðgangan fór, frá Bucking- ham Palace, um The Mall á Trafalgar Square, um Pall Mall og Piccadilly og'á Oxford Street og eftir því að Marble Arch. Síðan niður með Hyde Park að Hyde Park Corner og þaðan að Buckingham Palace. En þrátt fyrir þessa löngu leið er svo mikil eftirsókn eftir plássum meðfram henni, að þau hafa komist i geypiverð, bæði glugga- pláss og á pöllum þeim, sem reistir hafa verið meðfram göt- unum. Einstakir menn kaupa leyfi til að reisa þessa palla og selja svo pláss á þeim, með gíf- urlegum ágóða. Frá því á nýári hefir verið starfað að undirbúningi krýn- ingarinnar. Dagurinn var ákveð- inn í haust, áður en það kom lil orða, að Edward VIII. færi frá völdum, enda yeitti ekki af tímanum. Viðgerð á Westmin- ster Abbey stóð í fjóra mánuði og að kalla hvert einasta hús meðfram götum sem skrúðgang- an fer um, hefir verið fágað og prýtt. Þeir sem komið liafa til London nýlega hafa varla trúað sinum eigin augum, svo hrein og falleg eru húsin orðin. Þegar Victoria drottning var krýnd kostaði undirbúningur- inn ekki nema 70.000 pund af hálfu hins opinbera. Þegar Georg V. var krýndur kostaði hann 185.000 pund, en í þetta sinn er hann áællaður 090.000 pund. Bæjarfjelögin 28, sem London skiftisl í, vörðu um 150.000 pundum. En ótalið er það sem einstakir menn hafa varið i undirbúninginn, ýmist í aug- lýsingaskyni eða framlög til ýmsra fyrirtækja, er eiga að gefa arð. Krýningin er eigi að- eins merkileg athöfn hjá þjóð- inni, lieldur er hún jafnframt kaupsýslufyrirtæki. Það eru miljónir sterlingspunda, sem skifta um eigendur í sambandi við krýninguna. Hundruð þús- unda af útlendingum dvelja i London krýningardagana og búa ýmist á gistihúsum eða i skip- um um borð á Thames. Þús- undir manna höfðu atvinnu af að búa til ýmiskonar minja- gripi um krýninguna, þar á meðal gipsmyndir af konungs- hjónunum, sem sjást hjer á einni myndinni. Sömu verk- smiðjurnar höfðu steypt kynst- ur af myndum af hertoganum af Windsor, meðan það stóð til að hann yrði krýndur, og þegar það fór út um þúfur bjuggusl þeir við að verða fyrir stór- tapi. En fólkið vildi eiga gips- myndir af „Prince Charming“ þó að svona færi, og‘ þær seldust allar. Það er einkum herliðið, er aðstoðar við sýningarnar, sem hefir átt ónæðisama daga upp á síðkastið. Allskonar æfingar hafa farið fram, þar á meðal full- komin „generalpröve“ á skrúð- göngunni miklu, og sjest hún hjer á myndinni. Þá þurfti einn- ig sjerstaklega að æfa hestana, sem ganga fyrir gullna vagnin- um, er konungshjónin óku i þegar skrúðgangan fór fram. Þessar æfingar á hestunum fóru einkum fram þegar umferðin var minst á götunum, og var hvítur dúkur breiddur yfir vagn inn. Ein myndin sýjiir, þegar valdataka Georgs var tilkynt frá St. James-höll. Þá hefir hirðgullsmiðurinn, Garrard haft nóg að gera undir krýninguna. Ný kóróna var gerð handa drotningunni og framan á henni er hinn frægi Koh-inoor demantur. Kóróna hafði verið smíðuð handa Edward VIII. en henni var breytt, svo að Geo>-g VI. gæti notað hana. Annai's eru þær þrjár kórónur konungs, sem notaðar eru við krýninguna. Þá þurfti og að gera kórónur handa prinsessunum Elisabeth ogMarg- aret Rose, dætrum konungs og ennfremur handa „Princess Royal“, systur konungs GEORG BRETAKONUNGUR, er fæddur i Sandringham í'i de.i. 1895 og heitir fiillu nafni Alhert Frederick Arthur George, tók þátt i orustunni viö Jótlands- síðu i maí 1916, á herskipinu Col lingwood, gekk i flugherinn i febrúar 1918, giftist laföi Elisabeth Bowes-Lyon, 26. april 1923, eignaöist dóttur, Elisabeth Ale.r- andra Marg, núverandi ríkiserfingja fíretlands, 21. april 1926, fór i opinbera lieimsókn til Ástr- alíu 1927 og vígöi þá hið ngja þing- hús Ástraliubúa, i Canberra, eignaðist dóttur, Margaret Rose prinsessu, 21. ágúst 1930, varð ríkiserfingi Breta 20. jan. 1936, við dauða fööur sins, er Ed- ward VIII. var tekinn til konungs. MYNDIRNAR: Aö neðan t. v. Georg VI. á hersýningu. Aö ofan frá vinstri: Gipsmgndit af konungshjónunum. — Þrjár konungskórónur. Stúlka er aö fella gim- °tein inn i „The lmperial State Crown“ en t. v. er keisarakrónan. — Ríkistöku George VI. lýst gfir á svölum St. Jameshallarinnar. Aö neðan „æfing“ á krýningarskrúðgöngunni og gullvagninn yfirtjaldaður. KJRYNINGIN I LONDON.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.