Fálkinn


Fálkinn - 15.05.1937, Side 15

Fálkinn - 15.05.1937, Side 15
FÁLKI-NN 15 Bvað skeður árið 1937. StórblöSin úti í heimi birta ávalt um nýársleytið spádóma fyrir árið sem er að byrja. Það eru einkum spákonur sem hafa það lilutverk að segja heiminum fyrir um alt sem gerist milli himins og jarðar og spá styrjöldum, drepsóttuin og allskon- ar ógæfu. Flestar þeirra hafa þó vaðið fyrir neðan sig og tala svo ó- ijóst að það er ekki gott að átta sig á spádómunum yfirleitt — það lærðu þær af vjefrjettinni í Delphi. Spákonurnar sem nefndar eru hjer á eftir eru allar víðkunnar og fjöldi fólks trúir þeim eins og nýju neti. Því miður er ísland svo lítið, að þær þekkja það ekki og geta þvi ekki spáð fyrir því — en hvað gerir það: við höfum Jón Árnasonl Frú Lodia segir svo: þrátt fyrir miklar óeirðir og liættulegt ástaud verður ekkert nýtt strið árið 1937. Hinsvegar mun rísa ný friðarhreyfing seni mun verða vel ágengt í því, að sætta þjóðirnar. Stórkostleg uppgötv- un verður gerð í fluglistinni. Hún mun gjörbreyta undirstöðu alls flugs þvi að mótorar verða ójiarfir i flug- vjelunum! Stjórn Blums fellur i Frakkaudi og Daladier mun verða eftirmaður hans. Stjörnuspákonan frú Christini Nora liefir birt svolátandi spá: Öfga fiokkarnir í Frakklandi munu tvístr- ast og hverfa, að undangengnum hörð um bardaga á götum úti. Frakkar lenda í miklum fjárhagsörðugleikum, sem hafa í för með sjer fall stjórn- arinnar. Tvisvar sinnum á ariuu verða stjórnarskifti. Madama Pierre hefir spáð eftirfar- andi i kristalkúlu: Flugmál Frakka eru í stórkostlegri hættu, á árinu verður konungur krýndur á Spáni. Madame Glaude, sem spáir i blóm, segir: Ástandið í Frakklaiidi batnar ekki fyr en árið 1942 eða 1944. En stjórn Leons Blum fellur á árinu, án þess að til borgarstyrjaldar komi. Madama Florida spáir i bráðið blý, hún liefir sjeð það fyrir, að Kínverjar muni sigrast á Japönum og að Hitler komist að samningum við stórveldin um að Þjóðverjar fái nýlendur aftur. Loks má geta um eina spá, sem ýmsir taka meira mark á en spáin kerlinganna, vegna jiess, að maður- inn sem stendur lienni að baki er mjög frægur veðurspámaður. Það er Ga- bríel ábóti. Samkvæmt „Daily Tele- grapli“ hefir hann spáð því, að vet- urinn í vetur verði sá liarðasti sem komið hafi síðan 1564—65. Þann vetur voru feikna frosthörkur um álla Vestur-Evrópu og England frá 20. desember til 4. mars. Ábótinn byggir spá sína á sjerstakri afstöðu sólarinnar til tunglsins, sem kemur ávalt fram með 372 ára millibili og fylgir henni ávalt mikill kuldi. Ilann er ekki viss uin livenær kuldarnir byrji eða hve kalt verði, en liann er viss um, að veturinn verði kaldur, og segir að þá megi hundur heita i höfuðið á sjer ef spáin rætist ekki STRÍÐSYFIRLÝSINGU ÞJÓÐVERJA STOLIÐ. Nýlega var áramótahreinsun í ut- íinrikisráðuneytinu í París. Þar var verið að raða ýmsum gömlum plögg um og athuga lielstu merkisskjöl og dusta af þeim rykið. Kom þá á dag- inn að þarna var horfið merkilegt plagg, nefnilega slríðsyfirlýsing þýsku stjórnarinnar á hendur Frökk- um, dagsett 2. ágúst 1914. Líklegast þykir, að þessu merkisskjaii hafi ver- ið stolið og muni þjófurinn ætla sjer að selja jiað fyrir ærið fje. Amerikumenn og enda fleiri mundii víst fúsir til að kaupa það. — Það getur fleira týnst en vasabækur! ÞEKKIRÐU LANDIÐ. 7. HVAÐA STAÐUR ER ÞETTA? Þarna var viti. Staður nr. 7. Nafn: Heimili: Póststöð: FATAEFNI nýkomin. Til sýnis í búðarglugga Brauns- uErslunar, Rusturstræti 10. Vigfús Guðbrandsson & Co. Verslunin BRYNJA Laugaveg 29. Sími 4160 og 4128. SELJUM TIL HÚSGAGNASMÍÐA: SKRÁR LAMIR SKRtFUR TIPPI SPÓN GABÓN o. fl. SELJUM TIL HÚSA: SAUM SKRÁR LAMIR SKOTHURÐAJÁRN GLER KÍTTI MÁLNINGAVÖRUR VEGGFÓÐUR o. fl. EINNIG ALLSKONAR VERKFÆRI. VANAÐAR VÖRUR. VÆGT VERÐ. Sendum gegn póstkröfu um land alt. Vinnufatnaður og ferðafatnaðnr. Nankinsföt, Khakiföt, Samfestingar, Khakisloppar, Málaraföt, Vinnuskyrtur, Peysur, allskonar, Sokkar, allskonar, Axlabönd, Vinnuvetlingar, allskonar, Sjóvetlingar, Madressur, Ullarteppi, Vattteppi, Enskar húfur, Nærföt, margar teg. Gúmmíkápur, Olíufatnaður alskonar, Olíukápur, síðar, Gúmmístígvjel, alskonar, Trjeskóstígvjel, Klossar, Gúmmískór, Rykfrakkar, Sportsokkar, Oxfordbuxur, Manchettskyrtur, Sportskyrtur, Hálsbindi, Flibbar, Gúmmíjakkar, stuttir, Reiðbuxur. Stærst og f jölbreyttast úrval. GEYSIR FATA D EIL DIN Austurríska tónskáldið Oscar Strauss, sem hingað til hvorki hefir viljað heyra kvikmyndir nje sja, liefir nú sjeð sig um hönd og gert samning við kvikmyndafjelag í Hol- lywood, uin að semja hljómleika fyrir kvikmynd, sem á að heita „Blái drengurinn". MAÐUIt ÚR KONU — KONA ÚR MANNNI. Núna um áramótin var einkenni- legt mál fyrir dómstólunum í Sofia. Stefnandinn var 22 ára og heitir Bosiliko Stojanov en stefndi er einn al fræguslu skurðlæknum Búlgariu. Árið 1928 hjet Bosiliko Bosilika og var fallegasta stelpa og stundaði nám í verslnnarskólanum i Sofia. En liúslæknir fjölskyldunnar hafði orðið þess var, að kynferði stúlk- unnar var að breytast. Ilún var að verða að karlmanni. Iiann rjeð for- eldrunum til að láta sjerfræðing athuga stúlkuna. Það var gert og sjerfræðingurinn framkvæmdi lækn- isaðgerð. Eftir fyrsta uppskurðinn kom það á daginn, að óhjákvæmilegt yrði að gera nýjan nppskurð. Það var gerl og alt fór eins og læknirinn hafði ætlast til og Bosiiliko varð hinn karlmannlegasti. Það kom meira að segja skegghýungur á hökuna á hou- um. En í fyrra kom nokkuð óvænt á daginn. Ýms einkenni fóru að koma í ljós, sem bentu á það, að Bosiliko væri að breytast í kvenmann á ný. Skeggið hvarf. Bosiliko varð móður- sjúlcur og fann að hann var að verða að kvennmanni i annað sinn. Og læknirinn sá, að það var ólijákvæmi legt að gera uppskurð i þriðja sinn — og gerði það. En nú heimtaði sjúklingurinn, að þessi þriðji upp- skurður yrði ókeypis og hjelt því fram, að læknirinn hefði ekki farið rjett að í fyrri skiftin. — Læknirinn vildi ekki viðurkenna þetta og nú eiga dómstólarnir að skera úr.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.