Fálkinn


Fálkinn - 31.12.1937, Page 3

Fálkinn - 31.12.1937, Page 3
F Á L Iv I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórav: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bnnkastræli 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virlca daga ki. 10—12 og 1—(i. Skrifstofa í Oslo: Antoii Schjöthsgad e 1 4. Blaðið kemur út hvern laugardag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á inánuði: kr. 4.50 á ársfjórðungi .og 18 kr. órg. Iirlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist . fyrirfram. Aúglýsingaverð: 20 'aura millimeter Herbertsprent. Skraddaratiankar. „Og aldrei |)aö kemur til baka“, stendur í áramótasálminum uni ár- ið, sem er iiðið í aldanna skaut. Við áramótin er hugurinn að jafn- aði bundnari við það liðna en það ókonina. Að baki liggja orðnir hlut- ir, staðreyndirnar, góðar eða vond-^ ar, en fram undan hið óorðna, sem enginn veit hvað er. Og það er ekki nema eðlilegt, að staðreyndirnr.r sjeu tamara íhugunarefni en það ósjeða. Að baki er yfirlit en framundan áform. Hvorugt þessa getur án hins verið. Maðurinn sem eingöngu horfir tilbaka og hugleiðir það sem liðið er, en gleymir áætlunum fyrir komandi tíð, getur ekki búist við góðu komandi ári fyrir sjálfan sig, þvi að sá sem eingöngu lífir í for- tíðinni á enga framtíð. En þeim maniii er líka illa farið, sem er ekkert annað en áform og gleymir fortíðinni. Ilann er rótlaus og átta- viltur, því að ál'orm hljóta ávail að byggjast á þeirri undirstöðu. scm fortiðin hlóð mann l'ram af manni og öld eftir öld. Árið er liðið og það kemur aldrei lil baka. Ártalið 1937 kemur aldrei til baka, en það sem gerðist á árinu 1937 og öllum liðnum árum, er ekki liðíð, hvorki ilt nje gott. Vel unnið starf verður ekki að reyk og ösku' um áramótin nje heldur afleiðing þess, sem illa var gert. Það fylgir kynslóðinni þó ártalið breytist, og heldur áfram að vera til. Menn geta gert upp reikninga sina við kaup- manninn um áramótin, en þeir geta elcki gerl upp reikninginn við sín eigin verk. Þau reikningsskil ljúkast aldrei, ekki einu sinni á grafar- barminum. En það er gott tilefni, að nota áramótin til þéss að gera áætlanir og áforma. Yið þau áform er eitt nauðsynlegt: íhugun þess sem liðið er. Hvað gafst. vel af þvi, sem þú eða aðrlr gerðu á liðnu ári? Og hvcrnig fórstu að því. Hvað gafsl illa? Hvernig á að sneiða hjá því. Skilyrði þess, að áformin sjeu bygð á viti, eru fyrst og fremst þau, að maðurinn sje ekki óvitrari en brenda barnið, sem forðast eldinn. en það eitt cr ekki nóg, því að það cr ekki jákvætt. Af heilbrigðum og fullvita tnanni er nteira krafist, því að sá sem ekki gerir neitt annað en að forðast bætir engu við sig og má þalcka fyrir, el' hann stendur í stað. Það er að vaxa, sem lilýtur að vera áform hvers sem vill njóta gleðilegs nýárs á grundvelli þeirrar reynslu, sem liðna árið gaf honum. LEIKFJELAG REYKJAVÍKUR: LILJUR VALLARINS Kitly og Bryan Ropes (Alda Möller og Kristján Kristjánsson). A annan dag jóla liafði Leik- fjelag Revkjavíkur frnmsýn- ingu á ieikriti því, er nefnist „Liljur vallarins“, eftir J. Hast- ings Turner, nafnkunnugan, enskan leikritaliöfund. Þetta er söngleikur i þremur þáttuin, og eru sum lögin prýðisfalleg. Efni leiksins er ofið bæði úr gamni og alvöru, en er annars hvorki stórfenglegt né merki- legt, og hvggingn leiksins er að ýmsn leyti ábótavant, þótl hér verði ekki farið frekara út í það mál, nje lieldur efni leiksins rakið, svo að væntanlegir á- horfendur sé ekki sviptir eftir- væntingunn i fyrirfram. Leiksijórnina hefir Indriði Waage liafl á liendi, en annars eru ieikendur þessir: Indriði Waage leikur Berry garðyrkju- mann, smáhlutverk, Brvnjólfur Jóhannesson leikur síra Jolm ITead, einkennilegan prest, en konu hans, Önnu, leikur Emilía Borg. Arndís Björnsdóttir Ijek (í forföllum Mörthu Indriða- dóttur) tengdamóður prestsins, frú Rooke-Walter. Dætur prestshjónanna Betty og Kittv, tvítugar blómarósir, leika Þóra Borg og Alda Möller Barnaby Haddon fornfræð- ing og Brvan Ropes vin hans, er gerast elskhugar prests- dætranna leika þeir Ragnar Kvaran og Kristján Kristjáns- son. Valur Gislason leikur Withers þjón tengdamömmunn- ar, en þær Helga og Hildur K.ahnan leika tvær liefðardöm- ur í samkvæmislifi Lundúna borgar. Um meðferð léikandanna á hlutverkum sínum verður ekki annað sagt en að hún var yfir- ieitt góð, hvað sjálfan leikinn snerti, en söngnum var allmjög áfátt, og virðist svo, sem þess hafi eigi verið gætt sem skyldi Bettg (Þóra Rorg). að miða hlutverkaskipun við sönggetu leikanda, þar sem mn söngleik var að ræða eins og liér. Líklegt er þó, að leikur þessi geti náð talsverðum vinsældum leikhúsgesta, þvi að yfir lionum hvílir ljettur blær, og ailur ytri umbúnaður leiksins er i besta lagi innan þeirra takmarka, sem liúsrúmið í Iðnó leyfir. Sira John Head (Brynjólfur Jóhannssoh) og dsel- Séra Head og Anna kona lians (Brgnjótfnr Jó- 'ir hans Bettg og Kitty (Þóra Borg og Alda Möller) hannesson og Emilia Borg). Gunnl. Tr. Jónsson fyrverandi ritstjóri á Akureyri, nú bóksali /tar. varð 50 ára 1H. j>. m. Steingrímur Jónsson fyrv. sýslu maður og bæjarfógeti á Akur- eyri varð 70 ára 27. /;. m. Sjötíu og fimm ára er í dag ekkjan Guðrún Pádsdóttir að Hólmi i Landbroti, V.-Skaptaf.s.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.