Fálkinn - 05.02.1938, Síða 2
2
F Á L K 1 N N
----- GAMLA BlÓ ----------
Hann rændi brúðinni.
Al'ar skemlileg gamanmynd, tek-
in af Metro Gokhvyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
JOAN GHAWFORD,
CLARK GABLE.
Gamla Bió sýnir fjöruga og viÖ-
burðaríka gamanmynd, „Hann rændi
brúðinni“. í aðalhlutverkunum eru
hinir vinsælu leikarar, Joan Craw-
ford og Clark Gable, sem allir Bíó-
gestir þekkja. Joan Crawford leikur
ameríska dollaraprinsessu, Sally
Parker, sem á að fara að giftast Igor
prins af Taliuska. Eru þau bæði í
London, þar sem brúðkaupið á að
fara fram. En þegar hún kemst að
því, að prinsinn gerir sjer von um
hvorki meira nje ininna en þrjár
milljónir dollara i heimanfylgju með
brúðinni, lætur hún sjer fátt um
finnast og laumast burt úr kirkjunni.
— Nú vill svo til, að amerískur
blaðamaður, frjettaritari „New York
Chronicle", rekst á Sally í hóteli
liennar, þar sem hún er í öllu brúð-
arskartinu, nýkomin frá kirkjunni.
Hann heitir Michael Anthony og er
Jeikinn af Clark Gable. Hún trúir
honum nú fyrir atburðum þeim, er
gerst liöfðu í sambandi við hið til-
ætlaða brúðkaup hennar, án þess að
hún viti að liann er blaðamaður.
Forðast hann einnig að láta liana
vita það, þar sem hún dregur enga
dul á, að hún hefir rótgróna fyrir-
litningu fyrir blaðamönnum yfirleitt.
Hann iofar að hjálpa lienni burt af
hótelinu, án þess að eftir verði tekið.
Burtför þeirra verður með allsögu-
legum liætti. Sanderman barón og
frú hans ætla að takast á hendur
flug upp i háloftin, sem vekur mikla
eftirtekt. Þau búa á sama hóteli og
Sally. Verður það nú fangaráð Micha-
els, að hann stelur flugfötum baróns-
hjónanna og súrefnishjáhnum þeirra,
og þau Sally fara svo af hótelinu
dulbúin sem barónshjónin. Þegar út
á flugvöllinn kemur er þeim tekið
með mestu fagnaðarlátum, því að
allir halda að þau .sjeu hinir frægu
háloftsflugmenn. Rjett um það bil
sem þau eru að búast til flugs, kem-
ur maður nokkur og gefur Sally
blómvönd — auðvitað í þeirri trú,
að liún sje barónessan. Eftir nokkra
hríð tekst þeim að fá flugvjelina til
að hefja sig flugs, og litlu síðar finn-
ur Sally kort yfir strandvarnir Breta
falið í blómvendinum. Michael verð-
ur þegar Ijóst, að barónshjónin sjeu
njósnarar, og nú ríður á að nota
þetta efni vel. En lengra skal ekki
efni myndarinnar rakið. Það er mjög
spennandi og hver viðburðurinn rek-
ur annan, en bestur er þó endirinn
sjálfur.
Páll Jónsson, verslunarm., frá
Hjarðarholti í Dölum, varð 65
ára 2. þ. m.
Sigurður Jónsson frái Bygðar-
e.nda, nú til heimilis á Lauga-
veg ÍV7, varð 90 ára 28. f. m.
Sonja Henie, skantakonan
norska, er komin í mjög mikið
uppáliald hjá almenningi í
Bandaríkjunum, eftir að hún er
farin að leika í kvikmyndum.
Nú hefir risið upp einkennileg
deila milli tveggja af Banda-
ríkjunum, útaf Sonju, þ. e. milli
Californíu og Flórida. Milli
þessara tveggja ríkja er sifeld
samkepni, hæði af því, að hvor-
tveggja eru ávaxtaframleiðend-
ur, öðrum rikjum fremur, og af
því hvorttveggja ríkin keppa
um vetrargesti, því geysilegur
fjöldi manna flytur sig á vetr-
in úr austur- og norðurhluta
Bandaríkjanna, þar sem kalt er
þá, í hlýjuna og sólskinið, i
Kaliforníu og á Florida. í mörg
ár hefir það verið þannig, að
ef annað ríkið eignaðist eitt-
livað, sem gat orðið til þess að
draga fólkið að, þurfti hitt þeg-
ar að eignast það líka. Nú hefir
Miamí-borg boðist til þess að
setja upp stóra skautahöll, ef
Sonja Henie, vildi koma þang-
að og halda sýningar, þann
hluta vetrar, sem mest er þar af
ferðafólki. En móti þessu liafa
margir risið í Ivaliforniu og
hlöðin rita um, að Fox-fjelagið,
sem Sonja starfar hjá, eigi að
hanna henni að fara til Florida.
Getið er til að Fox- fjelagið sje
himin lifandi jdir Jiessari deilu,
því þetta sje alveg geysileg aug-
lýsing á nýjustu kvikmynd þess
sem Sonja leikur í.
MARIE SOFIE BREGENDAHL
hin danska skáldkona, cr nýlega orð-
ir. sjötug. Hún var orðin 35 ára er
hún gaf út fyrstu hók sína, „Ved
Lars Skrædders Sygeseng" og tveini-
ur árum síðan kom út „Hendrik i
Bakken“, sem vakti aðdáun fyrir list-
þroska og djúpan og næman skiln-
ing höfundarins á sálarlífinu. A ár-
unum 1912—’19 gaf hún út fjórar
sögur, sem liún kallaði sameiginlega
„Myndir úr lífi Södalsfólksins" og er
það hennar inesta verk. Marie Breg-
endahl var um skeið gift hinu fræga
danska alþýðuskáldi Jeppe Aakjær,
en þau skildu að samvistum.
Á síðari árum hefir gerð smásjáa
(míkroskópa) fleytt mjög fram, þar
sem að bestu smásjár stækkuðu þver-
mál ekki nema 500 sinntmi, erti smá-
sjár sem stækka þvermál 1000 sinnum
nú iðulega búnar til. Nýlega liefir
tilraunastöð Bell Talsímaáhaldafje-
lagsins búið til smásjá, sem skarar
langt fram úr öllum smásjám, er
áður hafa verið gerðar, og stækkar
hún þvermál 4000 sinnum. Það á að
nota hana við rannsókn á málmum.
i
Drekkið Egils-öl
-------- NÝJA BlÓ. --------------
Konan min svonetnda.
Mikilfengleg amerísk kvikmynd
frá Columbia Film, samkvæmt
hínu víðfræga leikriti „Craig’s
Wife“ eftir George Kelly. Hin
vandasömu aðalhlutverk hr. og
frú Craig leysa af hendi af fram-
úrskarandi snild:
ROSALIND RUSSEI.L og
JOHN BOLES.
Aukamynd BRÚÐUDANS. Lit-
skreytl teiknimynd.
„Konan mín svonefnda" er amerísk
kvikmynd, sem vekja mun mikla al-
hygli kvikmyndahúsgesta vegna þess
hve vel er farið með vandasamt efni.
Kvikmyndin fjallar um ung hjón,
sem virðast vera mjög hamingjusöm,
en slrax og hjónin verða fyrir dá-
litlu mótlæti kemur í ljós að konan
er eigingjörn og liugsar eingöngu
um sjálfa sig.
Iívikmynd þessi er gerð eftir víð-
frægu amerísku leikriti, Craig’s Wife,
eftir ameríska rithöfundinn George
Kelly. Hefir leikritið verið leikið
víða í Bandarikjunum við mikla að-
sókn og hlotið hin eftirsóttu Pulitzér
bókmentaverðlaun.
„Konan mín svonefnda” er að því
leiti ólík flestum kvikmyndum, að
hún lýsir ekki eingöngu lífinu frá
björtu híiðinni. Skapbrestir eigiu-
konunnar eru miskunarlaust dregnir
fram í dagsljósið. Eigingirni liennar
er takmarkalaus. Hún yfirgefur sysl-
ii- sína á banasænginni vegna þess að
lienni þykir leiðinlegt að sitja yfir
henni sjúkri. Þcgar eiginmaður henn-
ar er grunaður um morð, sem hún
veit að hann hefir ekki framið, hugs-
ar hún uni það eitt livað fólk muni
nú segja. Frænku sína rekur hún á
dyr, alt af eintómri eigingirni.
Öllu þessu er svo vel lýst í kvik-
myndinni að menn liljóta að fá and-
stygð á eigingirni konunnar. Ung leik
lcona, sem ekki er mjög þekt hjer
heima, Rosalind Russel, leikur liið
vandasama hlutverk eiginkonunnar.
leysir hún lilutverk sitt vel af hendi.
Eiginmanninn leikur hinn þekti og
vinsæli leikari Jolin Boles'.
Kvikmyndir eins og þessi hafa
mikið menningarlegt gildi og í þeim
löndum, sem almenningur er á háu
mennnigarstigi eru þær vel sóltar.
Með þessari kvikmynd verður sýnd
litskreytt teiknimynd.
„Konan mín svonefna” verður sýnd
í Nýja Bíó bráðlega.
SALVADOR DE MADARIAGA
heitir einn af frægustu stjórnmála-
mönnum Spánverja og var hans ol't
getið meðan mál Abessiníumanna
lágu fyrir alþjóðabandhlagsráðinu,
því að hann hafði mest með þau að
gera. 1 vetur var de Madariaga á
ferðalagi um Norðurlönd og hjelt þar
fyrirlestra lun þjóðarjett, við há-
skólana og i lögfræðíngafjelögunum.