Fálkinn - 15.10.1938, Side 2
2
F Á L K 1 N N
----- GAMLA BlO ---------
Erfðaskrá gullnemans.
Afar skemtileg gamanmynd, frá
Metro Goldwyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
GÖG & GOKKE.
Gamla Bíó sýnir á næstunni nýja
Metro Goldwyn kvikmynd. Heitir
hún Erfðaskrá gullnemans. Tvö lang-
stærstu hlutverkin eru leikin af hin-
um ágætu skopleikurum, Gög og
Gokke, sem mörgum bíógestum eru
að góðu kunnir, og vakið hafa liress-
andi hlátur hvarvetna, þar sem þeir
hafa sýnt sig á leiksviði.
— Tveir gullgrafarar eru á ferð
eftir eyðilegum þjóðvegi vestur í
Ameríku. Þeir eru fátækir og veð-
urbarðir. För þeirra er heitið til
námubæjarins Brushwood Gulch.
Ferðin gengur seint. Þeir eru þreyttir
af langri göngu og liafa auk þess
blóðlatan múlasna í eftirdragi. Á
veginum ekur póstvagninn fram á
þá, og verða þeir harla glaðir, er
þeir fá far með honum. í póstvagn-
inum er ein kona. Þeir verða dóna-
lega nærgöngulir við hana, svo að
hún bregst mjög reið við.
Þegar hún kemur til ákvörðunar-
staðarins verður það uppvíst, að
hún er eiginkona bæjarfógetans, sem
tekur á móti henni. Hún ber sig
upp undan dónunum, og maður
hennar verður svo reiður, að hann
segist skuli láta skjóta þá, ef þeir
hypji sig ekki hið bráðasta á braut,
svo að þeir flýja í dauðans ofboði.
En það tekur ekki betra við fyrir
aumingja gullgröfurunum, því þó að
þeir hafi komist undan bæjarfóget-
anum, lenda þeir i höndunum á
samviskulausum slægðarref, Mickey
Finn hóteleiganda. Og svona rekur
hvert óhappið annað. — En öll jel
birtir upp um siðir, og að lokum
sleppa þeir úr klóm hóteleigandans
og halda áfram ferð sinni til námu-
bæjarins, í besta skapi eins og ekk-
ert mótdrægt hafi hent þá.
Kvikmyndin Erfðaskrá gullnem-
ans er sprenglilægileg, og svipbrigða-
list þeirra fjelaganna er alveg ein-
stök í sinni röð.
HANN GRÆÐIR Á VALENTINO.
Þegar Rudolf Valentino dó árið
1926, hepnaðist manni einum, Emil
Jansen, að tryggja sjer einkarjett á
einni af frægustu kvikmyndunum,
sem Valentino ljek í, „Synir sjeiks-
ins“. Hann keypti kvikmyndina fyr-
ir smánarverð. Þessi kvikmynd hefir
nú gengið um heiminn í 12 ár og
verið sýnd í 5500 kvikmyndaleik-
húsum. Og Jansen telur sig hafa
grætt tvær miljónir á henni. Þar
sem nú kvikmyndin lieldur sömu
vinsældum og fyrir 12 árum, þá
getur enn dropið drjúgt í vasa Jan-
sen af þessari mynd.
Kristján Skagfjörð, stórkaupm.,
varð 55 ára il þ. m.
Jósef Björnsson á Svarfhóli,
Borgarfirði, varð 60 ára 12. þ.m.
Frú Sigurlaug Jakobsdóttir
Hraunsholti við Hafnarfjörð,
verður ðO ára lð. þ. m.
Guðrún Gísladótlir, Ijósmóðir á
Akranesi, varð 70 ára 8. þ. m.
Einar Erlendsson, húsameistari,
verður 55 áira 15. þ. m.
Jón Iljaltalín Sigurðsson pró-
fessor verður 60 ára 15. þ. m.
Guðsteinn Jónsson, starfsm. hjá
Slálurf. SI. varð 75 ára 12. þ. m.
Frú Guðbjörg Loftsdóttir Loka-
stíg 15, verður 60 ára lð þ. m.
------ NÝJA BlÓ. -----------
Dóttir dalanna.
Afburða skemtileg amerisk
kvikmynd frá Fox film.
Aðalhlutverkið leikur skauta-
drotningin
SONJA HENIE.
ásamt
DON AMACE,
JEAN HERSHOLT
CESAR ItOMERO o. fl.
Þetta er stærsta, fjölbreyttasta
og langskemtilegasta mynd, sem
Sonja Henie hefir leikið í til
þessa. Leikurinn fer fram í
New York, Paris og í norsku
sueitaþorpi.
Nýja Bíó sýnir bráðum skemti-
lega kvikmynd frá Fox-fjelaginu,
með nafninu Dóttir dalanna. Það
mun áreiðanlega vekja athygli allra
kvikmyndavina, að annað aðalhlut-
verkið í myndinni, dóttir dalanna, ei
leikið af skautadrotningunni frægu,
Sonju Ilenie. En hún hefir þegar
sýnt það í nokkrum myndum, að
henni er fleira til lista lagt en fara
á skautum. Sonja Henie þykir mjög
góð leikkona, og er mjög eftirsótt
af amerískum kvikmyndafjelögum,
og vitanlega gerir skautaleikni henn-
ar sitt til að svo er.
Fyrir fáum vikum sýndi Nýja
Bíó Sonju Henie myiul, sem vakti
mikla hrifningu. Og þó er þössi
mynd, Dóttir dalanna, talin betri.
— Ungur Amerikani, Duke Sor-
gent, hefir unnið sjer mikla hylli
sem „slagara“-tónskáld. Lög lians
tala til fólksins og þó einkum til
kvenna, sem hann hefir mikið vald
yfir. Einn góðan veðurdag ákveður
hann ásamt fjelaga sínum Jimmy
Hall, sem er maður geðugur og
duglegur, að fljúga til Evrópu, og
er förinni heitið til París. Ilin
skapmikla vinkona Duke setur sig
mjög á móti þessu ferðalagi, en fær
engu um þokað. Svo fljúga þeir fje-
lagar, en í staðinn fyrir að „troða
up])“ í París, eins og þeir ætluðu
sjer, nauðlenda þeir í Noregi og
lýkur hjer fyrsta þætti.
í Noregi hitta þeir fjelagar norska
þorpsstúlku, Þrúðu litlu (Sonja
Henie) og spinst þarna ástaræfin-
týri milli hennar og annars Amer-
ikanans.
Þetta eru aðeins upphafsdræjttirn-
ir að langri og efnismikilli mynd.