Fálkinn - 15.10.1938, Qupperneq 14
14
F Á L K I N N
Skíðaskáli íþróttafjelags kvenna.
Við fjelagskonurnar skutum
saman nokkuð á aðra þúsund.
Og nú erum við að efna til
happdrættis til ágóða fvrir skál-
ann okkar. En fullger kostar
hann um fimm þúsund krónur.
Væntanlega bregðast bæjar-
húar og aðrir vel við að kaupa
happdrættismiða Iþróttafjelags
kvenna, því að fjelagið hefir
unnið fullkomlega til þess með
dúgnaði sínum og áliuga um
fjögra ára skeið að hlynt sje
að þvi. Og áreiðanlegt er að
enginn iþróttavinur hjer í bæn-
um gleymir að gera það.
KNATTSPYRNUFJEL. VÍKUVGUR.
Skíðaskáli íþróttafjelags kvenna.
Það hefir verið orðtak allra
tíma: Heimur versnandi fer.
Þessi orð hljóma i eyrum
manns næstum daglega. Og vel
kann að vera einhver sannleik-
ur í þessu. P]n orðtakið: Heim-
ur batnandi fer, hefir þó eigi
síður rjett á sjer. Eitt sem sann-
ar það, er hin vaxandi íþrótta-
menning, sem náð hefir til okk-
ar íslendinga. Fáar þjóðir hafa
hennar frekar þörf en við. Land
okkar er kalt og veðráttan oft
dutlungafull og uinhleypinga-
söm, svo að þess er full nauð-
syn að landsins hörn slæli lík-
ama sinn. Og annað. ís-
lenska þjóð vantar hernaðár-
•egl uppeldi, og hvað sem um
það verður sagt, þá verður því
ekki neilað, að það stælir lík-
amlega hreysti þjóðanna. í stað-
inn fyrir jrað þurfum við íþrótta
uppeldi.
Til að hyrja með voru karl-
mennirnir einir um iþróttirnar
hjer á landi. Það eru ekki mörg
ár siðan ]iað þótti harla ókven-
legt að iðka íþróttir. En sem
betur fer er nú ahnenningsálit-
ið breytt. Og hjerna í höfuð-
sfaðnum er áhugi stúlkna fyrir
íþrótlum engu minni en pilt-
anna.
íþróttafjelag kvenna er stofn-
að var hjer í Reykjavik liaustið
1934, með 80 fjelöguni, hefir
hafl mikia þýðingu fyrir iþrótta
lif stúlkna hjer í bænum. Eftir
fjögur ár er fjelagatala orðin
].rjú lil fjögur lnindruð. For-
maður þess er og hefir verið
frá byrjun, Unnur Jónsdóttir
Iimleikakennari. Frá því fjelag-
ið var stofnað og til þessa dags
hafa stúlkurnar iðkað ýrnsar i-
þróttir og þá einkum leikfimi,
handknattleik, sund, skíða- og
skautaferðir. Auk þess sem þær
hafa tamiö sjer fjallgöngur.
Sem dæmi um hinn mikla
áhuga fjelagskvenna má geta
|jess, að þær hafa komið sjer
upp skiðaskála hjá Skálafelli,
skamt frá Stardal. Bygging á
lionum hófst 19. júní s. I. og er
nú lokið. Er stærð lians 7'Zj m.
X 51/?. Er skálinn allur klæddur
innan með masonite. Skil'tist
hann í aðalskála, eldhús og for-
stofu, og er lofl yfir. Lokrekkj-
um er komið fvrir í skálanum
og munu 50 manns geta gist þar
í einu.
Ætlun fjelagskvenna er að
stunda skíðaíþrótt þarna i ná-
grenninu. En auk þess ætla þær
að hafa hann að dvaiarstað í
sumarleyfum sinum og um helg-
ar. Fast við skálann er heit
laug, sem vakið hefir þá hug-
mynd hjá fjelagskonum að
koma þarna upp sundlaug í
framtíðinni.
Hvernig fóruð þið að því að
konra ykkur upp skálanum?
spyr tiðindamaður blaðsins for-
mann fjelagsins?
Framh. af bls. 3.
K. H., vann annan leikinn með 3 : 0,
en gerði jafntefli í hinum. Þetta
voru fyrstu sigrar Víkings, en með
mestum blóma var fjelagið á árun-
um 1920 til 1928, fyrsta árið vann
Vikingur íslandsmótið í 1. aldurs-
flokki, bæði vor- og haustmót Reykja
vikur-kepninnar í 2. aldursflokki og
haustmótið i 3 aldursflokki, en
síðasta árið tókst Víking einum
atlra knattspyrnufjelaga hjer að gera
jafntefti við knattspyrnuflokk há-
skólastúdenta frá Skotlandi og þótti
það afburða vel gert á sinum tíma.
Þó hatlað hafi undan fæti, eins
og á hefir verið drepið, fyrir fjelag-
inu i nokkur undanfarin ár, þá hefir
það sýnt sig í ár, að fjelagið stend-
ur á gömlum merg, og að þar eru
nú að nýju ágætir knattspyrnumenn,
sem vafalaust eiga eftir að koma
mönnum á óvart með nýjum afrek-
um á næsta knattspyrnusumri. Það
er því fylsta ástæða til að fylgjast
vel með starfi hinna ungu áhuga-
manna, sem hafa tekið upp hið
gamla merki með jafngóðum árangri
og raun ber vitni, og óska þeim
allra heilla ó ókomnum árum.
L. S.
flr kvikniyndatieiminum.
Danielle Darrieux til Hollywood.
Danielle Darrieux og Douglas Fair-
banks Junior saman í kvikmynd.
Það er næstum ómögulegt fyrir út-
lendu stjörnurnar að slá verulega í
gegn í Hollywood. Þýska stjarnan
Lillian Harwey vann þar engan sig-
ur, og hin yndislega Simone Simon
naut sín þar ekki heldur. — Eftir
amerískum blöðum að dæma er þó
svo að sjá að Danielle Darrieux
hafi tekist ágætlega í fyrstu kvik-
Stjórn íþróttafjelags kvenna, talið frá vinstri: Unimr Jónsáóttir (for-
maður), Uorgerður Þorvarðarilóllir, Þóra fíjarnadóttir, Ellen Sighvats-
son og Valgerður fíriem.
myndinni sem hún ljek í: „The rage
of Paris“.
Danielie Darrieux er fædd i
Bordeaux 1917. Strax komu í ljós
hjá henni sem barni frábærir söng-
hæfileikar. Foreldrar hennar veittu
henni ógæta mentún, og þegar hún
var 13 ára var hún tekin inn í tón-
listarskólann. Árið eftir ljek hún í
fyrsta sinn í kvikmynd og þótti
henni takast svo vei, að hún fekk
tilboð frá mörgum kvikmyndafje-
lögum. Árið sem leið ljek hún í
mörgum frönskum kvikmyndum, og
íúi verður gaman að sjá, hvort hún
i amerisku kvikmyndinni heldur
þeim kostum, sem hún helir sýnt
í þeim frönsku. Annars er hún nú
komin til Frakklands og hefir sagt,
að hún vilji ekki fara aftur lil
Hollywood, af þvi svo dýrt sje að
lifa þar. En svo lítur út sem hún
hafi síðar áttað sig, þár sem hún
einmitt nú alveg nýlega hefir tekið
ráðningartilboði frá Universal. Ef
til vill eru launin svo há, að þau
vegi upp á móti dýrtíðinni í kvik-
myndabænum.
Rosalind Russell í kvikmynd í
Englandi.
Rosalind Russell er talin vera betur
klædd en flestar aðrar stjörnur.
Vegna vissra innflutningshafta
eru amerískir kvikmyndaframleið-
endur neyddir til að taka kvik-
myndir í Englandi, og Metro hefir
þessvegna komið á fót stórum kvik-
myndastofnunum i Denham. Nú er
verið að kvikmynda þar stóra skóld-
sögu eftir A. .1. Croniu, sem heitir:
„The Citadel" (kastalinn). Höfuð-
hlutverkið verður leikið af hinni
snjöllu, ungu leikkonu, Rosalind
Russell, sem hefir áður vakið á
sjer athygli í nokkrum myndum.
Rosalind Russell er álitin vera
ein af allra best klæddu stjörnun-
um í Hollywood. Það er ekki þar
með sagl að hún sje mjög íburðar-
mikil í klæðaburði. Myndin sýnir,
hversu hrífandi hún er í einfaldri
sporttreyju, og sama skemtilega lát-
leysið kemur fram í öllum hennar
klæðaburði. Hvað cinkalíf Rosalind
Russell snertir, þá lifir hún i mestu
kyrþey í Beverley Hills, og hún um-
gengst mesl fólk, sem stendur al-
gerlega utan við kvikmyndaheim-
inn. Hún heldur því sem sje fram,
að hún geti betur varðveitt bjart-
sýni sína ó tilveruna og fcngið með
j>ví meiri uppörfun lil nýrra lilul-
verka, en ef hún lifir aðeins í kvik-
myndaheiminum, þar sem rnaður
smám saman verður viðskila við
lífið. —
Frúin gestkomandi: — Þetta vpru
ljómandi góðar kökur, frú Hansen.
Svei mjer að jeg veit hvað margar
jeg er búin að borða!
Sonurinn á heimilinu: — Þú ert
búin að háma í þig sjö!