Fálkinn


Fálkinn - 13.01.1939, Page 3

Fálkinn - 13.01.1939, Page 3
FÁLKINN 3 EIMSKIPAFJELAG ÍSLANDS 25 ÁRA Þann 17. janúar 1914 var Eim- skipafjelag íslands stofnað á fjöl- mennum fundi hjer í Reykjavik, og verður það því 25 ára gamalt um þessar mundir. Fáar munu þær stofnanir vera hjer á landi, sem unnið hafa meira fyrir sjálfstæði og hag hirinar íslensku þjóðar en Eim- Emil Nielsen. fl/rsti framkuœmdarstjóri fjelagsins. skipafjelagið. Það var stofnað af nauðsyn með samtökum allra lands- manna, og það hefir verið rekið með hagsýni og hyggindum og með al- þjóðarhag fyrir augum alt frá því, er það hóf starfsemi sina. Þess vegna hefir það altaf átt öruggum vinsældum að fagna, og þjóðin liefir litið á það sem sitt óskabarn, og óneitanlega má hún vera hreýkin af því. Aðdragandi. Það væri of löng saga að rekja hjer aðdragandann að stofnun fje- lagsins, en þó skal lítið eitt að því máli vikið. Eins og kunugt er höfðu allar millilandasiglingar við ísland verið í höndum erlendra sltipafje- Iaga um langan aldur. Var það lengst um Sameinaða fjelagið, sem hafði þær siglingar með höndum og rjeði tilhögun þeirra og farm- gjöldum. Var landsmönnum margt ó- hægt i viðskiftum sínum við það. Fjelaginu var stjórnað i Kaupmanna- höfn, af mönnum, sem lítt þektu til hags og liátta lijer á landi, skips- hafnirnar voru útlendar og skildu ekki mál landsmanna, ferðir oft ó- hentugar og alt of fáar. Alla sam- kepni vantaði. Árið 1909 varð nokk- ur breytíng á þessu. Samdi lands- stjórnin þá við Thorefjelagið um strandferðir og millilandaferðir, þar á meðal fastar Hamborgarferðir. Á- höfn strandferðaskipanna var að mestu islensk. Jafnframt hjelt Sam- einaða fjelagið áfram siglirigum síu- um hingað fyrir ríkissjóðsstyrk. Fjölgaði nú ferðunum að mun og þótti flestum um hafa batnað. En árið 1912 gafst Thorefjelagið upp á samningi sinum, og alþingi sá sjer eigi annað fært en að leysa það frá honum. Þegar hjer var komið voru ýmsar tillögur uppi á alþingi um það, hvað til hragðs skyldi taka. Vildu margir að landssjóður yrði látinn kaupa skip og gera út sjálfur enda voru strandferðaskip Thore- fjelagsins til sölu með aðgengilegu verði. En allar umhótatillögur í þessa átt, sem að verulegu gagni gælu komið voru feldar eða þær dagaði uppi á þinginu, og seint á árinu 1812 samdi landsstjórnin á ný við Sameinaða fjelagið um að taka að sjer siglingarnar. Var það fjelag þá aftur orðið eitt um hituna, og reynsl- an varð sú, að í ársbyrjun 1913 hækkuðu öll farmgjöld gífurlega. Nam sú hækkun rúmlega 200 þúsund krónum á ári miðað við flutninga- rr.agnið næsta ár á undan. Var nú flestum nóg boðið og þótti mál til komið, að íslendingar hæfist handa um framkvæmdir. Hugmyndin um stofnun íslensKS eimskipafjelags var engan veginn ny, en nú var fylling timans komin. Fyr- ir forgöngu nokkurra manna í Reykjavík var undir árslokin 1912 og fyrra hluta ársins 1913 unnið kappsamlega að undirbúningi fje- lagsstofnunar í því skyni að íslend- ingar tækju samgöngurnar á sjó í sinar hendur. Bráðabirgðastjórn var kosin, og áttu sæti i henni Thor Jen- sen formaður, Sveinn Björnsson rit- ari, Eggert Claessen g'aldkeri, Jón Þorláksson, Jón Björnsson, Jón Gunnarsson og Ólafur G. Eyjólfsson. Sendu þessir menn ásamt ýmsurn fleiri lilutaútboðsbrjef út um alt land og til Vesturheims I marsmán- uði 1913. Var þar boðið út hlutafje að uphæð 385 þús. kr. til byggingar tveggja skipa. Brugðust menn svo vel við áskorun þessari, að fá dæmi eru til. Þegar stofnfundur fjelagsins var haldinn þann 17. janúar 1914, höfðu safnast í loforðum hjer-á landi um 320 þús. kr., en i Vesturheimi um 160 þús. kr., eða með öðrum orðum allmiklu hærri upphæð en ff.rið hafði verið fram á í útboðs- hrjefinu. Stjórn fjelagsins. Fyrsta stjórn fjelagsins, er kosin vrr á stofnfundi, var þannig skipuð: Sveinn Björnsson formaður, Ólafur Johnsson ritari, Eggert Claesse 1 gjaldkeri, Halldór Daníelsson, Garð- ar Gíslason, Jón Gunnarsson og Jón Björnsson og síðar í hans stað Oi- geir Friðgeirsson. Fyrstu árin var stjórnin skipuð 7 mönnum, en á aðalfundi 1916 var ákveðið, að fjölga þeim upp í 9. Eru 6 kosnir af hlut- höfum á íslandi, 2 af hluthöfum i Vesturheimi og einn skipaður af landsstjórninni. Formenn fjelagsins hafa verið: Sveinn Björnsson 1914— 20 og 1924—26, Pjetur A. Ólafsson 1920—24 og Eggert Claessen siðan 1926. Er hann eini maðurinn, sem liefir átt sæti í stjórn fjelagsins frá upphafi til þessa dags, auk þess sem hann átti sæti í bráðabirgðastjórn þeirri, sem vann að undirbúningi fjelagsstofnunarinnar. Framkvæmdarstjóri fjelagsins frá byrjun var rúðinn Emil Nielsen, þá- verandi skipstjóri á „Sterling“. Gat hann sjer hvers manns traust og virðingu fyrir stjórn sína á fjelag- inu, hyggindi og ráðdeild í hvívetna. Ljet liann af störfum sem fram- kvæmdarstjóri árið 1930, en starfar enn i þjónustu fjelagsins sem um- sjónarmaður. Eftirmaður Emils Niel- sens, Guðmundur Vilhjálmsson, nú- verandi framkvæmdarstjóri, hefir reynst fjelaginu hinn nýtasti maður og í sumum greinum fyrirrennara sínum fremri. Skipastóllinn. Fyrsta skip Eimskipafjelagsins, „Gullfoss“, kom hingað til lands í aprílmánuði árið 1915. Honum var tekið með miklum fögnuði, hvar sem hann kom, svo að sliks eru fá dæmi. Sama var að segja um „Goðafoss“, er kom heim til íslands í lok júní- múnaðar sama ár. Þjóðin sá þúsund vonir rætast, þegar hin fögru skip Guðmundur Vilhjálmsson. núv/erandi framkvœmarstjóri. rendu að landi. Þvi miður átti „Goðafoss“ skamma ævi. Hann fórst siðasta dag nóvembermánaðar 1916 við Straumnes, norðan við Aðalvík. Þá varð þjóðarsorg. 1 stað hans keypti fjelagið „Lagarfoss“ í árs- byrjun 1917 og rak síðan siglingar sínar með tveimur skipum til ársins 1921. Þá bættist fjelaginu nýtt skip. „Goðafoss“ hinn yngri, er það hafði látið smíða. Árið 1927 bættist við fjórða skipið í flotann. Það var hið fagra og vandaða kæliskip „Brúa"- foss“. Árið eftir keypti fjelagið „Sel- foss“ (áður ,,Willemoes“) af ríkis- stjórninni, og árið 1930 eignaðist fjelagið sjötta skipið, „Dettifoss“, nýtt skip og vandað. Síðan liefir fje- lagið ekki bætt við sig skipum, en eins og kunnugt er orðið, hefir fje- lagið ákveðið að bæta við sig nýju og vönduðu farþegaskipi, sem að slærð, hraða og öllum útbúnaði tek- ur langt fram öllum þeim skipum, sem verið hafa í íslandsferðum hing- að tií. Mun verða byrjað á smíði þess nú á næstunni. Skipstjórar á skipum fjelagsins eru þessir: Sigurður Pjetursson á „Gull- fossi“, sem liefir verið skipstjóri á lionum frá byrjun, Jón Eiríksson á „Lagarfossi“, Pjetur Björnsson á „Goðafossi“, Júlíus Júliníusson á „Brú- arfossi“, Ásgeir Jónasson á „Selfossi“ cg Einar Stefánsson á „Dettifossi“. Siglingar fjelagsins. Þegar fyrstu skip fjelagsins hófu siglingar, var heimsstyrjöldin skollin á og allar siglingar hjer i álfu á- hættusamar og ýmsum erfiðleikum bundnar. Fyrstu árin sigldu „Foss- arriir“ milli íslands og Bretlands og Danmerkur, og vildi þeim aldrei nein slys til. En í ársbyrjun 1917 hófu Þjóðverjar liinn svonefnda ó- takmarkaða kafbátahernað, sem lok- aði með öllu hinum venjulegu sigl- ii.galeiðum íslensku skipanna. Hóf fjelagið þá siglingar til Ameríku, og voru skip þess i förum þangað, það sem eftir var ófriðarins og að nokk- uru leyti lengur. Hefði á þeim árum illa farið fyrir íslendingum, ef þeir hefðu eigi átt skip sjálfir. Það hefði orðið landssvelta. Eftir að stríðinu Framh. á bls. 15. Skipastóll Eimskipafjelagsins.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.