Fálkinn - 13.01.1939, Page 5
K Á L K 1 N N
5
Heilög dýr
og hjátrú í sambandi við þau.
Náttúran hefir jafnan leikið stór-
an ])átt í breytni mannanna og þ':
ekki síst hjá gömlum og frumstæð-
um þjóðum, sem mjög eru háðar
dutlungum hennar. Náttúran, með
ölluin sinum lífþrungnu frumefn-
um og einkennilegu fyrirhrigðum,
befir altaf verið dýrkuð og tilbeðin
og sett i samband við „yfirnáttur-
lega“ krafta. Náttúrufyrirbrigði eins
og sól, máni, haf og vindur hafa
altaf haft mjög mikla þýðingu fyrir
ímyndun og trúarlegar hugmyndir
frumstæðra þjóða, þar eð álitið var
að þau stæðu i sambandi við guð-
dómleg máttarvöld.
Ekki hvað minst hefir hin lifandi
náttúra — dýrin — gefið ímynd-
unarafli mannanna byr undir vængi,
og það er ekkert undarlegt, þegar við
athugum alla þá margbreytni, sem
þar á sjer stað. Því að ekkert er
margbreytilegra og merkilegra en
dýraríkið: í allskonar lögun og
litum hefir máttur skaparans fengið
þar útrás, i skriðkvikindum og fugl-
um, alt frá minstu skordýrum til
hinna ægilegustu forynjudýra, alt
frá slöngum og skjaldbökum til ó-
geðslegustu apategunda og risavöxr.-
ustu sjávardýra.
Totem-dýrkunin.
Meðal Indiána og einstakra svert-
ingjakynflokka á sjer stað einskonar
dýratilbeiðsla, hin svokallaða Tot-
em-dýrkun. Hún er fólgin í útnefn-
ingu ýmsra dýra, sem vera skulu
verndardýr kynþáttarins eða fjöl-
skyldunnar’. Frá þessari dýrkun ma
rekja uppruna að hinum mörgu
dýraheitum á kynflokkum Indíán-
anna, heiti, sem með meira eða
minna litskrúðugum lýsingarorðum
koma fyrir í öllum Indíánasögum:
„Rauði björninn", Svarti örninn'*
o. s'. frv.
„Heilög“ dýr.
Við skulum nú athuga nokkur af
þeim dýrum, sem í sjerstökum mæii
hafa notið hollustu og dýrkunar
mannanna, og skal þá fyrst mint
á það þektasta a.f þeim öllum: uxann
Apis — sem var dýrkaður og heilag-
ur talinn meðal Forn-Egifta. í Apis
sá lýðurinn mynd guðdómsins, þar
meinlaus kvenmaður, af óhlönduðu
kyni. Alls dvaldist Thomson i hálf-
an mánuð hjá þessu fólki.
Bál kynt í trjánum.
Eitt sinn dvaldi Thomson meðal
manna, er heima áttu við geysistórt
flóaflæmi, og lifðu þeir mest á fugla-
veiðum. Var þarna livergi svo stórt
land, að hægt væri að hafa þar nátt-
stað, og gerðu menn sjer smápalla i
greinum trjánna, til þess að athafna
sig á. Þarna var sofið og gerður eld-
ur til að mátreiða við. En um fenið
var farið á stuttum barkarbátum.
Segir Thomson að það hafi verið
ógleymanleg sjón. að sjá sólarupprás
og sólarlag úr þessum fágætu nátt-
slöðum, en einnig hafi verið mjög
tilkomumikið að sjá bálin í trján-
um, sem sjá inátti í allar áttir, spegi-
ast i vatnsfletinum.
Margt bar skrítið við þessi þrjú
ár, sem Thomson dvaldi í Arnhem-
landi, sem ekki verður greint lijer.
Hann eignaðist þar góðan vin meðal
innborinna manna, er Raivala lijet,
og fylgdi hann honum hvert sem
hann fór, og átti Thomson honum
mikið að launa.
sem hann leit svo á að sál Osirls,
yfirguðsins, hefði tekið sjer hú-
stað í líkama hans. Þegar dýrið dó,
var þjóðarsorg, og var þá strax
farið að leita að öðrum Apis, sem
þurfti að hafa viss einkenni: hann
álti að vera svartur með arnarmynd
á hakinu, hvítan hlett á hægri sið-
unni og ennfremur mynd af tordýfli
undir tungunni (að slík einkenni
finnist á einum og sama kálfi er
nu harla ósennilet). Fyndist nú
dýr sein uppfylti þessi einkenni,
var því fagnað sem nýjum Apis og
ásamt móðurinni farið með það til
Memfis í hátíðlegustu skrúðgöngú.
Þar var það svo „sett inn í em-
Lætti" með mikilli viðhöfn, sem var
engú minni en nú er þá er þjóð-
höfðing'um er fagnað. Á siðari öld-
um liafa fundist stórar klettagrafir,
þar sein þessi heilögu dýr hafa
verið smurð og lögð í stórar kistur
úr granit.
Iíötturinn
var í Englandi hinu forna hei-
lagt dýr. Það var viðlögð dauða-
ri fsing að drepa kött. Sumstaðar i
landinu var guðdómurinn táknaður
með kattarhöfði, og fegurstu graf-
hýsi voru búin til fyrir þessi dýr.
Venjulega voru þau smurð, og í
Memfis einni hafa fundist flei.'i
þúsundir af kattamúmíum. Annars-
staðar voru þeir brendir, ásamt
kattamyndum í bronsi, trje eða
sleini. Allir kettir, sem drápust í
nágrenninu voru fluttir til grafhýs-
anna með mikilli viðhöfn.
1 Algier í Norður-Afríku finnast
enn leifar af einskonar kattadýrkun,
þar eð bannað er að drepa þessi
dýr. Vilji nú einliver losna við kött-
inn sinn, verður hann að „kasta
honum út“ — til sliks staðar liefir
ni. a. verið valin stór vík við hafið,
sem umlukt er snarbröttum hömr-
Lim á aðra hliðina, en opnu hafi á
hina. Þarna safnast saman þúsundir
katta, sem eiga harla auma tilveru,
þangað til miskunsöm flóðbylgjan
hellir sjer yfir þessa dauðadæmdu
hjörð og her hana til hafs.
Ljónið.
Að konungur dýranna, Ljónið, hefir
verkað örfandi á imyndunarafl
mannanna segir sig sjálft. í fyrsta
lagi sem tákn hugrekkis .og hreysti
(það hefir iðulega verið' sett á
skjaldarmerki). Hjá fornaldarþjóð-
um var það álitið standa guðdómin-
um mjög nærri.
Margar egiftskar guðamyndir voru
með ljónshöfðum, og í liofum í
Egiftalandi voru höfð lifandi ljón
sem heilög dýr og fulltrúar sjálfs
guðdómsins. í Litlu-Asiu og Grikk-
landi liafa fundist fjölda margar
myndir af ljónum, ýmist sem
tákn hugrekkis og krafta eða þá
sem guðamyndir.
Hinn heilagi tordýfill
— hjöllutegund —- hefir verið mikið
dýrkaður, svo að mörg hinna stærri
d’ýra mættu öfunda hann af. Forn-
Egiftar skreyttu musteri sín með
myndum af þessum dýruin, og það
var mynd hins heilaga tordýfils sem
heilagur Apis átti að hafa á tung-
uiini.
Fornaldarþjóðirnar höfðu yfirleiít
einkennilegar hugmyndir um þessi
skritnu dýr. Þau voru, að skoðuu
þeirra, öllsömul stríðshetjur, klædd
pansara og brynju. Þau voru vígð
lielgidóminum, og verndaði sjálf
myndin ein af þeim, mennina frá
illum öndum. — Myndir af þeim
voru lagðar á brjóst dauðra manna,
og bornar af lifandi mönnum sem
verndartákn gegn veikindum og
dauða.
Hvíti fíllinn.
Venjulegur fíll hefir aldrei verið
settur neitt í samband við guðdóm-
inn. Hvíti fíllinn hefir aftur á móti,
einkum í Síam, verið dáður og
dýrkaður. Hvítir fílar eru sem sje
mjög sjaldgæfir og flestir þeirra
cins og t. d. þeir sem hafa hvíta
bletti á. höfðinu hafa verið þvegnir
upp úr tamarínvatni og við það
fengið nokkru ljósari lit.
Hulmanapinn.
Annað heilagasta dýr Indlands
en fíllinn er svokallaður hulmanapi.
Innfæddir menn halda, að sálir þeirra
taki sjer hústað í þessuin dýrum
eftir dauðann, og umhyggjan fyrir
þeim er því fram úr öllu hófi. Dæmi
eru til um það, að stofhuð hafa
verið sjúkraskýli, þar sem þessum
öpum hefir verið veitt hjúkrun.
Ilver sá er vogar sjer að drepa
liulmanapa, á það á hættu að týna
lífi sinu.
Slangan.
Að lokum skal svo minst á sjálf-
an „demóninn“ meðal dýranna —
slönguna. Og það er ekki að undra,
þó að þetta dýr, sem öllum mönnum
finst svo ógeðslegt, hafi gefið í-
myndunarafli frumstæðra þjóða
nokkuð lausan tauminn. Hjá mörg -
um var slangan heilagt dýr. Og þ'að
hafði þunga hegningu í för með
sjer að særa slöngu eða drepa. —-
Já, alt til vorra daga eru til slöngur
-—• meira að segja hræðilegustu eit-
urslöngur — sem friðaðar eru vegna
heilagleikal! þeirra.
Það hafa einkum verið vondir
andar eða ill öfl, sem sett hafa veriv
í samband við slönguna, þar eð
fólk lifði i þeirri trú, að hún væri
sendiboði djöfulsins og allra hans
ára.
í mörgum tri'iarbrögðum hugsa
menn sjer t. d. djöfulinn I slöngu-
mynd, og slöngutáknið i allskonar
trúða- og töfrakiinstum er i nánu
samræmi við hið „demoniska" eðli
dýrsins.
KVIKMYNDALEIKKONAN
HEDY LAMARR,
hefur nýlega vakið á sjer mikla ai-
hygli fyrir leik sinn í kvikmyndinni
„Álgiers“. —
Pílagrímur.
Margur Reykvíkingur hefur ef-
laust undanfarnar vikur tekið eftir
mjög undarlegum manni á götum
bæjarins. Bæði útlit hans og klæðn-
aður er mjög frábrugðið því sem
maður á að venjast um nútimamenn.
Maður þessi á heima í Betlehem og
hc-itir Jo.han Baptiste Miiller, en er
fæddur og uppalinn í Bayern i
Þýskalandi. Jolian Baptiste Miiller
klæðist svörtum, víðum kufli, og
hefur ilskó á fótum sjer. Andlit hans
er mikilúðlegt og skegg liefur hann
mikið, er nær niður á bringu.
— Eftir nokkurt yeraldlegt mót-
læti gerðist hann mikill trúmaður,
seldi eignir sinar og gaf fátækum,
og fór pílagrimsför til Betleliem.
Hann bar allþungan kross á herðum
sjer alla leið frá Bayern og þangað.
Árið 1933 reisti hann kross sinn á
liinu fræga Taborfjalli i Palestínu. En
ekki hjelt hann kyrru fyrir eftir
þetta, heldur lagði upp í nýja för
víða um lönd. Hefnr hann heimsótt
marga helga staði, og ber á hrjóst-
inu ýmsa minjagripi frá þeim, sem
er eina skrautið er liann hleður ut-
an á sig.
Erindi sitt lil liinna ýriisu landa
telur hann þó einkum vera það að
vinna að friði. Spáir hann því — og
spámannlegur er hann sannarlega —
að mikil friðaröld muni bráðum
renna upp i heiminum.
Hingað kom Johan Baptiste Miiller
í fyrra mánuði frá Norðurlöndur.i,
eltir að hafa ferðast um þau þver og
endilöng, og hjeðan ætlar liann inn-
anskamms til Bretlandseyja.
Kænn maður.
Duglegur ítali sótti um konsúls-
stöðu í Kína og var spurður eftir-
farandi spurningar:
— Hafið þjer gert yður grein fyrir
því að einn maður er sjaldan skip-
aður konsúll í því landi, þar sem
hann kann ekki málið? Jeg geri
ekki ráð fyrir að þjer kunnið kín-
versku?
Maðurinn glotti hressilega:
— Ef þjer viljið leggja fyrir mig
spurningu á kínversku, er það mjer
mesta ánægja að svara henni.
Útbreiðið Fálkann!