Fálkinn - 07.04.1939, Side 7
F A L Ií I N N
7
LITIL PRINSESSA SKIRÐ.
Fyrir nokkru var dóttir grísku
krónprinslijónanna skírð í höllinni
i Aþenu. Á myndinni sjest Georg
konungur (t. h.) og Páll krónprins
ásáint Frederiku krónprinsessu og
þeirri'nýskirðu, sem heitir Soffía.
LIDA BAROVA.
Hjer birtist ein af síðustu mynd-
um, sem teknar hafa verið af þýsku
leikkonunni Lida Barova. Hún er
gift hinum kunna leikara Gustaf
Frölich, sem allir bíógestir kannast
við.
„FOKIN í ROKINU".
Bók Margrete Mitchell með jiessu
nafni hefir vakið heimsathygli og
nú er farið að kvikmynda hana.
Það verður enska leikkonan Vivien
Leigh, er sjest hjer á myndinni, sem
leikur aðalhlutverkið.
HERTOGAHJONIN AF WINDSOR.
Þau eru altaf í Frakklandi, dvöldu
í París fram eftir vetrinum en eru
nú á vetrarskemtistaðnum í Antibes.
lljer sjást þau á járnbrautarstöðinni
þar, með hunda sína.
SJALFBOÐALIÐAR I ENGLANDI.
Enska stjprnin liefir í vetur útbýtt
miljónum eintaka af bók um skyld-
ur þjóðar, ef ófrið beri að höndum.
Hjer sjest póstheri með hlaða af
þessari „handbók fyrir hvern mann"
UTVARPAÐ BLAÐ.
í St. Louis í Ameríku eru menn nú
farnir að útvarpa skrifuðum blöðum
til Jcaupenda. Hjer á myndinni sjest
senditækið.
NÝI HÆSTARJETTARDÓMARINN.
„SAGRADA FAMILIA“
heitir kirkjan sem sjest hjer að of-
an. Er hún i Barcelona og smíði
hennar nýlokið. Það tók fjölda mörg
ár að smíða kirkjuna enda er hún
stórkostlegt listaverk.
AMY JOHNSON.
Hin fræga flugkona Amy Johnson,
sem áður var gift fluggarpnum
Mollison en skildi við hann vegna
þess að hann svallaði svo mikið,
er líka vön að stýra bifreið og tók
þátt í síðasta Monte Carlohlaupi.
Hjer er hún ásamt samferðakonu
sinni í hlaupinu.
Það vakti eftirtekt um allan heim,
er Roosevelt skipaði Gyðing í hæsta-
rjettardómarasæti í Bandaríkjunum,
einmitt um það leyti, sem Þjóðverjar
hömuðust sem mest gegn Gyðingum.
Hjer er þessi dómari: Felix Frank-
furter, prófessor við Harvard-há-
skólann. Hann er fæddur í Wien
árið 1882.
GRASGJÖF AÐ VETRARLAGI.
Enskur bóndi hefir tekið upp
þann sið að rækta gras allan vetur-
inn með rafmagni — og gela
kúnum sínum það grænt af ljánum.
Segir hann að nytin hafi vaxið mik-
ið við þetta.
KÍNVERJAR
ætla að halda áfram striðinu við
Japani, hvað sem tautar. Myndin sýn
ir kínverska hershöfðingjann Cheu
Cheng, sem hefur lýst yfir því að
Kínverjar niúni ekki hætta stríðinu
fyr en hver einasti Japani sje rek-
inn úr Kina.
FRÁ KATALÓNÍU.
Eigi verður með orðum lýst þeiin
hörmungum, sem Kataloníubúar hafa
átt við að striða undanfarin ár og
ekki síst síðan Barcelona fjell í
hendur E'ranco. Flýði þá fólk úr
borginni, hundruðum þúsunda sam-
an, svo að krökt varð af flótta-
inönnum á öllum vegum.