Fálkinn


Fálkinn - 05.05.1939, Blaðsíða 3

Fálkinn - 05.05.1939, Blaðsíða 3
F Á L K I N N 3 Einar Jónsson myndhögBvari hálfsjötnpr. Fyrir tæpum 05 árum fæddist lítill sveinn Galtafelii í Hruna- mannahreppi. Foreldrar hans voru sæmdarhjón af góðum ættum, sem þar hjuggu my n d a r b ú i. S v e i n n i n n var vatni ausinn og nefndur Einar. Þessi ungi sveinn varð sið- ar fremsti listamaður íslensku þjóðarinnar Einar frá Galtafeili, maSur sem ekki aSeins öll íslenska þjóSin kannast viS sem eirin af sínum ágætustu sonurn fyr og síSar, heldur er og nafniS þekt í öllum nálægum menningar- löndum. Snemma beygist krók urinn aS þvi sem verSa á segir íslenskt mál- tæki. Brátt bar á list- hneigS hjá hinum unga sveini. Köllun hans var svo íjterk, aS strax um 1U ára aldur var hon- um þaS ljóst, aS liann varS aS gerast lisla- maSur, þó að enn væri listamannsþrá hans ekki búin að nema sjer starfagrund. Þegar hann var að læra að skrifa var hann oft og iðulega áður en hann vissi af farinn að teikna alls- konar myndir á pappírinn. Og að horfa á myndir var yndi hans og eftirlæti, frá því að hann fyrst man eftir sjer. Foreldrar hans fylgdust meS þess- ari dráttarlistarhneigð drengsins. Þessi gáfa hans var svo rík, að sókn- arpresturinn Valdimar Briem skáld og kona hans veittu henni effirtekt og urðu þau til að hlynna að henni á ýmsan liátt. Kann Einar mynd- höggvari þeim miklar þakkir fyrir, ekki síst frú Ólöfu, sem gaf honum liin bestu uppörfunarorð. En sá mað- urinn sem Einar telur sig standa í mestri þakkarskutd við fyrir að koma sjer til menta er hinn æruverðugi öldungur Björn Kristjánsson banka- stjóri, sem altaf liefir verið óvenju listelskur maður. Fyrir áeggjan lians og nokkurn fjárstyrk frá honum rjeðst Einar til náms erlendis, aulv ])ess sem foreldrar lians styrktu liann eftir því sem efni leyfðu. — Listamannsþrá Einars hafði skýrst rneS árunum og þegar liann var lö ára varð honum ljóst, að myndliöggv- aralistin heimti hug lians allan. Tveim árum síðar rjeðst liann lil utánfarar. Það var ekki sársaukalaust fyrir jafn mikiS náttúrubarn og Einar var og er, að skilja við bláfjallageiminn með heiðjöklahring og.ástkæra for- eldra og vini, en sívaxandi vitund um listamannköllunina braut allar brýr að baki. Út vildi hann — og fór. Innri nauðsyn knúði hann af stað. Hann fór utan í marsmánuði 1893. Hrepti skipið sem hann fór með af- spyrnustorm á leiðinni, og Einar, fjallasonurinn, sem aldrei hafði fyr lcomiS á sjó, JeiS liinar mestu kvalir á leiðinni. Sjóveikin ætlaði að gera út af viS liann. Þegar hann lcom til Kaupmanna- liafnar, en þangað var ferðinni lieit- ið, þreyttur og' dasaður eftir ferða- lagið, lók Björn Kristjánsson, er var i Höfn á móti honum og greiddi götu lians. í Höfn byrjaði Einar á myndskurð- arnámi, en gaf þaS upp. Siðar komst liann til náms lijá hinum fræga norska inyndliöggvara, Stephan Sinding, er lifði mestan liluta æfinnar i Höfn. Eftir tveggja ára nám hjá lionuin fór liann á Listháskólann, og að afloknu námi þar dvaldi hann enn Jengi í Höfn. Fyrsta verkið, sem Einar sýndi í Höfn lijet Drengur á bæn og kom strax í ljós í því hjá liinum unga manni rík trúlmeigð og tilbeiðsla, sem jafnan hefir einkent hann sem listamann. En fyrstu sýninguna lijell liann í Höfn um aldamótin. Sýndi liann þar meðal annars Útilegumann- inn, er gerði hann frægan, enda eilt af bestu verkum hans. Framan af Hafnarárunum átti Ein- ar við inikla fjárhagsörðugleika að stríða og mun með köflum Jiafa liðið skort. En ýmsa góða vini átti hann að, og einn ástvin, þar sem var kona Iians, sem þá, sem jafnan síðar varð honum óviðjafnanlegur lífsförunaut- ur, fórnfús, full af ástúð, og taldi í hann kjark á örðugleikastundunum. Það má ekki gleymast þegar minst er á Einar sem listamann hver á- gætis kona hefir staðið honum viS hlið á lífsleiðinni. Útþrá Einars var enn ekki svalað, þó að hann hefði verið í Kaupmanna- liöfn. Hann þurfti að kynnast list MiðevrópuþjóSanna, en þó einkum ítölsku listinni, og því lagði hann upp í langt og dýrt ferðalag, sem gaf honum mikiS í aðra liönd sem hstamanni. Eftir það var hann kall- aður til Ameríku, er gera skyldi minnismerki af Þorfinni karlsefni og vann hann að því í full tvö ár. Heim til íslands flutti Einar ekki fyr en 1914. Um þær mundir hafði Framh. á bls. 14.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.