Fálkinn


Fálkinn - 05.05.1939, Blaðsíða 14

Fálkinn - 05.05.1939, Blaðsíða 14
14 F Á L K 1 N N Regína Þúrffardóttir og Brynjólfur Jóhanness. LiEÍkfjElag REykjavíkur: Starfsári Leikfjelags Reykjavíkur er að verða lokið að þessu sinni. Hefir fjelagið sýnt allmarga Jeiki á árinu, ýmist alvarlegs eða broslegs efnis. Hefur leikur þeirra er með lilutverkin hafa farið yfirleitt verið góður og hlotið hlýja dóma. Gömlu leikendurnir — þ. e. a. s. þeir sem öll Reykjavík þekkir frá fyrri árum — hafa verið enn að heita má einir um hituna og engar nýjar „stjörn- ur“ runnið upp á islenska ieiklistar- liimninum. Þeim sem sjeð hafa öll leikritin, sem Leikfjelagið hefir liaft til með- ferðar mun einna minnisstæðast „í návígi", sem þau Indriði Waage og Soffía Guðlaugsdóttir ljeku á önd- verðum. vetri. En «á leikur var illa sóttur, eins og öll leikrit hjer, sem ekki eru „grín“. Það er að sýna sig að frá fjárhags- legu sjónarmiði er það að verða ó- mögulegt fyrir Leikfjelagið að sýna leikrit alvarlegs efnis. Allur þorri leikhúsgesta fer á leikhús til að lilæja og „skemta sjer“, eins og það er kall- að. Og stundum verður maður þess var að áhorfendurnir hlæja að mestu alvörunni og eru alvarlegir undir mörgu broslegu atriði, en um það tjáir eigi að sakast, og þeir sem það gera, geta varið framkomu sína með því, að bilið sje mjótt milli gráts og hláturs. Siðasta leikritið, sem Leikfjelag Reykjavikur tekur til meðferðar á leikárinu er Tengdapabbi, leikril sem er góður kunningi margra Reyk- víkinga, því að hann var leikinn hjer hvað eftir annað við húsfylli fyrir mörgum árum. — Tengdapabbi er eftir sænska skáldið Gustaf af Gejer- stam, f. 1858 d. 1909. Gejerstam er ekki mikið þektur lijer, þó að hann liafi skrifað feiknin öll og þótt góð- ur höfundur — það væri þá helst fyrir „Mina pojkar" (Drengirnir min- ir), sem náð hefir mjög mikilli út- breiðslu. Gejerstam byrjaði rithöfundarstarf sitt sem harðsnúinn realisti, en lin- aðist í trúnni, er liann eltist. Hann skrifaði mörg leikrit og mun Tengda- pabbi vinsælastur þeirra. Þýðingin er orðin nokkuð gömul og gerð af Andrjesi heitnum Björns- syni skáldi, er sjálfur ljek Pumpen- dahl, er leikurinn var sýndur hjer á árunum. Er þýðing leiksins mjög góð eins og ætla má, Jiví að Andrjes var í senn manna orðhagastur og góður leikari með næman smekk fyr- ir öllu því, er við kom leiksviði. Indriði Waage liefir sjeð um leik- stjórn á Tengdapabba að þessu sinni. Leikendur eru margir — lólf — en sum lilutverkin eru smá. Stærsta hlutverkið, tengdapabba sjálfan, leikur Valur Gíslason. Tengda pabbi er miðaldra maður, prófessor i dýrafræði og heitir Theodór Klint. Hann er giftur konu, Cecilia, sem er svarkur mikill, og eiga þau þrjár dætur. Emilía Borg leikur frúna, en elstu dóttirina, sem er gjafvaxta stúlka, leikur Alda Möller. Og um þá dóttur eða öllu heldur verðandi tengdason stendur styr leiksins, — þar sem yilji foreldranna skerst mjög í odda. Móðir frú Klint, gamalt og heyrnarlaust skar, leikur Regina Þórð ardóttir. Svo eru það biðlar ungfrú Klint: Axel Fahirström liðsforingi, leikinn af Indriða. Waage og Otto Norstedt listmálari, leikinn af Gesti Pálssyni. Frú Klint er ólm í að fá liðsfor- ingjann að tengdasyni, og gerir all sem hún getur til að koma þeim saman dótturinni og honum, en prófessorinn er ekki eins hrifinn af því að verða tengdapabbi, því að liðsforinginn er uppskafinn ónytjung- ur, sem rýir hann inn að skyrtunni. — Otto Norsledt er aftur á móti glæsilegur listmálari, sem prófessor- inn hefir kynst í París, þar sem þeir hafa átt saman glaða daga, en keinur svo i heimsókn til sumarbústaðar prófessorsins á Dalaey. En frúin má ekki heyra l)að nefnt að skifta um væntanlegan tengdason. Út úr J)essu og tortrygni frúarinn- ar um framferði prófessorsins í París stappar nærri fullum skilnaði lijá hjónunum. — Aðrir leikendur eru Agaþon Pumpendalil yfirdómari, sjer- vitrings karl, leikinn af Brynjólfi Jó- hannessyni, Amanda íyrirmynd list- málarans Þóra Borg, ókunnugur mað- ur, skringirukkari, Alfred Andrjesson og Emilía, vinnukona lijá prófessorn- um Hulda Larsen, sem ekki hefir sjest lijer fyr á sviði. Leikurinn er bráðfyndinn og skemti legur frá upphafi til enda, og fara leikendur yfirleitl vel með lilutverk sin, og lok léiksins eru þannig að allir áhorfendur mega vel við una: Hjónasambi'iðin batnar, og listmálar- inn og dóttirin ná saman, eftir að frúin hefir sannfærst um J)að, að liðsforinginn er litill karl, sem er ekki styrkari en svo í ástinni til dótturinnar, að hann á vingott við vinnukonuna. Þess má sjerstaklega geta í sam- handi við leik einslakra leikara að Alda Möller hefir sýnl það nú fyrsl verulega að hún er góður leikari. E. J. MYNDHÖGGVARI Framh. frá bls. 3. vaknað mikill áhugi fyrir þvi að hyggja hús yfir listaverk hans og styrkja hann svo af opinberu fje, að hann gæti lifað hjer heima. Á Al- J)ingi voru góðir formælendur fyrir þvi, þar sem þeir Björn Kristjánsson og Bjarni frá Vogi voru. Minnist Ein- ar Bjarna sem eins þeirra manna, er mestan stuðning hafi veitt sjer á lístamannsbrautinni. — Safnað var og fje til byggingarinnar með frjáls- um samskotum. — Ein kaupmanns- kona hjer i Reykjavík, frú Hans- son, safnaði 20 þúsund krónum, og Thor Jensen gaf sjö þúsund krónur. Auk þess gáfu margir myndargjafir. Eru þetta góð dæmi um undirtektirn- ar. 1910 var byrjað á byggingunni, og hún reist eftir teikningu Einars sjálfs. — Lóð listasafnsins er mjög stór og er ætlast til þess í framtíð- inni að þa.r verði bygt hús yfir verk annara listamanna en Einars. Því miður er J)að svo að tómlæti rnargra veldur því að þeir hafa ekki sjeð listasafn Einars Jónssonar. En enginn er sá bæjarbúi, að hann hafi ekki tekið eftir minnismerkjum hjer í bænum, sem öll eru gerð af Einari, yfir Jóni forseta, Jónasi Hallgrímssyni Hannesi Hafstein. Kristjáni IX. og Ingólfi Arnarsyni. — — — Að sjá þau ætti að vera hverjum einum jerin hvöt til að kynnast fjeiri lista- verkum Einars. Listasafnið er mjög mikið sótt af erlendum gestum, enda hefðu þeir gestir mikils farið á mis, er ekki hefðu sjeð það. Segir Einar að það sjeu J)ó Englendingar og Ameríku- menn, er sæki það miklu mest. Þegar komið er inn í hið hljóða lístasafn Einars Jónssonar og á vinnu- stofu hans finst mörgum liann vera að koma inn í helgidóm ðg langar að draga skó af fótum sjer. — Hjer lifir og starfar hinn kyrláti og göfugi lístamaður ásamt konu sinni í friði fyrir skarkala heimsins. Þarna er ort, ort i myndum. Fjölda inárgar mynda hans eru táknrænar og flytja áhorfandanum mikilvægan boðskap. Finst sumum hann nokkuð þungur eigi síður en meistari orðs- ins Einar nafni hans Benedikts- son. — Enn starfar hann í fúllum krafti, flýgur á vængjum ímyndunar- aflsins of lieima alla og byrjar vinnu daginn snemma „með meitil og ham- ar í höndum“. 11. maí næstkomandi er Einar 05 ára. Hygst liann muni dvelja þann dag á æskustöðvunum á Galtafelli. Hinn hljóði og liljedrægi listamaður þráir frið æskustöðvanna. Vonand veiður bjart yfir þeim þann dag og fjallahringurinn fagur og blár, er sonurinn kemur heim í tilefni dagsins. —Myndirnar er greininni fylgja eru önnur af myndhöggvaranum sjálfum, en hin af einu af nýrri lista- verkum lians, er heitir Drekinn. Frú Guðný Einarsdóttir, Seyðis- firði, varð 75 ára 11. apríl s. I. Sigurður Gíslason, lögreglu- þjónn, varð 50 ára 5. maí. Baldvin Björnsson, gullsmiður, varð 00 ára 1. þ. m. Guðm. Gestsson dyrav. Menta- skólans, verður sjötugur S. />. m. Gísli Sighvatsson, útgerðarmað- ur, Sólbakka, Garði, varð 50 ára ft. þ. m.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.