Fálkinn - 09.06.1939, Side 7
Páll ríkisstjóri í Jugoslavíu var ný-
lega í opinberri heimsókn hjá Italíu-
konungi i Rómaborg, ásamt Olgu
prinsessu, konu sinni. Myndin til
hægri er tekin á Capitolium, aj há-
tíðarhöldum sem þar voru, fyrir
hina tignu gesti. Fremst á myndinni
sjest Páll prins og við hlið honum
Helena Ítalíudrotning, en á bak við
þau koma Victor Emanuel konung-
ur og Olga prinsessa.
Föstuinngangurinn er altaf haldinn
hátíðlegur í Amager við Kaup-
mannahöfn, með gömlum hætti. Að-
alliður hátíðahaldanna er .«/, að
ríðandi menn slá knöttinn úr tunn-
unni. Iljer er mynd að neðan frá
Store Magleby lí Amager og sjest
þar upphaf hátíðahaldanna. Tutt-
ugu ríðandi menn j'ara um göturnar
með hornablæstri, en koma víða við
og dansa við stúlkurnar og fá sjer
púns.
jg&jjgjWp
!ðK. & I í -:>> \
>.. '■■■■ .-- • ■-■ ■••■-■■
Herf oringjaráðsf ormaður Lithaua
var nýlega í heimsókn i Varsjava.
til þess að friðmælast við Pólverja.
Hjer á myndinni er hann að heilsa
Smigly-Rydz, sem stendur til hægri
á myndinni.
Myndin til vinstri er frá athöfninni,
sem fór fram er sýningarskáli Dana
í New York var opnaður. Það setti
svip á þá athöfn, að Friðrik krón-
prins var þar viðstaddur ásamt Ing-
rid prinsessu. Mun hann hafa verið
eini maðurinn á sýningunni, sem
stóð að opnun sýningar tveggja
ríkja, því að vitanlega opnaði hann
íslensku sýninguna líka. Feiti mað-
urinn lengst t. v. er Lauritz Melchior
óperusöngvari, en næstur honum
hermálasendiráð Dana í Washington