Fálkinn


Fálkinn - 09.06.1939, Síða 15

Fálkinn - 09.06.1939, Síða 15
F Á L K I N N SC9B § SIEMENS PROTOS BRAUÐRIST KRÓMHtJÐUÐ. Borðprýði. — Steikt brauð — herramannsmatur. — Tilvalin tækifærisgjöf. Pæst hjá RAFTÆKJASÖLUM. Áburðurinn er eitt af undirstöðuatriðum við alla garðrækt, hvort sem er til nytja eða prýðis. Tilbúní áburðurinn eykur notagildi búfjáráburðarins og gerir rækt- unina óháðari jarðvegi og tíðarfari. m Elns oo þjer sáið og berið á, munlð [íjer uppskera. 31- — - ---H" - ,saaBEB55=i>-- I 'É TILKYNNING Að gefnu tilefni skal ])að tekið fram, að Amatör- vinnustofa mín er flutt úr Gleraugnasölunni Lækjargötu 6 B í næsta hús, Lækjargötu 8. Er því öll sú amatörvinna, er unnin er hjá Gler- augnasölunni hjer eftir ekki unnin af mjer og er mjer því með öllu óviðkomandi. — Vona jeg, að öll sú vinátta og velvild, er mínir ntörgu viðskiftavinir hafa auðsýnt mjer um undanfarin ár, fylgi mjer, þótt vinnustofa mín sje flutt. MUNIÐ STAÐINN, LÆKJARGÖTU 8. — SÍMI 2152. Carl Ólafsson. * Allt með íslensktim skipuiii! í Paul-Henri Spaak. bessi belgiski forsætisráðherra varð að segja af sjer 9. febr., og það var þjóðprnisdeila Flæmingja og Vallóna i landinu, sem varð honum að falli — og á eftir að verða mörg- um belgiskum stjórnum að falli. Spaak varð ekki gróinn í forsæt- inu í þetta sinn, þvi að hann hafði koinið til valda 15. maí í fyrra. En meðan hann sat, var hann yngsti forsætisráðherra Evrópu og lika var hann fyrsti jafnaðarmaðurinn, sem myndað hefir stjórn í Belgíu. Hann tók við stjórn eftir móðurbróður sinn, Paul-Emile Janson, en sá hafði tekið við eftir van Zeeland, er hann fór frá 25. október 1937. Allar þessar stjórnir voru sam- steypustjórnir kaþólska, frjálslynda og jafnaðarmannaflokksins, sem eftir kosningarnar höfðu 03, 24 og 70 sæti í þinginu. En andstæðingar eru flæmski flokkurinn með l!i þingsæti, Rexistar 21 og kommún- istar með 9 þingsæti. Stjórn Spaaks var skipuð 4 jafn- aðarmönnum, 4 kaþólskum, tveimur frjálslyndum og einum flokksleys- ingja. Það var hann og frjálslyndu ráðherrarnir tveir, sem feldu Spaak, því að þeir sögðu af sjer, út af deilu, er risað liafði í þinginu um, hvort læknirinn dr. Martins, sem dæmdur hafði verið til dauða fyrir landráð, gæti orðið meðlimur í flæmska akademíinu. Spaak fór að skifta sjer af stjórn- málum á barnsaldri. Þegar hann var 15 ára, reyndi hann að flýja til Frakklands, til þess að ganga í franska lierinn, en komst ekki gegn- um víglínur Þjóðverja. Hann var handtekinn og settur í þýskar fanga- búðir og þar kyntist hann van Zeo- land og urðu þeir vinir. 20 árum síðar varð hann ráðherra í stjórn Zeelands. Spaak var i æsku bylt- ingamaður og ólmaðist gegn þjóð- ernissinnum, mölvaði rúður hjá blaðinu „Nation Belge“ og stofnaði blaðið „L’Action Socialiste". Svo dró af honum og fyrir sjö áruin komst hann á þing, sem róttækur jafnaðarmaður, en eigi að síður gerði van Zeeland hann að sam- göngumálaráðherra, þvi að hann hafði tröllatrú á honum. Árið eftir varð hann utanríkismálaráðherra og markaði þar ])á nýju stefnu, að Belgia væri ekki liáð skuldbindingum við sína fornu bandamenn. Er talið víst, að Spaak muni bráðlega komast til valda aftur í Belgíu.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.