Fálkinn


Fálkinn - 04.08.1939, Síða 3

Fálkinn - 04.08.1939, Síða 3
F Á L K I N N 3 Frá v.: GuÖbrandur Magnúss. forst;.,setur mótiö. ForsœtisráÖh.frúin skirir Dagur Svifflugfjelagsins. Það þótti hin mesta nýlunda, er Svifflugfjelagið efndi til flugsýninga á Sandskeiði síðastliðið sumar. Ljetu margir á sjer heyra, að þeir mundu ekki láta hjá liða að sjá slíkar sýn- ingar aftur, ef þess gæfist kostur. Svifftugfjeiagið gekst nú aftur fyr- ir, að haldnar voru flugsýningar á Sandskeiðinu síðastliðinn sunnudag. Úr því klukkan varð tvö mátti sjá hvern bílinn á fætur öðrum halda upp úr bænum, og munu flestir þeirra hafa liafnað á Sandskeiði. Veður var hið besta, logn og sólskin. Alt fór prýðilega úr hendi þarna efra, og var svo mikil regla á öllu, að það eitl út af fyrir sig vakti athygli, en skátar og lögreglan höfðu eftiriitsstarfið með höndum. A löngum spotta meðfram vegin- um var strengt með snæri, og hjelt mannfjöldinn sjer innan við það. Áætlað var að þarna hefðu alls verið um 2 þúsund áhorfendur. Við mannfjöldanum blöstu flug- vjelarnar í röð, 4 svifflugur og 2 vjelflugur. Stóðu flugmennirnir við þvora þeirra og fjelagar úr Svif- flugfjelaginu við hinar. Þá var þarna margt fjelaga úr Modelflugfjelaginu og voru þeir með ótal smá model- flugur. — Hátalara var komið fyrir þarna, til þess að mannfjöldinn gæti heyrt ræður og skýringar á fluginu. Guðbrandur Magnússon, forstjóri, sem er heiðursfjelagi Svifflugfjelags- ins, setti samkomuna með ræðu. — Síðan fór fram skírnarathöfn og var það forsætisráðherrafrú, Vigdis Steingrímsdóttir, sem gegndi prests- störfunum þarna, og skírði svifflug- ur fjelagsins. Hlutu þær nöfnin: — „Fálki,“ „Smyrill,“ „Hrafn“ og „Máfur“. Að þvi loknu hófst sjálf sýningin, með því að gerðar voru tilraunir með byrjendaflug í svifflugvjelinni „Smyrill“, og tókst vel i bæði skiftin. Um likt leyti báru litlu modelflug- urnar við loft. Sumar þeirra fóru svo hátt, að þær hurfu manni sjónum, og það má guð vita, hvort þær eru allar komnar niður aftur, en allar reglur um slíkl benda þó í þá átt að svo sje. Þýski flugmaðurinn Fritz Schau- erte sýndi síðan hitauppstreymis- flug. Flugvjelin T.F.-Sux dró hana hátt í loft og slepti henni síðan. Var þarna ágætt hitauppstreymi og sveif flugan 20 mín. í loftinu. Hún hefði þó getað verið miklu lengur, en varð að setjast vegna þess að lialda varð áfram með dagskrána. Alt í einu óð gamall og durnara- legur karl inn á völlinn og heimt- aði að fá að fljúga. Óð hann síðan upp í T.F.-Sux, setti liana í gang og fór síðan af stað í vjelinni. í fyrstu hreyfðist flugvjelin all ein- kennilega og vaggaði aftur á bak og áfram. En loks hóf hún sig svo í loft og tókst vel, enda kom í ljós, þegar flugvjelin settist, að karlinn var enginn annar en Sigurður Jóns- son flugmaður. Listflugið hófst að því búnu, en eftir því höfðu margir beðið með mikilli eftirvæntingu. Fór bæði fram listflug á vjelflugum og svifflugu. Voru nú gerðar ýmsar hundakúnstir. Ljetu flugmenn flugurnar fara aftur vfir sig í hring, og sneru þeim þann- ig, að hjólin vissu upp og ljetu þær renna beint til jarðar, svo nefið viss' niður, en rjettu þær svo við, þegar þær voru komnar rjett að jörðu. Á máli flugmanna heita þessar listir „turn“, „looping“ og „spin“, en sennilega spinna nýyrðaísmiðirnir einhver islensk heiti nú á næstunni, eina sviffluguna. Svifflugiö hefsl. svo að sauðsvartur almúginn geti skilið hvað við er átt. Þarna gafst mönnum koslur á að sýna hvað þeir væru getspakir. — Átti að geta upp á hvað svifflugan væri hátt uppi, þegar hún hóf list- flug sitt. Margir tóku þátt í þessari getraun og voru ágiskanir frá 60— 3300 metra. Einn gat þó rjett, sem sje 510 metra. — Var það Gunnar Böðvarsson Óðinsgötu 13, er svo reyndist getspakur. Flugdeginum lauk með því, að Leifur Grímsson flaug í svifflugu frá Sandskeiði og niður í Vatns- mýri. Var hann 20 min. á leiðinni. Hann flaug með 14 kg. af pósti. Svifflugfjelagið hafði látið gera sjer- stök kort i þessu skyni, og seldust þau upp, en þau voru alls 4211. — Alt fór fram með mestu prýði, og mun listflugið verða mörgum ó- gleymanlegt. A. J. Johnson, bankagjaldkeri, verður 60 ára 9. þ. m. Björn Ólafs skipstjóri, Mýrar- húsum, verður 60 ára 10. þ. m. Frídapr verslunarmanna. Um næstu helgi er hið árlega og almenna frí verslunarmanna. Versl- unarmenn efna þá til mikilla há- tíðahalda og ferðalaga, og mun ó- hætt að fullyrða, að aldrei fyr hat'i verslunarstjettin búið sig eins undir það, að hafa hátíðahöldin jafn fjöl- breytt og viðtæk og nú. Hátíðaliöldunum má í höfuðdrátt- um skifta í fernt. Ákveðið er að efna til Vestmanna- eyjaferðar, og er þegar vitað, að fjölmargir ætla að notfæra sjer þetta ágæta tækifæri til að koinast þangað. — Farið verður hjeðan ineð Gull- fossi föstudaginn 4. ágúst og komið heim frá Vestmannaeyjum á mánud. 7. ágúst ineð e. s. Lyru eða 8. á- gúst með Brúarfossi. Fargjaldið er 14 kr. fyrir manninn fram og aftur, en 17 krónur fyrir þá, er fara með Lyru. Vegna þess að alt farþegarúm er upptekið, verða menn að hafast við í lest, en sjerstaklega verður þar hagrætt i þvi skyni. Þá verður farið upp í Borgar- fjörð með e. s. Laxfossi laugardag- inn 5. ágúst kl. 3. Skipið fer fram og til baka bæði sunnudag og mánu- dag. Á laugardag verður dansleikur i Borgarnesi, en á sunnudag verður skemtun við Þverárrjett. Fargjald fram og aftur kostar 11 kr. og er þar með innifalinn aðgangseyrir að skemtuninni við Þverárrjett. Á laugardaginn verður einnig farið austur i Þjórsárdal, um Brú- arhlöð að Gullfossi og Geysi og heim um Grafning. Sunnudagurinn verður notaður til að skoða sig um Framh. á bis. 14. ÚTVARPSRÁÐSTEFNA NORÐURLANDA. Norðurlandabúar ræða nú sam- eiginlega um margvísleg mál, og leitast á þann hátt við að koma á meiri og víðtækari samvinnu. — Nýlega var haldin í Kaupmanna- höfn útvarpsráðstefna, þar sem mælt- ir voru útvarpsstjórar allra Norð- urlanda. Sjást þeir lijer á myndinni, talið frá vinstri: Olaf Midttun, Jón- as Þorbergsson, F. E. Jensen, J. V. Vakio og C. A. Dymling. KRISTJÁN KONUNGUR X. lífverðinum. — Myndin sýnir hann átti nýlega 50 ára afmæli sem liði í heilsa kunningjum á afmælisdaginn.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.