Fálkinn - 04.08.1939, Side 10
10
F Á L K 1 N N
fef h/iA) j
5gg§H \
Copyrlght P. 1. B. Box 6 Cooenhagen
— f) - /vj> —— i
ilítflySL
Nr. 559. Þegar Adamson fór heim klæddur blómum!
S k r í 11 u r.
— Jeg datt í stóra tjörn í gær og
var nærri druknaður.
— Hvað segirðu? Kantu ekki að
synda?
— Jú, en það stóð ó skilti einu,
sem var á tjarnarbakkanum, að það
væri bannað að synda i tjörn-
inni.
— Þjer eigið að drekka einn bolla
af vatni á hverjum morgni.
— Já, það geri jeg nú alla eina,
en i matsölustofunni er það kallað
kaffi.
— Getur það verið, að þú ætlir
að taka hana tengdamóður þina með
þjer til Ítalíu, þá loksins að þú ferð
þangað með konunni þinni?
— Já, hún tönglast altaf á þvi
sama: Sjá Neapel og dey síðan.
Anna: Hugsaðu þér hvað guð-
fræðistúdentinn getur verið fáfengi-
legur. í morgun mæti jeg honum á
götunni, og hvað heldurðu ekki,
hann sneri sjer bara þrisvar sinn-
um við, í þeirri von að jeg liti við.
— Eins og mjer hefði nokkurntíma
dottið slíkt í hug!
— Konur eru skemtilegastar, þeg-
ar þær eru komnar yfir þrítugt.
— Jæja, jeg hitti nú sjaldan konu,
sem er eldri en 29 ára.
Flækingurinn: Fjandans óhepnin
eltir mig, hvar sem ég fer. Þegar
jeg nú loksins finn skilding á förn-
um vegi, þá þarf það endilega að
vera fimmeyringur. Hefði einhver
annar fundið þennan pening, þá
hefði hann auðvitað minnsta kosti
verið króna.
Leikarinn (les livað blöðin segja
um hann i siðasta hlutverkinu): —
Jú, þeir skrifa nú bara vingjarnlega
um mig, svínin þessi — en þeir gátu
vel skammað fjelaga mína dálitið
meira en þeir gera.
Kennarinn: Bjössi, geturðu sagt
mjer, hvernig fer fyrir þeim manni,
Sem hirðir ekkert um velferð sálar
sinna, en hugsar aðeins um líkarn-
ann?
Bjössi: Hann verður feitur.
.... og svo er þaö gíraffinn, en
við verðum að fara upp í svefnher-
bergi til að skoða hann.
“4*
Brúðkaup regnhlífasmiðsins.
YNS/W
U/SNbllRHIR
FARARTÆKI BÚIÐ TIL ÚR TUNNU.
Hjer er bátur, sem þið hljótið að
liafa mikla ánægju af. Jeg skal nú
segja ykkur, hvernig á að búa hann
til, en þið verðið aftur ó móti að
lofa mjer því, að fara ekki á honum
út á djúpt vatn. Fyrst og fremst
þurfið þið að fá ykkur stóra tunnu.
Siðan tálgið þið til trjetappa, sem
þið látið í tappagatið á enda tunn-
unnar. í sponsgatið, sem er á tunnu-
hliðinni, látið þið einnig trjetappa,
og þegar þið setjið farartækið sam-
an, þá munið eftir að láta sponsið
snúa upp, en það er gert til öryggis.
Síðan búið þið til grind úr trjeálm-
um, eins og þið sjáið á mynd A. Á
mynd B sjest á hliðina á álmu-
grindinni, og þar sem tunnunni er
ætlaður staður, er merkt með punkt-
um. Mynd C sýnir álmugrindina,
eftir að búið er að binda við hana
tunnuna með tveimur böndum. Loks
búið þið til skvampár úr tveimur
þunnum fjölum, sem þið neglið ó
sinn hvorn enda á nokkuð löngu
priki, eins og mynd D sýnir.
RÁÐNINGAR Á GETRAUNUM
í SÍÐASTA BLAÐI: Veistu það?
1) Tunglið er stækkandi.
2) Skipið „Normandie".
3) Kringlukast.
4) Þjóðvegur fram undan!
W//.T'
Neö ílugujEl
aö næturlagi.
(Framhaldssaga með mgndum).
22) Jón reyndi af öllu afli að færa
Mick frá stýrinu. En hann var bæði
stór og þungur, svo Jóni fanst það
taka sig heila eiiífð, að færa hann
svo tii hliðar, að hann gæti sjálfur
tekið i stýrið.
23) Flugvjelin átti aðeins eftir
nokkra metra niður að freyðandi
hafinu, þegar hún þaut upp á við
aftur. Jóni varð dimt fyrir augum.
Hann hjelt að það inyndi liða yfir
sig, en alt í einu komst hann svo
ti! sjólfs sín, að liann gat stjórnað
vjelinni.
Jóhannes litli: Heyrðu frænka, jeg
þoli ekki að sjá þig með þennan
nýja hatt.
Frænkan: 0, svei, þú heldur þó
ekki að jeg taki tillit til þess, ?em
svona lítill snáði segir.
Jóhannes litli: Nú, jæja, jeg man
nú ekki betur en jeg hafi altaf heyrt
þig segja, að það væri vegna okkar
karlmannanna, sem stúlkurnar halda
sjer til!
Nemandinn: Afsakið þjer, hvaða
mónaðardagur er í dag?
Kennarinn: Það gerir nú ekki svo
24) Þetta var í fyrsta skifti, sem
Jón sat í flugmannssæti, og nú kom
öll sú þekking, sem hann hafði aflað
sjer um flug, honum að góðum
notum. Fyrst í stað valt vjelin all
ónotalega, í hvert skifti sem Jón
sneri stýrinu, en smátt og smátl
tókst honum að ná fullri stjórn á
henni.
mikið með mánaðardaginn. Það hefir
meira að segja, að þjer takið verk-
efnið rjettum tökum.
Nemandinn: Já, jeg veit það, en
jeg spurði nú bara svona til þess
að hafa eitthvað rjett.