Fálkinn - 25.08.1939, Síða 5
F Á L K I N N
5
*
Ch. Dickens.
Edgar Allan Poe.
lvan Turgénjev.
Gustav Flaubert.
John Galsworthy.
má nefna Fontane-verðlaunin, seni
forlag eitt í Leipzig veitti. Bærinti
Essen hefir heitið verðlaunum fyrir
bestu söguna, er gerist í Ruhrhjer-
aði. Stavenhagen-verðlaunin eru til
minningar um liöfund með sama
nafni og þannig mætti lengi telja.
FRÖNSK VERÐLAUN.
Frakkland hefir fjöldann allan af
bókmentaverðlaunum, en Goncourl-
verðlaunin eru frægust þeirra allra.
A hverju ári heita 2—3 af stóru
hókaforlögunum í Paris verðlaunum,
fyrir bestu söguna, sem þeim berst.
En Goncourt-verðlaunin hafa sína
sögu, sem siðar skal frá sagt. Jafn-
hliða þeiin skal nefna Balzac-verð-
launin og svo það, að verða með-
limur akademisins.
Northcliffe lávarður - Napoleon
í Fleet Street — blaðakongurinn
frægi, hafði afar gaman af allskonar
verðlaunasamkepni. Hann vissi, að
ahnenningur veitti slíku athygli og
hjet þráfaldlega háum verðlaunum
fyrir bækur. Sjálfur stofnaði hann
verðlaunasjóð, er veitir verðlaun úr-
lega og her nafn hans. Hafa margir
enskir og franskir rithöfundar feng-
ið verðlaun úr þeim sjóði.
Evrópumenn hafa fremur lítið álit
á Bandarikjamönnum sem bókmenta-
þjóð, eða rjettara sagt höfðu. Og
þarf þó ekki annað en nefna nöfnin
Edgar Allan Poe, Walt Whitman,
Frank Norris, Jack London, Sinclair
Lewis og Theodore Dreiser til þess
að minna á, að Bandaríkjamenn eru
engar eftirlægjur í bókmentum. Þeir
eiga líka fjölda af verðlaunasjóðum
og eru Pullitzer-verðlaunin frægusl
þar vestra. Ur þeim sjóði fjekk Pe-
arl Buck verðlaun fyrir kínversku
söguna „Góð jörð“, löngu áður en
hún fjekk Nobelsverðlaunin.
Sókrates, speking-
urinn gamli, tók
oft þátt i verð-
launasamkepni.
GONCOURTVERÐLAUNIN.
Þegar bókmentaverðlaun Nobeis
eru frá tekin, eru frönsku Gonco-
urtverðlaunin frægust allra bók-
mentaverðlauna. Bók með áletrun-
inni „Prix Goncourt" er áreiðanlega
þess verð, að hún sje lesin. Þessi
verðlaun hafa verið gefin í 30-
40 ár og hafa sumir, er þau fengu,
að vísu ekki orðið kunnir menn, en
þó flestir. Meðal þeirra ntá nefna
Henri Barbusse (fyrir ,,Eldinn“),
Maurice Bedel og Georges Duhamel,
sem kunnir eru lesendum á norður-
löndum.
Það voru bræðurnir Edniond og
Jules Goncourt, sem stofnuðu þenn-
an sjóð. Sá fyrri lifði 1822—9G, en
sá síðari 1830—1870. Þeir höfðu á-
kveðið, að eignir þeirra skyldu
renna í sjóð, og skyldi vöxtunum
af honum varið til þess, að veita
efnilegum rithöfundi eins árs vinnu-
frið. Bræður þessir voru mjög sam-
rýmdir og í 22 ár skildu þeir aðeins
einu sinni. Þegar Jules dó, fór Ed-
mond að gera ráðstafanir til sjóðs-
stofnunarinnar. Vildi hann stofna
nefnd tíu rithöfunda, sem útbýtti
5000 franka verðlaunum á ári, en
jafnframt skyldi hver af þessum
tíu fá 6000 franka árslaun. Verð-
launin skyldu veitt fyrir bestu skáld-
Framh. á bls. 13.
miðöldum voru munkarnir helstu rithöfundar þjóðanna.
SUÐURRÍKIN LÍKA MEÐ.
í Ítalíu er afar ntikið um skáld-
sögusamkepni. Milanoforlagið Trc-
ves útbýtir „Premio Litterario Vi-
aregio“, sem eru frægustu bókmenta-
verðlaun ítala. Og fleiri mætti nefna.
óvíða um heitn er jafnmikill bók-
mentaáhugi og í hinni fornu Tjekko-
slovakíu. Á afmælisdegi lýðveldis-
ins, 28. okt. var jafnan útbýtt bók-
mentaverðlaunum ríkisstjórnarinnar
fyrir bestu bók liðins árs. Sá höf
undur er þau fjekk varð jafnan l'ræg-
ur maður. — Öll helstu bókaforlög
landsins skutu líka árlega saman
háum verðlaunum fyrir „bestu bók-
ina fyrir fjöldann“. Þessi verðlaun
voru hærri en ríkisverðlaunin, en
frægð fylgdi þeim ekki eins mikil.
Pólska ríkið veitir líka bókmenta-
verðlaun. Pólverjar hafa löngum þóit
listelskir og siðan landið endur-
heimti sjálfstæði sitt, hafa einhverj-
ir rithöfundar og listamenn jafnan
átt sæti í stjórn landsins. Má t. d.
geta um Paderewski, fiðlusnilling-
inn, sem varð forseti.
1 Sviss eru Gottfried Keller-verð-
launin frægust og í Austuríki Grill-
parzer-verðlaunin. í Rússlandi veitir
stjórnin lika bókmentaverðlaun. —
Þegar auglýst var eftir hentugri
skemtibók fyrir almenning komu
Schiller með lárviðar-
kransinn. — Mynd efl-
ir Thorvaldsen.
140 ritverk. Af þeim voru 45 samin
af bændum, 43 af verkamönnum, 12
af kennurum en afgangurinn af rit-
höfundum. En dómnefndin taldi
ekkert af þessum ritum verðlauna
vert.
Meðal hæstu bókmentaverðlaun-
anna eru þau, sein ameríkanska
forlagið Hodder & Stoughton útbýtir
árlega: 20.000 dollarar. Hið alkunna
„Book Society“ í Englandi velur
inánaðarlega bók, sem svo er aug-
lýst sem „besta bók mánaðarins“.
Ymsar norðurlandabækur hafa náð
þeim heiðri að vera tilnefndar.