Fálkinn


Fálkinn - 25.08.1939, Qupperneq 15

Fálkinn - 25.08.1939, Qupperneq 15
F Á L K I N N 15 Oscar Clausen: Frá liðnum dögum. XVII. Yfirgangnr útlendra sjómanna ú Langanesi. Útlendir sjómenn hafa, eins og kunnugt er, fyr og síðar sýnt íslend- ingum hinn mesta yfirgang. Þeim var þaS heldur ekki áhættusamt hjer á öldum áður, þegar landiS var gjör- samlega varnarlaust með öllu. Þegar þessir útlendingar sýndu mönnum .mestann yfirganginn, gengu þeir á land og rændu fje manna og jafn- vel nautpeningi o. fl. Frá þeim tím- um er gamla sagan um, að þeim hai'i þótt fengur í að ná í rauðhærða stráka tii þess að hafa þá í beitu. Iívað sem því líður, að þetta hafi við raunverulegan sannleika að styðj- ast eða ekki, þá er víst, að útlend- ur sjóaralýður gjörði sjer oft dælt við menn, einkum á útkjálkum iandsins eins og t. d. norður á Ströndum og norður á Langanesi. Það var um miðja öldina sem ieið, að enskir og franskir sjómenn gengu svo i björgin beggja megin á Langa- nesi og tóku þar svo mikið bæði af eggjum og fugli, að þeir voru komn- ir langt á veg með að eyðilegja þar aila fuglatekju. Fuglinn skutu þeir miskunnarlaust i björgunum og urðinni fyrir neðan þau, og svo klifruðu þeir í björgin eftir eggjum og ungum þar sem hægt var, eu prikuðu hreiðrunum ofan með löng- um krókstjökum, þegar þeir ekki gátu komið öðru við. Svo gengu þeir hiklaust í björgin og rupluðu þar og rændu, jafnt þó að menn í landi liorfðu á þá. — Á Langanesinu var í þá daga tals- verður trjáreki og voru keflin dreg- in jafnóðum undan sjó, ]>egar þvi varð við komið, og hlaðið í kesti fyrir ofan flæðarmál, en útlendu sjó- mennirnir gengu í trjáviðarkestina og hnupluðu við eins og þeir þótt- ust þurfa til eldiviðar á skútum sín- um, en þá kom lika fyrir, að lands- mönnum þótti sjer ofboðið og bjugg- ust til varnar og urðu þá ryskingar og áflog. — Fyrstu. áratugina eftir aldamótin 1800 voru það mest Flandrarar, sem voru á veiðum eystra, en þeir fisk- uðu aldrei nær landi en svo, að af láglendi sást í miðjan reiða á skút- uin þeirra, og komu því aðeins upp að landi, að þeir ættu brýnt erindi, svo sem til að sækja vatn eða eiga smákaup við landsmenn, alt með meslu friðsemi. En þegar Englend- ingar fóru að koma, um miðja öld- ina, voru þeir miklu nærgöngulari við menn. Sumarið 1807 sýndu enskir sjó- menn Langnesingum þannig hið mesta ofbeldi. Þeir gengu á land og rændu sauðum, tóku hval, sem áður var rekinn á land, skáru hann og fluttu á skip sín, og brendu stóra viðarkesti, sem voru á sjávarströrid- inni, en slíkt hafði aldrei komið fyrir áður. — Fyrir utan Skála, sem er yst á nesinu austanverðu, er eyri sem kallast Lambeyri, en þang- að sjest ekki lieiman frá Skálum. Það var á Lambeyrinni, sem þeir ensku kveiktu í rekaviðnum og hefðu Skálamenn ekki orðið varir við þá. ef ekki hefði viljað svo til, að þeir rjeru til fiskjar þennan dag og sáu af sjónum mikinn reyk á eyrinni, en ])á brugðu þeir jafnskjótt við og reru í land til þess að segja frá þessu. Skálamenn fóru ])egar fjórir sam- an út á eyrina til þess að svipast að livað um væri að vera, og kom ])á i l.jós, að þar voru enskir „dugg- arar“ af 3 smáskútum og voru þeir í óða önn að skera hvalskrokk, sem þar hafði rekið. — Þeir höfðu þegar tekið alt spikið og var suml i fjörunni en suirit í bátunum. Tvo sauði voru þeir með þarna og lágu þeir bundnir í fjörunni. Sauðunum höfðu þeir eflaust náð í fjallinu þar fyrir ofan og dregið þá i böndum ofan fjallið, því að þeir voru svo forugir og svo þrekaðir, að annar gat ekki gengið og hinn ekki staðið jþegar þeir voru leystir. •— Skála- menn gengu hiklaust að sauðunum og leystu þá, og sýndu þeir ensku þeim engan mótþróa og sögðust að- eins hafa verið að fanga þá að gamni sínu, en hvalspikinu voru þeir ófáanlegir tii þess að skila og þóttust hafa fundið hvalinn út á sjó, en mist hann þarna upp og væri hann því þeirra eign. -— Skálamenn þóttust hinsvegar sjá þess merki, að hvalinn hefði skoiað þar upp fyrir nokkrum dögum, í brimi, sem þá var, því að bein og þjóstur úr hon- um lágu svo ofarlega í fjörunni. — Þá höfðu þeir ensku kveikt í all- stórum stafla af rekatrjám, sem hafði verið buðlungað þar, og sögð- ust þeira hafa gjört það til þess að hita sjer og þurka föt sín, og fyrir það vildu þeir engu bæta, þó að Skálamenn færu fram á það. — Af því að liðsmunur var þarna mikill, þar sem Englendingarnir voru svo margir, en Skálamenn aðeins 4. treystu þeir sjer ekki til að ráðast á þá og jafna á þeim fyrir allan þenn- an ójöfnuð, eða taka af þeim lival- spikið. En það sáu þeir, að „dugg- ararnir" höfðu beig af þeim, og það er víst, að þeir bjuggu sig þegar til brottferðar af eyrinni og fóru um borð í duggur sinar, og hafa eflaust ekki vil.jað eiga undir því að Skála- menn söfnuðu liði til þess að berja á þeim. — Skömmu áður en þetta gjörðhd, liöfðu aðrir „duggarar“ l'arið á land hinu megin á Langanesinu í svo- kallaðri Vatnsleysu og kveikt þar í trjáröstinni. Vatnsleysa var mesti rekastaðurinn á Nesinu, en hún er fyrir norðan Sköruvík, sem er ysti bær á norðanverðu nesinu. Þar lá rekaviðurinn í óslitinni hrönn eða röst með flæðarmáiinu. Reykjar- mökkurinn sást frá Sköruvik, en þar gátu menn sjer til, að einhverjir sveitungár þeirra væru að brenna lil kola, þó að þeim ])ælti reyndar einkennilegt að þeir skyldu eklri hafa gjört vart við sig. Sköruvíking- ar Ijetu þetta þó afskiftalaust þann daginn, en daginn eftir sást enn rjúka sem ákafast og var þá farið út eftir, en þar var þá enginn mað- ur sjáanlegur. — Þar hafði verið kveikt í á 3 stöð- um og logaði þar trjáröstiri með nokkru millibili. Það vildi til, að veðrið var kyrt, svo að eldurinn var ekki mjög magnaður, og svo var nokkuð milcið af trjánum nýrekið og ]>essvegna blautt. — Það var því hægt að sigrast á eldinum, með þvi að draga trjen frá svo að hrönnin siitnaði, en þó var þegar brunnið 10—12 faðma langt stykki af röst- inni, þar sem hún var þjettust og mest. — Þó að þarna yrði mikið tjón, ])á var af miklu að taka, því að trjáröstin á Vatnsleysu var afar þykk á þeim arum, en ef hvassara hefði verið og viðurinn þurrari, gat þarna orðið mikið tjón. — Óvíst var livort þessir spillvirkjar voru eriskír eða franskir, en þó grunaði menn heldur að Frakkar hefðu í þetta skifti, verið þarna að verki. — Karlarnir á Langanesi voru gram- ir yfir þessum aðförum útlending- anna og snjeru reiði sinni til danska herskipsins, sem þá var eitt hjer við iand á hverju sumri, og átti að gæta landsmanna og vernda þá fyrir ÞAÐ ER EINS MEÐ HRAÐFERÐIR B. S. A. og MORGUNBLAÐIÐ. ALLA DAGA NEMA MÁNUDAGA. Afgreiðsla í Reykjavík á BIFREIÐASTÖÐ ÍSLANDS. — Sími 1540. BIFREIÐASTOÐ AKUREYRAR. Isaac Newton. Af öllum þeim ágætismönnum, sem í Englandi hafa lifað, mun eng- inn vera fremri snillingnum Isaac Newton, eðlisfræðingnum mikla og ei'num mesta anda, sem uppi hefir verið í heiminum. Þó að þrjú liundr- uð ár sjeu Jiðin síðan liann fæddist eru verk hans enn í fullu gildi og á ýmsum sviðum eru þau unciir- stöðúatriði, sem eðlisfræðin byggir á, hans verk. Newton fæddist í smáþorpi í Lin- colnshire árið 1042. Faðir hans dó nokkrum mánuðum el'tir að hann giftist, svo að Newton kom föður- laus í.þennan heim. Móðir hans hafði 80 sterlingspund í árstekjur, og það nægði til þess, að Isaac fjekk að ganga i skóla. Hann þótti lítiil náms- maður og tók illa eftir en var með sífeld heiiabrot um ýmsa tækni. Hann smíðaði sjer vindmyllu og vatnshrút og einskonar vagn, sern var knúinn áfram af þeim, sem í honum sat. Og hann hafði ákaflega gaman af flugdrekum og festi við þá pappaluktir með logandi kerti og ijet þá fljúga í myrkri, svo að fólkið hjelt að þetta væri halastjörnur. Hann liafði mjög gaman af að horfa á stjörnur og sólarganginn og bjó sjer til sólskifu. Þegar hann var fimtán ára rjeðst hann i vinnumensku, en þótti óhæf- ur til slikra starfa. Þegar hann átti að setja yfir uppi í lieiði, var hann svo niðursokkinn i stjörnufræðina sína, að hann gætti ekki að fjenu og það fór í kornakurinn. Móðir hans tók hann því úr vistinni og ijet hann halda áfram að læra. Hann var 18 ára þegar hann komst í liáskólann í Cambridge og niu árum síðar varð hann prófessor í stærðfræði þar. Eftir það lifði hann svo að segja alla æfina i Cambridge. Tuttugu og fjögra ára fór hann að stunda ljós- fræði og fann, að ijósið er samsett úr margskonar geislum. Næst fann hann upp spegilkíkirinn og smiðaði hann sjálfur. Þessi kíkir er enn til í bókasafni kgl. vísindafjelagsins. Hann var C þumlunga langur og þvi yfirgangi útlendra fiskimanna, og þessvegna skrifar einn Langnesingur um þessi mál og látum hann hafa orðið: „Heyrst liefir að skipstjórar á herskipinu uni allvel við sönglist og dansleika í Reykjavík, á sama tíma' og fiskimenn þeir, sem þeir eiga að hafa eftirlit á, svikjast inn á vor friðhelgu fiskimið og hrifsi lífsbjörgina frá munninum á fátæk- um útkjálkabúum, svo að þeim ligg- ur við hungursdauða. Værð her- skipalýðsins er kúgun landslýðs- ins“i). i) Sbr. Norðanfari VI, 23. -24. ólíkur stjörnukíkirum nútímans. Galilei dó ári áður en Newton fædd- ist og 42 árum áður en hann fædd- ist hafði Bruno verið brendur á báli fyrir að fullyrða, að jörðin færi kringum sólina. Newton var happ að því að fæðast i frjálsu landi og mega segja það, sem honum datt í hug. Hann sætti and- mælum en ekki ofsóknum. Þegar hann var 24 ára sat hánn í garði móður sinnar og sá epli detta af grein. Þá datt hönum í hug skýr- ingin á þyngdarlögmálinu, sem gerði hann frægan. Hversvegna datt epl- ið? Hvernig mundi það detta, ef jörð- in væri helmingi stærri en hún er. Og hvað mundi verða um epli, sem væri miðja vegu milli jarðarinnar og sólarinnar? Þessu var hann að velta fyrir sjer í fjörutíu ár, þangað til liann þóttist hafa fengið nægar skýringar á því, að það sem við kölium þyngd er aðdráttarafl hnatt- anna. Og árið 1C87, þegar hann var 45 ára, gaf hann út hina frægu bók sína „The Principia" um aðdráttar- aflið. Allir hlutir hafa aðdráttarafl, jörðin drfegur að sjer sólina og sól- in jörðina. Aðdráttaraflið er ósýni- leg bönd, sem halda hnöttunum sam- an. Og aðdráttarafl frumeindanna heldur þeim saman. Newton fór aldrei dult með upp- götvanir sínar, en afleiðingin af því var sú, að ýmsir reyndu að eigna sjálfum sjer þær. Svo var t. d. um hinn ágæta þýska vísindamann Leib- nitz. Enginn gerði þó Newton jafn mikinn grikk og hundurinn lians: Newton hafði lokið við bók um eðli ljóssins, sem hann hafði unnið að í tuttugu ár. En hundurinn velti þá, um kerti svo að kviknaði í handril- inu og það brann. Á efri árum fór Newton að taka þátt í stjórnmálum og varð þing- maður. Hann var skipaður forstjóri myntsláttunnar og Anna drotning aðlaði hann. Og hann varð forseti kgl. vísindafjelagsins. Hann dó árið 1727, áttatíu og fimm ára gamall, og er grafinn i kirkjugólfi Westminster Abbey, ti) vinslri handar við kórdyrnar. Hann dó virtur og riluir. Eigur hans voru metnar á 32.000 steriingspund og frægð hans verður ekki metin lil peninga og hefir farið sívaxandi síð- ari hann dó. Hann var maður hóg- vær og lítillátur og mikið góðmenni. „Ekki veit jeg livað heimurinn lield- ur um mig,,“ sagði hann skömmu áður en liann dó, „en sjálfum finst mjer jeg hafa verið eins og dreng- hnokki i fjörunni, og leikið mjer að því að leita að fallegum kuðungurn og skeijum, með alt hafdjúp sann- leikans órannsakað fyrir augunum á mjer.“ i D rekl<iö Egils-öl O o *>v- • -w • -X- O O —W * O -Ito

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.