Fálkinn - 10.11.1939, Page 7
F A L K I N N
7
Kröfur fíússa á hendur Finnlendingum
hafa að vonum vakið meira umtal og
ótla á Norðurlöndum en alt annað, sem
gerst hefir síðan styrjöldin hófst. Norð-
urlöndin munu með fullum rjetti hafa
gert sjer vonir um, að komast hjá
styrjöld eins og fyrir 25 árum, bó að
fíretar, Frakkar og Þjóðverjair ættust
við, en vitanlegt er að j)að hefir lengi
verið draumur fíússa að auka áhrif
sin í Eystrasalti og jafnvel eignast hafn-
ir í norðanverðum Noregi. — Nú hafa
Finnar hervæðst til að verja hlutleysi
sitt. Hjer sjást finskir bryndrekar á
teið til landamœranna.
Konurnar hafa í ríkum mæli tekið að
sjer störf karlmanna í Þýskalandi. Hjer
að neðan sjest Berlínarungfrú í þegn-
skytduyinnunni vera að gefa kúm.
Sjálfstœðisforingi Indverja, Mahatma
Gandhi, hefir undanfarið setið á ráð-
stefnu í Dehli, með Linlithgow lávarði,
varakonungi Indlands, til þess að ræða
um afstöðu Indlands tit styrjaldarinnar.
Þykir mikið undir því komið, að Bret-
um takist að halda frið við hið mikla
riki sitt í Indlandi, þar sem ibúar eru
næ\rfelt tifalt fleiri en í Englandi og
Skotlandi. Iljer að ofan sjest Gandhi
ásamt fylgdarliði sínu.
„Hvað er að frjetta af stríðinu?“ — /
Þýskalandi eru útvarpsbifreiðar með
gjallarhornum látínar aka stað úr stað
til þess að flytja almenningi frjettir.
Safnast hvarvetna fjöldi fólks að þessum
bifreiðum.