Fálkinn


Fálkinn - 10.11.1939, Blaðsíða 9

Fálkinn - 10.11.1939, Blaðsíða 9
F Á L K I N N 9 Hersýning í París ú síðasta þjóðliátiðardegi Frakka í sumar. Þar mœttu enskar herdeildir og háttsettir hershöfðingjar i tilefni af því að 150 ár voru liðin frá frönsku byltingunni og til að votta Frökkum vináttu. Ekkert svar. minstu, að jeg næði í hann. Hann skaut á mig en hitti ekki — skaut tvisvar. En jeg gat ekki elt hann í þessari þoku, fansl yður það? Svo mintist hann starfskyldna sinna. — Hefir nokkuð horfið hjer? Dennis vætti þurrar varirnar. — Það var umslag i skápnum með tuttugu og þremur þúsund pundum, eða rjettara sagt hundrað og tíu þús- und dollurum. Það var andvirði liúss, sem Stevens á. Jeg tók það úr bank- anmn fyrir nokkrum dögum. Mr. Stevens átti að koma hingað í kvöld, en skipinu hefir seinkað vegna þok- unnar i Ermasundi. Lögregluþjónninn horfði á liann og hristi höfuðið. Nú rankaði hann við sjer. Þetta var svo stór þjófn- aður, að málið mundi verða afhent hinum æðri starfsmönnum i Scot- iand Yard. Það ruglaði liann, að upphæðin var í dollurum — hann var óvanur að skrifa skýrslur um erlendar gjaldeyri. — Seðlar — ameríkanskir seðlar? Þjer munuð hafa skrifað lijá yður númerin ? Dennis hristi höfuðið. — Má jeg fá að sima hjeðan? Skýrsla hans til stöðvarinnar var fremur ósamanhangandi. Svalir, kað- all, maður, eitt skot, tvö skot, — hann tilgreindi það með áherslu. Eftir nokkra umhugsun nefndi hann líka þjófnaðinn. Rödd i símanum spurði um eitthvað, og liann endurtók frá- sögnina: maður, kaðall, svalir, skot í þokunni .... — Ómögulegt að elta mann í þess- ari þoku, sir. Jeg sá ekki þverhönd framundan mjer i Baker Street.... muðrinn skaut tvisvar. Hann andvarpaði, lagði heyrnar- tólið frá sjer og sneri sjer að Dennis. — Það var Boscombe. Hann hefir verið á stöðinni i alla nótt á á gægj- um eftir bófunum, sem rændu Arl- ington — gimsteinasalann. Það var mjög heppilegt — jeg meina Bos- combe. Boscombe, liár og grannur og lor- trygginn að eðlisfari, kom eftir tíu minútur ásamt tveimur rannsókn- arþjónum. Hann yfirheyrði lögreglu- þjóninn og sendi hann síðan á stöð- ina, til að gefa skýrslu. — Þjer þektuð ekki manninn, nei. Með grímu, kanske — lögregluþjónn- inn hjelt það. Hver vissi um, að þjer geymduð peningana á skrifstofunni? — Skrifstofuþjónninn minn. Boscombe skrifaði nafn hans og heimilisfang. — Nokkrir aðrir? Dennis hristi höfuðið. — Enginn af fjölskyldu yðar? — Jeg hefi ekki neina fjöiskyldu. — Vini? Eruð þjer kvæntur, mr. Horll? Nei? Trúlofaður? Auðvitað! Dennis lá við að svara ónotum. — Jeg er trúlofaður, já. Boscombe horfði á hann og klór- aði sjer í hnakkagrófina. — Og ungfrúin — vissi hún, að þjer geymduð peningana lijerna? — Nei. Röddin var önug. Boscombe hinn tortryggni leit á liann, lokaði minnisbókinni og stakk lienni í vasann. Svo gekk hann að peningaskápnum og hjelt áfram að spyrja. — Maðurinn var með vetlinga, sögðuð þjer? Bómullarvetlinga? — Nei, þeir voru líkastir gráum hjartarskinnshönskum, en það getur verið, að þeir hafi verið úr bómull. Boscombe tók lyklana úr skápn- úm, lagði þá á pappirsblað og bjó vandlega um þá. — Jeg sendi menn hingað til þess að rannsaka skápinn og taka myndir. Var okkuð annað verðmæti í skápn- um? Peningar? Dennis kinkaði kolli. Boscombe tók aftur upp iykla- bögguiinn og skoðaði skáphurðina og lagði svo lyklana í umbúðirnar aftur. — Þetta var ólieppilegt fyrir yður, mr. Horll. Ekki vátrygt, nei. Fjelög- in vátryggja aldrei peninga fyrir þjófnaði. Hversvegna voruð þjer svona seint á skrifstofunni? — Jeg hafði svo margt að gcra — var að búa mig undir jólin, því að þá ætlaði jeg að taka mjer fri. Lögreglufulltrúinn leit á skrifborð- ið. Þar voru hvorki skjöl nje hækur. — Þjer voruð hættur að vinna, þegar hann kom? Skammbyssan var auðvitað í skúffunni. Bjuggust þjer við innbrotsþjófum?- — Jeg bjóst við þjófum eftir að þjör höfðúð aðvarað mig„ sagði Dennis. Hann brýndi röddina. — Auðvitað, tautaði Boscombe. — Jeg var búinn að gleynia, að jeg símaði til yðar — já, þetta er Dark- eys-aðferð — auðþekt. Hann gekk að arninum, eldurinn var að kalla útbrunninn. Ofurlítið af pappírsösku. — Þjer liafið brent einhverju ný- lega? Hvað var það? Líkast sendi- brjefi? Það var ennþá brjefslögun á ösk- unni. Margar svartar arkir, svo að brjefið hlaut að hafa verið langt. Dennis stilti sig, að láta ekki sjá á sjer geðshræringu. — Það var ekkert merkilegt! Boðs- brjef, ef jeg man rjett. Boscombe starði á öskuna. Brjefið hafði verið látið á eldinn með töng- inni. Það var eitthvað grunsamlegt við þessar litlu leyfar — líkast því að kveikt hefði verið upp til þess að brenna brjefunum. Boscombe leit aftur á borðið, svo í brjefakörfuna, rak augun í eitt- hvað þar, tók upp samankreysta brjefkúlu. Hann braut liana sundur og las: — Kæra, jeg veit ekki .... Hann fann aðra örk, þriðju og fjórðu — allar af sömu tegund og ekkert ávarp. — Þú hlýtur að skilja .... Lögreglumaðurinn hvesti augun á Dennis. — Þjer liafið verið að reyna að skrifa bréf, mr. Horll? Dennis kinkaði koRi. — Nákomnum vini? Boscombe stakk brjefunum í vas- ann. — Jeg kem aftur og tala við yður á morgun. Enn grúfði þokan yfir borginni, cn í úthverfunum var liún tæplega eins svört. En fljótasta bifreið, sem valin hafði verið eða stolið í því augnamiði, gat ekki sigrast á þeim tálmunum, sem náttúran sjálf lagði í götu hinna frábæru innbrotsþjófa. Darkey Cane og fjelagar lians tveir komust ekki nema lafhægt áfram. —• Úr því að þetta tefur okkur, þá tefur það lögregluna líka, tautaði annar fjelaginn. Darkey sat við hliðina á honum með uppbrettann jakkakragann. — Hann ræskti sig. — Þokan hefir aldrei eyðilagt símasambandið. En nú er henni að ljetta. Sláðu í, Augustus! Og þokunni var að ljetta, maður sá nú tvo Ijóskcrastólpa framundan sjer. Bifreiðin herti á sjer. Þeir fóru á fleygiferð um Deptford og upp Blackheat Hill. Gatan var nærri þvi mannlaus. Alt í einu glampaði a rautt ljós fyrir framan þá. — Þetta er bölvuðum símanum að kenna, sagði Darkey og bætti við í gamni. — Svei, þetta er bara al- gengur lögregluþjónn. Bíllinn þaut framlijá stöðvunar- merkinu með níutiu kílómetra hraða. — Jeg held, .... byrjaði Darkey. En honum gafst ekki tækifæri til að ljúka við setninguna. Þeir voru komnir liundrað metra framhjá rauða ljósinu, þegar þeir heyrðu fjóra hvelli, svo þjett að þeir runnu hjer- umbil saman í eitt. Flugsveitin, sem var að eltast við þá, hafði lagt striga- belti þvert yfir götuna og stráð nögl- um á það. Bifreiðin kastaðist til bægri og vinstri, rakst á götuljós- ker og steyptist lcollskit. Þegar Dark- ey komst á fætur, var hann um- kringdur af lögregluþjónum. Rödd, sem honum var illa við, bauð hann velkominn. — Hann kannaðist við þenna lögreglufulltrúa. — Jeg þurfti einmitt að tala við yður, Darkey, —. út af fyrirtæki i Baker Street. Skoðið hann, piltar! Nú var þuklað á honum öllum, en þar var engin skammbyssa, því að liann hafði fleygt henni yfir riðið á Westminster-brúnni. — Þetta mun eiga að vera fang- elsun, sagði Darkey. Hann reyndi með varúð að ná til innri vasans, en áður en hann náði í umslagið, hafði fulltrúinn gripið það. Það var á lögreglustöðinni í Green- wich, sem innihaldið i umslaginu, sem áritað var „bú Stevens“, var rannsakað. Og út úr því komu — fimtíu auð pappirsblöð. — Já, jeg er... . — Já, þjer eruð handtekinn, sagði fulltrúinn og rannsakaði umslagið betur. Darkey urraði. — Jeg ætti skilið að vera hengd- ur, að jeg skuli gera viðskifti við svindlara, eins og Horil. Faðirinn var landeyða og sonur hans er vist tnnþá verri. Það er viðbjóðslegt, livað þessum málaflutningsmönnum ieyfist að stela. — Jeg býst við, að mr. Boscömbe hafi gaman aí að heyra þetta, sagði fulltrúinn. Klukkan var orðin hálfþrjú og Dennis sat enn við skrifborðið. Tók upp skammbyssuna, starði á hana og lagði hana aftur i skúffuna. Nú hófst gamla baráttan á ný. Grun- urinn á Horll & Son mundi stíga eins og brattur múr kringum hann. Hann gat lieyrt fólk segja: „Sonurinn lik- ist föðurnum". Málaflutningsmanna- fjelagið mundi efna lil rannsóknar og gera hann rækan úr fjelaginu. Hann opnaði aðra skúffu í skrif- borðinu, tók fram umslag og leit á demantshringinn. Brjefið grimma frá Noru, hafði hann brent. Hann starði á demantshringinn. Hann heyrði að barið var á dyrn- ar niðri — klukkan var kortjer yfir þrjú. Það var lögreglan — Boscombe mundi vera kominn aftur. Hann gekk hægt ofan stigann, staðnæmdist til að kveikja í gang- inum og opnaði hurðina. Þarna stóð mjó og lítil vera í þokunni — Nora! í svipinn þorði hann varla að trúa eigin augum. — Má jeg koma inn. Hún hvíslaði. Hann opnaði dyrnar og Nora skaust framhjá honum og liljóp upp stigann. Hún var föl og augun þreytu- leg. — — Mjer líður illa, Dennis. Geturðu fyrirgefið mjer? — Hvað kemur til að þú ert á ferli um miðja nótt? Hefirður heyrt....? Hún kinkaði kolli. — Rex sagði mjer það. Hann kom heim fyrir tveim tímum, og var skelfing fullur, og svo frekur, að jeg gat ekki vor- kent lionum. Hann sagði, að maður- inn, sem hann átti að borga, hafi ckki verið viðstaddur, og svo spilaði hann og vann mörg þúsund pund. Dennis, þú mátt til að fyrirgefa hon- um. — Hún stakk hendinni í kápuvasann og dró upp bunka af dollaraseðlum. — Hann hefir ekki hreyft við þeim. Hann tók peningana i skápn- um meðan þú varst úti í dag og setti pnppír í umslagið. Hann vissi, hvar varalyklarnir voru geymdir. Það var liræðilega ljótt. Og alt það sem hefir skeð í nótt. Lewis frændi er dáinn. Dennis greip seðlana, eins og i draumi. — Þeir eru þarna allir, Dennis. Jeg taldi þá. Hundrað og tíu þúsund. Þú verður að fyrirgefa Rex. Hann er svo breyskur. — Við erum öll breysk, sagði Dennis og mintist brjefsins, sem hann hafði verið svo lehgi að skrifa. Hann lolcaði skúffunni með skannn- byssunni, sem honum liafði fundist vera eina færa leiðin, rjett áðan. Og meðan hann hjelt titrandi stúlk- unni í faðmi sjer, gat hann ekki að því gert að brosa. Hann liugsaði til Darkey, þegar hann opnaði umslagið,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.