Fálkinn - 21.08.1942, Blaðsíða 14
14
F Á L K I N íN
Frá Svíþjóð.
LANDBÚNAÐUR í SVÍÞJÓÐ —
3600 ÁRUM F. KR.
Hjónin Sten og Maj-Britt Florin,
sem bœöi eru vísindamenn, hafa
unnið aö rannsókn á steinaldarmenj-
um í Södermanland í Mið-Svíþjóð
undanfarin áratug og eru niður-
stöður jjeirra býsna eftirtektarverð-
ar. Þeiin hefir tekist að sýna fram
á, að kringum árið 3600 f. Kr. —
eða áður en hámenning Egypta var
í blóma — hafi landbúnaður í
Södermanland staðið á háu stigi.
Rannsókn á plöntufrædufti í jarð-
veginum hefir leitt í ljós, að um
Jiessar mundir var Sviþjóð lieilt
land, og óx ])á eik, askur, álmur,
elrir og hesliviður i- skógunum í
Södermaniand, og bændurnir sáðu
iiveiti í akra sína og meðal ávaxla
höfðu þeir villitegund af vínberj-
um. Hafa Florin-hjónin sagt frá
þessum niðurstöðum sínum og mörg-
uin fleiri i blaðagreinum í Stock-
holmsblöðunum í vor.
Hjónin hafa starfað að rannsókn-
um sínum í Södermanland i fast að
jiví tíu ár, og eru rannsóknirnar
gerðar á vegum sænsku fornmenja-
stofnunarinnar. Þau byrjuðu á þessu
árið 1933, og árið 1935 gerðu jþgu
merkustu uppgötvun sína, er þau
fundu leifar af sveitaþorpi frá síð-
asta hiuta steinaldar. Síðar fundu
þau fleiri þorp, og var Mogetorp,
skamt frá Katrineholm, merkast
þeirra. Þær steinaldarmenjar, sem
áður liöfðu fundist á þessum slóð-
um, sýndu aðeins menjar frá fiski-
mönnum og veiðimönnum. Þótti því
stórmerkilegt að finna áþreifanlegar
menjar landbúnaðarmenningar svona
norðarlega. Grunnar húsa, sem graf-
ið var ofan af, sýndu að þessir stein-
aldarbændur lifðu í ferhyrndum hús-
um og að eldskáli þeirra stóð skamt
frá íveruhúsunum.
Ennfremur mátti sjá það af leif-
um af leirkerum, sem fundust, að
Svíar hafa þá kunnað að smíða
skip, og við nánari rannsókn á leir-
kerunum uppgötvaðist fleira merki-
legt. Þannig sáust för eftir iiveiti-
korn og vínberjasteina i leirnum,
og sýnir þetta, að fólk hafi haft
kornrækt í ræktuðu Jandi, og að
vinviður hafði verið til.
Með framhaldsrannsókn tókst
lijónunum að ákveða með allmikilti
nákvæmni hvenær þessi bygð iiefði
verið þarna. Með þvi að gera þver-
skurð af jarðveginum, var liægt að
rekja gróðurjiróunina og aldur
liennar. Þessar rannsóknir sýndu,
að um þessar mundir óx eik, álm-
ur, askur, elrir og hesliviður í skóg-
unum, en hveiti, kornblóm, bananar
og malurt á ökrunum. Trjátegundir
skógarins sýna, að um þessar mund-
ir liefir Södermanland verið lieilt
land, og samanburður á jarðvegi
jiaðan og frá öðrum stöðum i Svi-
þjóð bendir á, að bygðin í Moge-
torp sje frá 3700—3600 árum f. Kr.
Eða með öðrum orðum, að land-
búnaður liafi verið á háu stigi í
Svíþjóð áður en menningaröld sú
hófst í Egyptalandi, sem sögur segja
Þessir steinaldarbændur voru ekki
innflytjendur sunnan að. ÞaS er hægl
að rekja slóðir forfeðra þeirra aftur
í tímann og sýna fram á, að Jieir
eru komnir af veiðimönnum og
fiskimönnum. Og Florin segir, að
það sje enginn vafi á því, að Svíar
nútímans sjeu afkomendur þessara
manna.
Florin-hjónin segja, að það sje
erfitt að ímynda sjer jafn ríkah
gróður á þessum slóðum, því að
nú er þetta sama tand magurt og
þakið barrskógi. En veðráttan liefir
breyst siðan á steinöld, eðli skóg-
anna orðið annað en áður var og
jarðvegurinn gengið úr sjer.
KVIKMYNDAGERÐ í SVÍÞJÓÐ.
Svíum hefir tekist að lialda kvik-
myndagerð sinni í horfinu, jiráll
i'yrir núverandi aðstæður. Árið 1941
voru teknar þar 34 heilkvöldsmynd-
ir en 1940 voru jþær 37 og 1939
voru þær 30. Auk þess hefir verið
tekið mikið af stuttum skemtimynd-
um og fræðimyndum, og liefir sú
framleiðsla verið aukin mikið síð-
asta ár. Meðal þessara stuttu mynda
er afar mikið af kvikmyndum, sem
teknar hafa verið af heræfingum og
hervæðingum Svía og varnarráð-
stöfunum þeirra.
Siðustu árin hefir verið lögð mik-
il áhersla á, að gera sænskar kvik-
myndir fulikomnari en áður og
vanda belur til leikenda, enda þótt
ýmsir bestu leikarar Svía sjeu komn-
ir til Ilollywood. Meðal þeirra
mynda, sem teknar voru á síðasia
ári eru ýmsar, sem standast saman-
burð við bestu erlendar kvikmynd-
ir og hafa vakið mikla atliygli.
Meðal þeirra mynda má til dæmis
nefna „Fyrsta lierdeildin", sem lýs-
ir lífi sænskra steypiárásaflug-
manna, og mynd landfræðilegs efnis,
sem heitir „Baráttan heldur áfram“.
Við atkvæðagreiðslu, sem sænska
kvikmyndadómarafjelagið stóð fyrir,
fengu þessar myndir flest atkvæðin.
Af útlendum kvikmyndum fengu
„Langa leiðin heim“ eftir Jolin Ford,
og „Á hverfandi hveli“ flest atkvæð-
in. ífiðarnefnda myndin var sýnd
í útta mánuði samfleytt á cinu
stærsta kvikmyndahúsinu í Stock-
holm. Af þeim tíu útlendu myndum,
sem flest utkvæði fengu, voru sjö
ameríkanskar. Meðal þeirra var
„Citizen Kane“.
Það er enginn hörgull á útlenduin
kvikmyndum í Svíþjóð. Hefir reynst
kleift að halda uppi innflutningi á
kvikmyndum frá útlöndum, þrátt
fyrir stríðið. Á síðasta ári voru 265
nýjar útlendar kvikmyndir sýndar
á sænskum kvikmyndahúsum, eða
hjer um bil alveg jafnmargar og
1940. Mest fer fyrir ameríkönsku
myndunum; þær yfirgnæfa sænsku
myndirnar, alveg eins og á friðar-
tímum. Af áðurnefndum aðfluttum
kvikmyndum á siðasta ári voru
livorki ípeira nje minna en 186
ameríkanskar.
LITLAR SIGLINGAR f
STOCKHOLM.
Síðan stríðið byrjaði hefir sífelt
verið að draga úr skipakomum til
Stockholms. Samkvæmt skýrslum,
sem hafnarstjórinn í Stockholm gaf
út í vor, nam smálestafjöldi aðkom-
inna og útfarinna skipa aðeins 5
miljón smálestum árið 1941, en árið
1940 var talan 6.3 miljón smálestir
og árið 1939 var hún 11.6 miljón
smálestir. Svona litil umferð liefir
aldrei verið um höfnina i Stock-
holm síðan á siðustu árum fyrri
styrjaldarinnar. Enda hafa utan-
landssiglingar orðið ónotaléga fyir
barðinu á stríðinu. Árið 1939 námu
skipakomur frá útlöndum 6.6 milj-
ón smálestum, en minkuðu niður í
3 milj. smálestir árið 1940 og niður
í 2.3 mitjón smálestir árið 1941,
eða þriðjung af liví, sem var fyrir
stríð. Eftir að siglingabann var lagt
á Norðursjó 1940, i apríl, hættu
raunverulega allar utanlandssigling-
ar á Stockholm, og þegar stríðið
hófst milli Þjóðverja og Rússa
breyttist enn á verra veg, því að' þá
lokuðust öll sund siglinga á Rúss-
land. Þá liafði verslunin milli Sví-
þjóðar og Rússlands verið farin að
aukast, vegna verslunarsamninga
þeirra, sem þessi rílci gerðu með
sjer undir árslokin 1940. Og þessi
verslun gekk að miklu leyti um
Stockholm.
BÓKAFREGN.
Frh. af bls. 3.
sjer og hann, er ekki líklegur lil að
geta skrifað lilutlaust um rússneska
menn og málefni. Enda er bókin
öflug ákæra gegn stjórnarfarinu í
Rússlandi o,g ekki dregin fjöður yf-
ir þær miklu misfellur, sem eflaust
liafa átt sjer stað í stjórnar- og
rjettarfari. Jafn stórkostleg bylting
er varð i Rússlandi hlaut að liafa
i för með sjer geigvænleg átök og
margar misgerðir og hryðjuverk,
sem um eitt skeið voru staðbundin
við Rússland, en eru iðkuð af kúg-
urum og koma niður á þjóðum, sem
ekkert liafa til saka unnið.
Höfundur hefir mikið af ýmis-
konar fróðleik til brunns að bera
og er auðsjáanlega nauðkunnugur
rússneskum málefnum. Hann skrifar
fjörlega og lipurt, en bókmentalegt
gildi þessa rits líður við það, hve
hann gefur áróðrinum lausan taum-
inn. En það munu vera slikar bæk-
ur, sem fólkið vill helst lesa, bæði
hjer og annarsstaðar. Erlendis hefir
liessi bók vakið feikna athygli og
miklar rimmur um ha.na staðið, en
salan verið gífurleg. Enda hefir höf-
undurinn marga kosti, og bókin er
skemtileg aflestrar.
Iljer sjest enska konungsfjölskyldan heima hjá sjer, kringum ar-
ininn i setustofu sinni i Buckingham Palace. Yngri prinsessan,
Margarel Rose, og drotningin, sitja til vinstri, Elizabeth prins-
essa stendur viö arininn og kongurinn situr til hægri. Hann er
meö bók á hnjánum, en kvenfólkiö meö priónana sína.
LOFTVARNABYSSUMAÐUR f BRESKA FLOTANUM.
Svona lita þeir úl mennirnir á ensku kaupförunum, sem úvalt
eiga aö vera reiöubúnir til aö skjóla á óvinaflngvjelarnur þegar
þœr sjást nálgast. Flugvjelarnar ótlust þessa veröi á skipunum,
enda hafa þeir grandaö mörgum þeirra.