Fálkinn


Fálkinn - 16.10.1942, Side 12

Fálkinn - 16.10.1942, Side 12
12 F Á L K I N N Louis Bromfield: 29 AULASTAÐIR. „Hversvegna sagðirðu mjer þetta ekki? Jeg iiefði einhvernveginn getað komið þvi í kring.“ Hann þagði en sagði síðan: „Jeg liefði jafnvel hætt öllum tökum hjer ; borginni og flutt mig burt, ef það befði getað uppfylt ósk þína.“ „Það var nú ekki svo einfalt.“ „Hvað varð ykkur að sundurþykkju í fyrsta lagi? Varstu eitthvað nærgöngulli en henni líkaði?“ „Nei, alls ekki. Það hefði mjer aldi-ei getað dottið i liug við hana.“ „Nú, segðu mjer þá, hvað það var. Hver veit nema jeg gæti lagað þetta til fyrir vkkur.“ „Reyndu bara að gleyma því.“ Gamli maðurinn horfði á son sinn drjúga stund, og loks brá fyrir einkennilegum klókindasvip á andliti hans. Samtímis varð svipurinn likastur og á strák, sem vill leyna einhverju. Hann lækkaði róminn og sagði: „Var það eitthvað í sambandi við mig?“ Þegar ekkert svar kom, hjelt Dorti áfram: „Jeg skil. Peningarnir eru senni- lega ekki sama sem allur heimurinn. Jeg liefði átt að hugsa um sitthvað annað, jafnframt þeim. Þú hlýtur stundum að hafa skammast þín fyrir mig.“ „Nei, það hefi jeg aldrei gert.“ Þá gerði gamli maðurinn það, sem hann hafði aldrei gert áður á ævi sinni. Hann stóð upp, seinlega, gekk að syni sínum og lagði báðar hendurnar á axlir honum. Hann sagði: „Jú, jeg skil alt. Jeg skil, hvernig ástatt hefir verið fyrir þjer. Og nú geturðu ekki leitað aftur til karlsins lians föður þíns. Eins og þú veist, er ekkert þvi til fyrirstöðu frá minni hendi, ef þú vilt, og það getur nokkru bjargað. En sem sagt, þú getur farið að eins og þú vilt, og jeg skal að minsta kosti geta skilið það.“ Nú leit.Kobbi fyrst framan í föður sinn. Bláu augun, irsku, voru enn blárri en venjulega, af því að nú voru þau vot. „IJverskonar labbakútur heldurðu að jeg sje?“ hreytti liann út úr sjer. „Þú skilur,“ sagði Dorti gamli, „að hjeð- an af get jeg ekki runnið af hólmi. Jeg skyldi gera það, ef það væri þjer til nokk- urs gagns, en nú er það of seint. Nú.er ekki annað fyrir höndum en berjast. Þú skilur það ?“ „Já.“ „Fyrir einni viku,. áður en þessi bölvaður blaðsnepill kom út, hefði jeg getað þaggað það alt niður, en nú er ekki annað að gera en að berjast, því að jeg hefi aldrei hopað á hæl. Og það er best að þú vitir það: Jeg verð ef til vill að berjast til þess að fara ekki beint í tugthúsið." Nú var alveg runnið af Iíobba. „Nú, er það svopa slæmt?“ spurði hann. „Já, ef þeir vita nógu mikið 'og Bill Swain getur útvegað nóg vitni.“ „Það vissi jeg ekki. Jeg lijelt, að öll þín fyrirtæki væri á betra grundvelli en svona.“ „Það er svo margt, sem ég hefi aldrei sagt þjer — líklega af því, að jeg liefi skammast mín fyrir það.“ Hann klapp- aði á bakið á Kobba og sagði: „Þú ættir að fara að hátta, drengur minn. Reyndu að sofa þetta úr þjer, svo að þú getir komið hress og óhræddur á árshátíðina á morgun — oft‘ er þörf en nú er nauðsyn. Kanske getur þetta alt farið vel.“ Kobbi fór út og upp í herbergi sitt. Um leið og hann afklæddi sig, las hann aftur skeytið frá Sjönu. Með varkárni drukkins manns sljettaði hann skeytið út og kom því fyrir innan í „Ferðum Gullivers“, sem mamma lians liafði einu sinni gefið hon- um, þegar liann var lítill. Einhvernveginn lagðist það í hann, að hann gæti þurft á þessu skeyti að lialda, síðar meir. í skrifstofu Gunnfánans var haldinn rit- stjórnarfundur þetta kvöld, og stóð yfir langt fram á nótt. Hann hafði verið boð- aður, þegar sjera Símon, Baptistaprestur- inn, liafði hringt og spurt, hvort hann mætti koma og tala við frú Lýðs. Hann sagði með guðhræddri röddu, að hann hefði sjeð ávarp Gunnfánans til rjettþeinkjandi borgara Flesjuborgar, og langaði nú að setja á fót Umbótanefnd, til þess að lijálpa til í herförinni. Næst hringdi Jabbi Nýborg' úr útfarar- skrifstofu sinni, og sagði: „Bravó! Þetta var almennileg ritstjórnargrein. Ef þú verð- ur þarna eitthvað enn, ætla jeg að skjótast yfrum til þín, Villa. Hvernig væri að hringja í Samúel og liina sveitadrengina og biðja þá um að koma í borgina?“ „Bíddu augnablik,“ sagði frú Lýðs. Síðan sneri hún sjer að hr. Ríkharðs 'og sagði honum uppástungu Jabba, og spurði, hverju hún ætti að svara. „Þetta er yðar dagur,“ sagði hún, „svo að það er best, að þjer ráðið þessu.“ „Segið honum að láta þá bara koma,“ svaraði hr. Ríkarðs. „Það er altaf best að hamra járnið meðan það er heitt.“ Jabbi lofaði nú að kalla saman alla „strákana“ til borgarinnar, nema livað auð- vitað Samúel gat ekki komist á fjalakerr- unni sinni, en hinir myndu koma, allir með tölúnni. Siðar, um klukkan sjö, hringdi Gasa- María. „Fínt,“ sagði María. „Þarna fá þeir það, sem þeir hafa gott af.“ Og þegar frú Lýðs sagði henni af þessum skyndifundi, sagði liún: „Jeg ætla að líta inn um tíu- leytið, þegar alt er komið í gang hjá mjer. Verðið þið þar þá?“ „Ætli við verðum ekki lijerna mestalla nóttina,“ svaraði frú Lýðs, og í röddinni var æðisgengin hrifning. Nú var hún kom- in i meiri vígahug en hún liafði nokkru sinni áður lifað. Hjartað sló eins og vjel- hamar og hendurnar með stóru æðunum skulfu. Síðar komu fleiri samúðar-uppliringing- ar og einnig tvær — nafnlausar — þar sem samúðin var ekki efst á baugi, heldur hið gagnstæðá. Frú Lýðs varð hálfhrædd við þessar hringingar, en sú hræðsla hvarf brátt fyrir vígahugnum. Aldrei liöfðu önn- ur eins tíðindi gersl í hennar nágrenni, síðan J. E. sálugi lifði og var „kraftur“ í stjórnmálum borgarinnar. Hrukkurnar burfu úr andliti hennar og nýr glampi kom í augun. Þetta var eins og að halda veislu sem var öllum öðrum veislum fremri og dýrðlegri. r Um klukkan tíu var skrifstofan orðin full af fólki — svo full, að lir. Ríkharðs, með alla sína skipulagsgáfu, var alveg i vandræðum að koma öllum fyrir. Allur þessi mannfjöldi kom heldur illa við „lieimafólk“ blaðsins; að vísu hafði það búist I við lireyfingu í borginni, en ekki neinu þessu líku. Og söfnuðurinn var ærið mislitur, því að þarna voru meðal annara lderkar, bæði af Baptista og Meþódista trúarflokkum, ásamt ýmsum trúnaðar- mönnum sínum, svo var Jabbi Nýborg, feitur ög sveittur með „sveitadrengina“ sína með sjer, þrjár konur úr Siðferðis- fjelagi borgarinnar, og loks — svo sem til þess að vega móti þeim — Gasa-María, í rauðum flauelskjól, með fjóður í iiatl- inum og livitan ref um hálsinn. Þegar dyrnar opnuðust og Gasa-María birtist, var engin leið annað en taka eftir henni og ennþá ómögulegra að látast ékki laka eftir lienni. Hún vakti geysilega eftir- tekt, og þegar frú Jenkins úr Siðferðis- fjelaginu veik sjer að frú Lýðs, svo lítið bar á, og spurði, hvað þessi kvenmaður væri hjer að gera, svaraði frú Lýðs aðeins: „Hugsið þjer ekki um það. Hún er ein öflugasta stoðin okkar og ræður yfir öli- um atkvæðunum á Árbakkanum.“ Gasa-Maria hvarf vonum bráðar „inn fyrir“ með Jabba Nýborg og fylgismönn- um lians, til þess að fá sjer „einn lítinn“ úr. flöskunni hjá Villa Frikk. Meðan þaú voru að því, sendi hr. Ríkharðs út eftir bjór og smurðu brauði, en var annars vandræðalegur á svipinn, enda var það ekki heiglum hent að eiga að hemja þenn- an sundurleita söfnuð undir einu þaki. Gasa-María varð til þess að skera á hnútinn. Þegar hún kom innan úr prent- smiðjunni, styrkt og endurnærð af viskíi Villa Frikk, dró hún .hr. Ríkharðs afsíðis. Hún leit kringum sig i skrifstofunni og sagði: „Finst yður þetta ekki ganga bæri- iega? Aldrei liefði jeg búist við svona þátttöku. Og hún verður meiri á morgun, sannið þjer til.“ „Það virðist hafa verið álitlegur fjöldi, sem beið eftir tækifæri til þess að taka upp vopnin gegn Dorta.“ „Já, það var nóg af þeim, en enginn til að stjórna atlögunni. Enda er það mála sannast, að hjer hefir ekki verið almennileg pólitisk orraliríð i síðustu 20 ár. Menn liafa beðið eftir henni með ó- þreyju. Jeg þekki alt mitt heimafólk... . þesfeu liefir það verið að bíða eftir. Sjáið þjer bara svipinn á fólkinu.“ Hr. Ríkliarðs leit á fólkið. Æsing og

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.