Fálkinn - 10.11.1944, Blaðsíða 1
40.
Reykjavík, föstudaginn 10. nóvember 1944.
XVII.
Á EYJAFJALLAJÖKLI
Skíðin eru nú komin fram úr sumarhýðinu og unga fólkið farið að draga sig til fjalla um helgar. Skíðaskálunum f jölgar
og i sumar hafa bæst við skáli Fjallamanna á Tindafjallajökli, Víkings í Sleggjubeinsdal og Ármannsskálinn nýi og störi
í Jósepsdal, auk margra annara. Ber þetta vott þess, að áhuginn fyrir skíðagöngum sje eigi stundarfyrirbrigði, eins og sum-
ir spáðu í fyrstu. — Skíðamyndin hjer að ofan er tekin uppi á Eyjafjallajökli. Þangað er orðið tíðförult siðan Fjallamenn
reistu skáia sinn á Fimmvörðuhálsi fyrir nokkrum árum. Á myndinni sjest langt á haf út og Vestmannaeyjar sjást greini-
lega. Myndina tók Leifur Kaldal.