Fálkinn - 16.02.1945, Blaðsíða 7
F A L K I N N
7
HANDTAKA í ÓBYGGÐUM GRÆNLANDS.
í fyrrasumar og fram í október brutust fjórar létti-
snekkjur úr strandvarnaliði Bandaríkjaflotans gegnum
rekísinn meSfram norSausturströnd Grænlands, til þess
að liandtaka jjrjá þýslca flokka, sem gerðir liöfSu ver-
ið út til þess að koma upp veðuratliuganastöðvum á
Grænlandsströndum og senda jjaðan fréttir er máli
skiftu, um veðurhorfur í Norður-íshafi, beint til Þýska-
lands.
í júli 1944 komust danskir erindrekar að því, að-
veðurstofa og útvarpsstöð liafði verið sett upp við
Sussihöfða á norðurodda Shannoneyjar, og gengu þá
■ áhafnir af ameríkönsku snekkjunum Storis og North-
land þar á land og sáu, að stöðin liafði verið yfirgefin
í skyndi, er ÞjóSverjarnir sáu til ferða skipanna. Þegar
Bandaríkjamennirnir fóru aftur frá Sússihöfða sáu þeir
þýskan togara fastan í ísnum og allt brunnið innanúr
honum. Var slcip jsetta 46,5 metra langt og er giskað á að
það hafi verið togarinn Coberg.
Snemma í október komst önnur Bandaríkjasnekkja,
Éastwind, inn úr ísnum við Koldewy-eyju og setti þar á
land tvo floklca til þess að ráðast á aðra jjýska veður-
stöð, sem hafði fundist þarna. Voru teknir þar höndum
þrír liðsforingjar, níu menn og vísindatækin og loft-
skéytatækin hirt, og var þá talið, að eigi væru fleiri
þýskar veðurstöðvar til á Grænlandi. En nokkrum dög-
um síðar sá könnunarflugvél einn þýskan togara þarna
á næstu grösum. Sigldi þá Eastwind að togaranum, sem
reyndist vera 54 metra langur og gerði atlögu að hon-
um í ísnum á næturþeli. Gafst áhöfnin upp, 20 manns,
en togaranum var síðan siglt til Boston.
Önnur landganga var einnig gerð og alls voru hand-
teknir í Grænlandi 60 Þjóðverjar og mikiö af allskonar
tækjum og útbúnaöi. Ekkert tjón varð á mönnum þeim,
sem tóku þátt í þessum leiðangrum af hálfu Banda-
ríkjanna. — Myndin hér til liægri er tekin á Koldewey-
eyju, eftir að foringjarnir þrir og níu aðrir höfSu verið
handteknir ])ar. Vopnaðir Bandaríkjamenn standa yfir
föngunum.
Myndin til vinstri sýnir
ameríkanska hermenn hvíla
sig í skugganum undir inn-
gönguhliðinu að barnaskóla
á Leyte-ey á Filippseyjum,
þar sem þeir réðust fyrst á
land. Japanar höfðu notað
skólann sem liermannaskála
meðan þeir héldu Leyte. Nú
er kennsla byrjuð í skólanum
aftur. - T. h.: Juana Mandia
kenslukona á Leyte. Hún hef-
ir lagt spurningu fyrir snáð-
ann, og það er augljóst að
hann Iiugsar sig um svarið.
Margar bandarískar stúlkur lögðu bændum lið sitt á síðastliðnu hausti,
og stóðu sig prýðilega við uppskeruna. Myndin sýnir eina þeirra þar
sem hún silur með berjakörfunar fleytifullar.
HALDIÐ SUNLIGHT SÁPU ÞURRI
þá endist hún lengnr
X-S 1368-814
Aldrei hefir það verið nauðsyn-
legra en nú, að spara SunlighÞ
sápuna á þvottadaginn. Núið
ekki sápunni á allan þvottinn
heldur á óhreinustu blettina, og
þá kemur nægilegt löður til að
hreinsa allan þvottinn. Skiljið
aldrei sápustykkið eftir i valn-
inu.Látið það standa á endann
i þurri sápuskál. Munið að þa
kemur Sunlight sápan að ýtr-
ustu notum.
LEVEH Iramleiðsia.
* /Ult með íslenskum skipum! f