Fálkinn


Fálkinn - 18.01.1946, Page 8

Fálkinn - 18.01.1946, Page 8
8 FÁLKINN EG SAT í klæðaklefa minn- ar góðu vinkonu, Erinu Bjasantjevu, og elti hana með augunum meðan hún var að mála á sér andlitið. Mjúkar hvítar hendurnar fóru léttilega um andlitið með bursta, fiður- dúska og litaskifti. Þær snertu við hálfluktum augunum. Þutu upp í hárið, löguðu slaufuna á brjóstinu eða lokk við eyrað — og mér fannst þær vera skapaðar til að vera á sífelldri hreyfingu. — Blessaðar hendurnar! . . . . liugsaði ég hrærður. Blessuð, elsku augun.... Og án þess að ég vissi af því sjálfur, sagði ég upphátt: — Irina! Vitið þér það — ég held að ég elski yður! Hún tók andann á lofti, sló lófunum saman, sneri sér að mér og að sekúndu liðinni hélt ég henni í faðminum. — Loksins, sagði hún og hló lágt. — Eg liefi beðið óþolin- móð eftir þessu. Hversvegna hefir þú kvalið mig svona lengi? — Hafðu hljótt! sagði ég og tók hana í fang mér og hvísl- aði svo að henni: — Á þessu augnabliki minnir þú mig á veikbyggðu, ungu stúlkuna í „Krysantemur“ leikriti eftir Go- danov. Manstu þegar hún rek- ur upp lágt vein og lirópar: „Loksins!“ og fellur í faðm Laertofs óðalseiganda. Þú ert jafn yndisleg og veikhygð og þú tókst andann jafn töfrandi á lofti og hún gerði. Hvað ég elska þig! Daginn eftir flutti Irina sig til mín, og án þess að skeyta nokk- uð um flónsku og forsóma þá liéldum við áfram að búa sam- an. Þegar við i’ifumst var á- stæðan jafnan smámunii’, og rifrildið dó fljótlega vegna þess að það vantaði næringu. 'C'YBSTA óvinátta okkar kom til af því að ég lcyssti Irinu og tók eftir því að hún var að skoða sig í speglinunx um leið og við kystumst. Eg ýtti henni frá mér og spurði móðgaður: — Hversvegna horfir þú í spegilinn? Ertu eingöngu að hugsa um hvei’nig þú lítur út á svona augnablikum? — Ja, þú skilur. .. . svaraði hún hálf vandræðalega — þú faðmaðir mig dálítið klaufalega — ekki um mittið, heldur um hálsinn. Karlmenn mega aðeins taka um mittið á konurn. — Nú, hvað áttu við? Hvar stendur það ski-ifað að ekki megi taka utan um konu nema um mittið? Það er fui’ðulegt. Ef mig langar til að taka uin Leikkonan hefir orðio með hinni sönnu i’ödd ástar- innar, þá varðveittu mig í end- urminningunni, sem hjarta minning uin vorið.... — Ekki hjarta, tók ég hryss- ingslega fram í — um leið og ég tók af mér skóna og hneppti frá mér vestinu — lieldur ljóm- andi. Ertu strax farin að gleyma 4. þætti í Fuglar himinsins, 7. atriði. Hún horfði lengi á mig. . . Ilvíslaði eitthvað með píslar- vættissvip og hneig aftur á hak ofan í rúmið. En hak við sæng- urbrúnina gægðist skært, fall- egt auga fram. Og þetta auga liorfði í spegilinn og höndin strauk ósjálfrátt úr fellingu á sænginni. mittið á þér, þá geri ég það — sé hálsinn nær, þá tek ég um liálsinn á þér. Og svo verð- ur þér að þykja eins og þér sýnast. — Nei, vitanlega eru engin lög til um þetta. En það er nú einu sinni svo óeðlilegt, að karlmaður taki um hálsinn á konu. Eg varð reiður og talaði ekki við Irinu í tvo tíma. Hún varð fyrri til að leita sætta aftur. Ilún kom til mín, lagði yndis- legu armana um hálsinn á mér, karlmannshálsinn — því að það .leyfðu lögin — og svo kyssti hún mig. Hún sagði: -— Vertu nú ekki stúrinn, drengurinn minn. Eg ætla að gera þig að hyggnum og athyglisverðum manni, og svo.... Hún kyssti mig aftur, hálf vandræðalega. — Hig lang- ar til að þú getir komist upp á hátind frægðarinnar fyrir á- lirif frá mér. Eg ætla að vera þér lind innblástursins, — já meira en það. Eg ætla að vinna frægðina handa þér. Hún fór í leikhúsið og ég fór að hugsa. Hvernig gat hún unnið frægð mér til handa? Máslce með því að skrifa sög- urnar mínar betur en ég gal gert. Og hvað átti hún við með innblæstri? Átti ég að skapa hetjurnar mínar eftir uppskrift frá henni, eða átti hún að segja: — Volodja, skrifaðu sögu um hundinn, sem beit í löppina á eldastúlkunni........ Eða: — Volodja, gamanleikarinn okkar er orðinn brjálaður og leilchús- stjórinn rak hann. Gerðu svo vel og skrifaðu sögu um þetta. Og svo datt mér allt í einu í hug. Eg hafði fyrir skömmu séð sjónleik á leikliúsinu, liann mun hafa heitið: Ekki nokkur glæta, og þar kyssti kvenhetjan karlhetjuna á trantinn og sagði spámannlega: — Mig langar til að þú komist á hátind frægð- arinnar, fyrir áhrif, sem þú verður fyrir frá mér! Eg ætla að verða þér lind innbláslurs og andagiftar. — Skrítið er at tarna, hugsaði ég, og það kom »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦< hragð í munninn á mér eins og ég hefði brotið tóma hnot. UPP FRÁ þessu fór ég að gefa Irinu gætur, og því betur, sem ég gerði það, því skelfdari varð ég. Stundum félck ég að sjá hina sárhryggu Verotsjku úr leiknum Þoku- skyggð fjarlægð eftir Limonoff. . . Éinstöku sinnum var það raunamædd daðurdrós, sem var á þönum kringum mig í ákafri gleði eða brjálæðislegu upp- námi og' sem ætlaði að svifta sjálfa sig lífi með því að taka inn eitur. (Sorgarleikurinn: Betra er seint en aldrei). En Irinu sjálfa gat ég aldrei kom- ið auga á. Einu sinni var það að ég gaf lienni armband, og þá var það tigin daðurdrós, sem þakkaði mér fyrir; hún tólc um hálsinn á mér með lög- giltri daðurhreyfingu. Einn dag- inn þegar ég kom seint heim og bjóst við að hitta háskjæl- andi Irinu, móðgaða yfir því hvað ég kæmi seint, fann ég' mér til mikillar furðu hctju úr sorgarleik í svefnherberginu, og hún néri hendurnar á sér mjög snyrtilega (spegillinn hékk al- veg hjá henni) og sagði með jarðskjálfta í röddinni: — Eg ásaka þig ekki fyrir neitt. Eg liefi aldrei lagt mannlegt frelsi í læðing, en ég sé.... langt. . langt héðan.... Hún starði sljóum augum í spegilinn, og hætti svo allt í einu við, í sker- andi livísltón: — nei, nær, mjög nærri sé ég fyrir endann á þessu — liinn sætumetlaða ei- lífa dauða...... — Hættu nú, sagði ég titr- andi. — Þú ert að vitna í leik- rit Kasjaltofs, Þeir kviksettu, 2. þátt, samtalið milli Basar- ovski og Olgu Pavlovnu. Þú hefir leikið Pavlovnu og lir. Batalof lék Basarovski. Er það ekki rétt? Hún brosti — sjúku brosi. — Þú vilt móðga mig. . Gott. Píndu mig, auðmýktu mig. En ég grátbæni þig aðeins um þetta eina: þegar ég fylgi honum, sem mun lcalla á mig EGAR ég fór á fætur eftir að liafa drukkið morgunteið mitt og fór í frakkann af því að ég ætlaði að ganga út dá- litla stund, starði hún á mig með augun full af tárum. Hún hvíslaði hljóðlega: — Ætlarðu að fara? Eg fékk sting' fyrir hjartað og var að því kominn að hreyta fyrirætluninni og falla á kné og sættast við hana. Eg elskaði hana þrátt fyrir allt — en svo axlaði ég mín skinn og bölsót- aði sjálfum mér fyrir, hvílíkur erkibjálfi ég væri. — Hlustaðu nú á mig, sagði ég og livessti augun á liana. — Á þessi viðbjóðslegi leikara- skapur aldrei að taka enda? Þú varst einmitt áðan að segja þrjú orð, þrú smá orð, en samt eru það ekki þín orð, og það ert ekki þú, sem segir þau. — Hver er það þá, sem segir þau? hvíslaði liún skálfandi og skimaði kringum sig. — Dohrovolskaja greifafrú í leiknum Öldin, sem leið eftir Abrasjkin, í fjórum þáttum. Milli fyrsta og annars þáttar líður hálft annað ár. Hrappur- inn, Obdorski fursti, yfirgefur greifafrúna — og þá skirpir hún orðunum — „ætlarðu að fara“ — á eftir honum. Jæja, nú veistu þá hver segir þetta. — Getur þetta verið rétt? livíslaði Irina alveg frá sér, og góndi á mig glentum aug- um. — Já, vitanlega. Þú lékst sjálf greifafrúna. Heyrðu mig nú, góða mín, við skulum vera Saga eftir Arkadij Avertsjenko

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.