Fálkinn


Fálkinn - 01.03.1946, Blaðsíða 2

Fálkinn - 01.03.1946, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N Margar Xýjar Bækur Sídustu dagana hafa Icomi'ö út margar nýjar bækur frá ísafoldarprentsmiðju og aörar komiö úr bókbandi, sem þrutu dagana fyrir jól. 1. Jörðin græn. í þeirri bók eru öll síðustu ljóð Jóns Magnússonar, seni ekki voru áður birt í bókum. Þeir, sem eiga eldri bækur Jóns, geta, með því að kaupa þessa litlu ljóðabók, eignazt öll ljóð hans. Kostar aðeins kr. 12.50. 2. Hitt og þetta cr nýjasta bók Guðrúnar Jóhannsdóttur frá Brautarliolti. í bók- inni cru Ijóð, sögur og þulur, en ungur listainaður, Kjarlan Guðjónsson, hefur teiknað nokkrar Ijómandi fallegar myndir, sem skreyta hókina. Kr. 10.00 3. Rauðskinna VI. Nýtt hefti af hinu vinsæla þjóðsagnasafni séra Jóns Thorarensen. Er með því lokið öðru hindi, og fylgir efnisskrá yfir allt bindið. Kr. 8.00. 4. íslenzkir sagnaþættir og þjóðsögur VI. Þetta er 6. hefti og lok annars hindis af þjóðsagnasafni Guðna Jónssonar skólastjóra, og fylgir efnisskrá. Heftið er allstórt (röskar 180 hlaðsíður) og kostar kr. 15.00. 5. Forskriftir eftir Benedikt Gröndal. Forskriftahók Gröndals var á sínum tíma vinsæl og gagnleg. Nú hefur hún verið ljósprentuð, aðallega til þess að mönnum gæfist kostur á að sjá rithönd hans og læra af henni. Kostar 4 krónur. 6. Sköp og skyldur. Sjónleikur í 5 þáttum, eftir Axel Thorsteinsson. Þetta er 12. frumsamda bók þessa vinsæla höfundar, og fyrsta leikrit hans, sem birt er á prenti. 7. Manneldisfræði handa húsmæðraskólum. Eftir Kristínu Ólafsdóttur lækni. Frú Kristín hefur samið bók þessa sérstaklega sem kennslubók fyrir húsmæðraskóla. En hún segir í formálanum: „Eftir að húsmæður liafa tileinkað sér fróðleik kversins, ætti það að geta orðið þeim til áframhaldandi stuðnings við matseld á heiinilum þeirra“. Má því hiklaust hvetja hverja hyggna húsmóður, sem vill kynna sér næringar- gildi góðs matar, til þess að kaupa bókina og lesa hana. Kostar í góðu bandi kr. 22.50. Eftirtaldar bækur þrutu í bókaverzlunum fyrir jól, en eru nú komnar aftur til bóksala: 1. Heilsufræði handa húsmæðrum, eftir Kristínu Ólafsdóttur lækni. Húsmæður hafa sýnt, að þær meta þessa bók, og ungar stúlkur þurfa að kynnast efni hennar. 2. íslenzk úrvalsljóð: Bjarni Thorarenseu. Úrvals ljóða útgáfa ísafoldarprentsmiðju er svo vinsæl, að bæk- urnar seljast upp, jafnóðum og þær koma úr bandi. Á þessu ári verður reynt að liafa til öll þau ljóð, sem áður eru útkomin, og hæta við einu eða tveimur nýjum heftum. Þó er réttara fyrir þá, sem vilja tryggja sér bækurnar, að vera ó verði. Nú eru komin í bókaverzlanir úrvalsljóð Bjarna Thorarensen. 3. íslenzkir þjóðhættir Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili. Fáar bækur eru betur til þess fallnar að vera hentug gjöf fullorðnu fólki en Þjóðhættir Jónasar. Bókin er bæði skemmtileg að lesa, og í henni er ótæmandi fróðleik- ur. Þar rekst gamla fólkið á margar ánægjulegar endur- minningar, en unga fólkið kynnist lífi, sem því er nauð- synlegt að vita nokkur skil á. 4. Snót. Dagana fyrir jólin kom út gömul ljóðabók, sem áður hafði verið prentuð nokkrum sinnurn. Hún var yndi og gleðigjafi Islendinga um tugi ára. Þess voru dæmi, að gamlar konur heilsuðu henni með táruin, þegar hún kom nú á ný. En aðeins litið af bókinni komst í band fyrir jól. Nú er Snót kontin í bókaverzlanir aftur, bæði í alskinni og skinnlíki. En upplag bókarinnar er ekki stórt. 5. Raula ég við rokkinn minn. Þulur og þjóðkvæði. — Ófeigur Ófeigsson læknir bjó undir prentun. Fáar bækur vöktu jafn óskipta athygli í hókaflóðinu fyr ir jólin, eins og þessi fallega hók Ófeigs lækn- is, cnda þraut hún í flesl- um bókaverzlunum. Nú er liún komin aftur. Not- ið tækifærið, það er ekki vist að hún verði hand- bær, þegnr yður dettur það í liug næst, 6. Sálmabókin. Nú er Sálmabókin komin til allra bóksala. Nýkomin er í bókaverzlanir mynd af forseta ís- lands, Sveini Björnssyni. Myndin er í þremur stærð- um, prentuð á þykkan og vandaðan myndakarton, og kostar aðeins 2, 5 og 10 krónur. * B ÓKA VERSLIJIVI IsAFOLDAR og útibúið Laugaveg 12. Eimskipafélag íslands h.f. Tilkynning Vér viljum vekja athygli á því, að vér erum nú að hefja á ný reglubundnar siglingar fár HULL og LEITH. til íslands með eigin skipum og leiguskipum. Þessa daganaer s.s. „LEC,H“ að ferma í Hull, og þaðan fer skipið til Leith og fermir þar. Næstu ferðir frá HULL og LEITH verða: Frá Hull: E.s. „REYKJAFOSS“, sem mun ferma þar um 10 mars. Frá LEITH: E.s. „LUBLIN“, sem byrjar að ferma þar um 15. mars. Síðan má gera ráð fyrir reglubundnum ferðum frá þessum höfnum væntanlega tvisvar í mánuði og verður nánar auglýst um það síðar. Þá viljum vér vekja athygli á því, að hægt er að senda vörur frá ! HOLLANDI og BELGÍU með umhleðslu í Leith, og á að beina vörusendingum þaðan til umboðsmanna vorra í þessum löndum, sem eru: ANTWERPEN: Grisar & Marsily, 13, Rue de l’Empereur. AMSTERDAM: Seeuween & Co., Pins Hendrikkade 131. ROTTERDAM: Seecuwen & Co. Wijnhaven 15. Nánari upplýsingar á skrifstofu .vorri. H.f. Eimskipafélag fslands

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.