Fálkinn - 01.03.1946, Page 10
10
F.Á LKI N N
YHft/W
Drengurinn og öxin
Einu sinni var duglegur dreng-
ur. Einn daginn átti hann að
fara lil i skóg að liöggva við. —■
Þú verður að taka bestu öxina,
sagði faðir hans, — þá gengur
þér betur að höggva!
Svo fékk drengurinn nteð sér
'smurt brauð í nesti og fór út
i skóg. Þegar hann hafði hoggið
langa stund varð hann bæði
svangur og þyrstur. Hann át nest-
ið sitt og fór svo niður að vatn-
inu til að fá sér að drekka. —
Hann hafði ekki glas eða bolla
að drekka úr og varð að halla
sér niður að vatninu. Og þá
missti hann öxina.
Drengurinn varð mjög hryggur
yfir þessu. — Hvað á ég nú að
segja pabba, þegar ég kem axar-
laus heim, hugsaði hann með sér.
Og svo fór liann að gráta.
— — — En það átti galdramað-
ur heima i vatninu. Þetta var
allra besti karl, og þegar hann
sá að drengurinn fór að gráta,
stakk hann hausnum upp úr vatn-
inu og sagði: — Af hverju ertu
að gráta?
— Eg missti bestu öxina hans
pabba mins i vatnið. Og nú þori
ég ekki heim! sagði drengurinn.
— Eg skal hjálpa þér, sagði
galdramaðurinn. Og svo kafaði hann
niður á botn og kom upp aftur með
gullöxi.
— Er þetta öxin þin? spurði
gíddramaðurinn.
—■ Nei, sagði drengurinn. — Öxin
mín var ekki úr gulli.
Þá kafaði maðurinn aftur og kom
upp með silfuröxi.
— Er þetta þá öxin þín? spurði
galdramaðurinn.
— Nei, sagði drengurinn. — Hún
var ekki úr silfri.
Loks kafaði hann i þriðja sinn,
og kom nú upp með járnöxi.
— Er þetta þá öxin þín? spurði
galdramaðurinn.
—- Já, þelta er hún! sagði dreng-
urinn og varð ógn ánægður.
— Þú mátt eiga bæði silfur- og
gullöxina og fara með þær heim,
sagði galdramaðurinn! Því að ég sé
að þú ert ósköp vænn drengur.
En það var til slæmur drengur,
sem átti heima skammt frá væna
drengnum. Og þegar liann sá að
væni drengurinn hafði fengið bæði
gullöxi og silfuröxi Jjá spurði liann
hvcrnig Jsað hefði atvikast. Dreng-
urinn sagði honum eins og satt var:
— Eg missti öxina mína í vatnið
og svo kom galdramaðurinn upp
og gaf mér axirnar.
— Eg skal svei mér reyna líka,
hugsaði strákurinn með sér. Og
svo fór liann inn í skóginn. En liann
hjó ekki við. Hann fór beint niður
að vatninu og fleygði öxinni út í.
Svo settist hann á bakkann og fór
að gráta, eða lést fara að gráta.
Galdramaðurinn, sem sat niðri á
botni sá þetta og vorkenndi drengn-
um, stakk upp liausnum og sagði:
- Af hverju ertu að gráta?
— Eg missti fallegu öxina mína
i vatnið! sagði vondi strákurinn.
— Vertu ekki að gráta af því, ég
skal lijálpa J)ér! Og svo kafaði liann
og kom upp aftur með gullöxi.
— Er þetta öxin þín? spurði
galdramaðurinn.
— Já, J)að er hún, sagði vondi
strákurinn og ætlaði að hrifst öx-
ina. En þá varð galdramaðurinn
reiður og sagði:
— Víst er það ekki öxin þín, þú
hafðir enga gullöxi.
Og svo fleygði liann gullöxinni
i vatnið og kafaði aftur og settist.
Vondi strákurinn grét og grét, en
enginn kom með öxina hans. Og
loks varð hann að fara heim axar-
laus.
Þegar hann kom lieim, spurði
pabbi hans hann hvar öxin væri.
Og strákurinn varð að segja lionum
upp alla söguna.
— Já, svona gengur það þegar
maður segir ekki satt! sagði pabbi
lians.
*****
Dátinn og afgreiðslustúlkan.
Danir gerðu oft grín að hinum
fáránlega aga í Jjýska hernum.
Þýskur hermaður var á innkaupa-
ferð um Kaupmannahöfn. Honum
varð gengið inn í eitt af stærri
verslunarliúsunum, og sneri hann
sér strax til stúlkunnar við upp-
lýsingaborðið. Eins og lög hans
gerðu ráð fyrir sló hann liælunum
saman svo að buldi í, rétti fram
liægri liandlegg og hrópaði: „Heil
Hitler! Hvar er skófatnaðardeildin?"
Stúlkan lét ekki standa á svar-
inu. Hún sló saman háuni hælum
sínum, rétti fram liægri handlegg
og sagði:
„Guð blessi konunginn og föður-
landið! Á fyrstu hæð til hægri.“
Mikið má, ef duga skal.
Það er sagt, að i ítalskri flutninga-
flugvél fyrir fallhlífarhermenn hafi
verið 13 menn, sem sé: 2 flugmenn
og svo tíu menn til að fleygja fall-
hlifarhermanninum út!
*****
Eðlileg spurning.
í einni af hinum þýsku UFA-
fréttamynda :— eða úhamyndum,
eins og þær voru kallaðar — sáust
menn vera að skipa upp matar-
birgðum úr þýsku skipi í danskri
höfn. Einn áhorfendanna hrópaði:
„Hversvegna í ósköpunum sýna þeir
myndina afturábak?"
Skrítlur
— Er það satt, sem félagi minn
þarna segir, að það sé ekki móðins
að ganga með harðan hatt þetta ár-
ið?
—■ Þarnc, sérðu, Þuríður, ennþá
hefirðu glegmt að sauma saman
vasann minn. ... !
Cæsar og Mussolini.
Þegar Ítalía fór í stríðið eftir
uppgjöf Frakka, á Mussolini að hafa
tekið sér í munn orð Cæsars, of-
urlítið breytt: „Eg kom, þegar ég
sá, að þeir sigruðu.“
*****
—- Voruð það þér, sem auglýstuð
eftir sterkum manni?
— Þarna sérðti, að það cr hœgt c/i
hafa gagn af þvi að æfa sig á píanó.
Faðir: — Notaðir þú bilinn i
gærkveldi, sonur sæll?
Sonur: — Já, ég ók með strák-
unum inn að ám.
Faðir: — Viltu segja strákunum,
að þeir liafi gleymt varastiftinu
sínu i bílnum.