Fálkinn - 22.11.1946, Page 2
2
FÁLKINN
r
Utför Jónasar skálds Hallgrímssonar
Ljósm.:
Fúlkinn.
Útför Jónasar skálds Hallgríms-
sonar fór fram á Þingvöllum laug-
ardaginn 16. nóvember s.l. og var
sú athöfn hin hátíðlegasta.
Þegar leið að hádegi á laugar-
daginn, fóru bifreiðar að streyma
til Þingvalla, mest frá Reykjavík,
en líka víða að. Þingvallanefnd
hafði boðið allmörgum gestum að
vera viðstaddir útförina, en auk
þess kom margt fólk.
Veður var gott þennan morgun,
kalt og stillt, úrkomulaust, en sól-
far litið.
En þegar bifreiðar gestanna
komu á brún Almannagjár, létti
skyndilega i suðurlofti og sól tók
að skína. Bjart var norður á Súl-
ur og Ármannsfell, en mistur nokk-
urt til austurs og norðausturs.
Skjaldbreiður sást þó ekki. En á
næstu mínútum eftir hádegið birti
mjög skyndilega í lofti. Og nú kom
fjallið Skjaldbreiður, sem Jónas
liafði ort um sitt ódauðlega kvæði,
í ijós í allri tign sinni, baðað geisl-
um nóvembersólarinnar. Gjár og
vellir skörtuðu hvítum hrimskrúða
en sólin glampaði á vatninu. —
Betur gat Þingvöllur ekki fagnað
Jistaskáldinu góða.
Útförin hófst 'með minningar-
athöfn i Þingvallakirkju. Kirkjan
hafði verið skreytt mjög smekk-
lega með blómum. Kista Jónasar
stóð ú gólfi framan við altari, blóm
um skreytt. Það var eikarkista,
falleg en látlaus.
Þingvallakirkja er lítil og kom-
ust ekki nærri allir inn, þótt hvert
sæti væri skipað. Stóð því margt
manna framan við kirkju, en þar
hafði verið komið fyrir gjallar-
borni, svo að þeir, sem þarna voru,
gátu vel fylgst með því, sem fram
fór inni í kirkjunni.
Þarna flutti séra Bjarni Jónsson
vígslubiskup ræðu, en áður en hún
hófst söng Dómkirkjukórinn „Allt
eins og blómstrið eina.“
Séra Bjarni talaði um það hví-
lik leiðarstjarna Jónas og ljóð lians
hefði verið þjóðinni, og hversu
samgróinn liann hefði verið innsta
eðli íslands, íslenskri náttúru og
íslenskri þjóðarsál. Enn um ó-
Síðan var kistan borin úr kirkju
og gerðu það alþingismenn. Voru
það: Ólafur Thórs forsætisráðherra,
Jónas Jónsson, fyrrverandi formað-
ur ÞingVallanefndar, Sigurður Krist-
jánsson núverandi formaður nefnd-
arinnar, forsetar alþingis: Jón
Pálmason, Barði Guðnrundsson,
Þorsteinn Þorsteinsson og 1. þing-
maður Eyfirðinga, Bernharð Stef-
ánsson.
Alþingismennirnir báru kistuna
austur fyrir kirkjugafl, cn þar tóku
við henni félagar úr Félagi islenskra
rithöfunda og náttúrufræðingar.
Þessir báru: Guðmundur G. Haga-
lín, Jakob Xhorarensen, Eriðrik
Brekkan, Guðmundur Daníelsson,
Árni Friðriksson, Ingólfur Davíðs-
son, Sigurður Pétursson og Þór
Guðjónsson.
Kistan var nú borin í Þjóðargraf-
reitinn, en þar hafði verið tekin
gröf hægra megin við stíginn, sem
liggur austur reitinn, andspænis
gröf Einars .Benediktssonar. Var
kistan nú látin síga í þessa gröf.
Lúðrasveit Reykjavíkur lék, en sið-
an söng Dómkirkjukórinn „Faðir
andanna."
Fr/i. á bls. lb.
komnar aldir munu íslendingar
hlýða á rödd hans. Svo mundi fara
um liann og hann kvað sjálfur um
látinn vin sinn: „Lengi mun lians
lifa rödd.“ — „Það er oss öllum
hollt að ganga í skóla hjá Jónasi
Hallgrímssyni“, sagði séra Bjarni.
Að lokum bað vígslubiskupinn
fyrir íslandi og íslensku þjóðinni.
Að ræðu séra Bjarna lokinni söng
Dómkirkjukórinn „Víst ertu, Jesú
kóngur klár.“
Herdís Maja Brynjólfsdóttir, Lauga-
Guðrún Jónsdóttir, Suðurgötu 28, veg 68, hefur 22. þ.m. kennt að
Hafnarfirði, verður 70 ára 23. þ. m. sníða i 25 ár.
Guðmundur Magnússon sjómaður,
Veslurgötu 69, verður 70 ára 26.
þ. m.