Fálkinn - 19.12.1947, Page 33
JÓLABLAÐ FALKANS 1947
JÓLAFE RÐI N
LEIKREGLUR : Tvíburarnir með pabba þeirra or mömmu eru boðnir
til frænda og frænku um jólin, langt upp í sv.eit.
Og nú er komið ósvikið jólaveður, en snjórinn og ísinn gerir erfitt fyrir
um ferðalagið. Tvíburarnir og foreldrar þeirra lenda í ýmisskonar vandræð-
um, en taka þeim þó með besta jólaskapi. Og eins verðum við að gera núna,
þegar við förum í ferðina.
Við notum einn tening, og hver þátttakandi hefir sinn einseyring.
Við höldum af stað frá nr. 1 — við erum að kaupa jólagjafir og afhendum
5 piparhnetur hver. Þetta eru verðlaunin handa þeim, sem fyrstur kemst á
áfangastaðinn, nr. 55.
5. Spilarinn má færa sig á nr. 10. — 8. Lestinni hefir seinkað um tvo tíma.
Spilarinn má bíða tvær uinferðir. — 12. Spilarinn færir sig á nr. 17. —
16. Járnbrautin föst í snjónum. Spilarinn situr yfir eina umferð.
19. Spilarinn má kasta aftur. — 22. Lestin er farin. Spilarinn flytur til baka
á nr. 2. — 25. Spilarinn má færa á 31. — 30. Ferjan föst í ís. Maður verður
að fá töluna 2, 4 eða 6 til að komast áfram. — 33. Spilarinn má fara á 36. —
35. Fjölskyldan er komin á stöðvarbæinn. Og meðan bcðið er býður stöðvar-
stjórinn upp á kaffi og kökur (maður situr yfir eina umferð). — 38. Spilar-
inn má færa á 41. — 40. Bifeiðin situr föst í snjó. Verður að borga 5 pipar-
hnetur fyrir að láta grafa sig út. (Það er lagt við verðlaunasjóðinn). — 43.
Gefur aukakast. — 47. Ekkert farartæki kemst áfram í bylnum — við verðum
að halda áfram gangandi. Og í næstu þremur köstum eru 2 dregnir frá töl-
unni, scm teningurinn sýnir. Sýni teningurinn 1 stendur maður kyrr. — 50.
Spilarinn fær að kasta aftur. — 55. Sá, sem kemst fyrst á nr. 55 hefir unnið
og fær allar piparhneturnar í verðlaun. Gjöld sem koma síðar, vegna nr.
40. ganga til þess næst fremsta.
GÓÐA FERÐ !