Fálkinn - 19.12.1947, Blaðsíða 47
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1947
45
Péturskirkja.
færara ferðafólki eru setstir að
við tjöld sín. Gamall sjómaður,
sem er í förinni hefir tæmt svarta-
dauðaflöskuna sína strax og við
komum á áfangastað í dag, og
hefir síðan legið blindur inn í
tjaldi sínu, en sæll á sína vísu.
Eg undraðist hans ferðalag. Virð-
ist næstum ofrausn að aka norð-
an frá Skjálfanda fram í Herðu-
breiðarlindir til þess að drekka sig
blindan af svartadauða.
Það kvöldar. Sólin hverfur bak
við fjöllin í vestri. Hljóðlátt húm
júlínæturinnar breiðist yfir öræf-
in. Hægur sunnanblær hvíslar í
víðilaufinu og bærir mjúklega
blöðin á hvannstóðinu. Ferðafólk-
ið safnast saman umhverfis bál
sem kynnt er með sprekum og
gömlum hvannanjólum. Sögur eru
sagðar og kvæði sungin. Óþving-
uð og prúð glaðværð ríkir í hópn-
um.
Eg yfirgef bálið og ferðafélag-
ana, og leita kyrrðarinnar í þétt-
um víðirunna í hraunjaðrinum.
Eg get ekki hrundið úr huganum
áhrifunum, sem ég varð fyrir í
dag í kofa Fjalla-Eyvindar. —
Hugsunin um ömurleg örlög hins
sakfellda útlaga, sem hér barðist
um skeið fyrir lífi sínu, við óblíða
náttúru, meinar mér að gerast
þátttakandi í gleðskap ferðafélag-
anna. 1 huganum fylgi ég Eyvindi
yfir öræfin er hann slapp úr haldi
í Reykjahlíð, uns hann tók sér
hér vetursetu. Eg sé hann hvílast
ferðlúinn og sárfættan í mjúkum
mosabeði hér við Lindirnar. Eg
sé hann einnig berjast hér við
hríð, myrkur og hörku skamm-
degisnáttanna. — En það er önn-
ur saga, sem ekki verður sögð hér.
Það dimmir. Skærar stjörnur
tindra á bláhvolfi himinsins. Sunn-
anblærinn hverfur. Köld nótt rík-
ir. Bálið er kulnað. Ferðafólkið
hverfur til náða í tjöldunum. Eg
hristi af mér martröð hugsunar-
innar um kalda og soltna útlag-
ann, og hverf inn í bílinn þar sem
ég gisti í nótt. Um leið og ég sveipa
mig teppinu og leggst útaf, sé ég
hvar einn ferðafélagi minn, sem
sefur í næsta bíl, og þótt hefir of
þröngt að liggja í sætinu, hefir
fundið það snjallræði að stinga
fótunum upp að hnjám út um op-
inn gluggann. Þarna birtist hinn
dásamlegi hæfileiki mannanna til
að laga sig eftir umhverfinu enn
þá í einni nýrri mynd.
Um það bil sem mér hverfur
vökuvitundin heyri ég að nokkr-
ir ferðafélagar okkar, sem geng-
ið hafa á Herðubreið eru að koma
heim í tjaldstaðinn.
Um sólarupprás næsta morgun
rís ferðafólkið af hvílubeði, snæð-
ir morgunverð og býst til heim-
ferðar. Hrollkalt er, því nokkurt
frost hefir verið um nóttina. —
Herðubreið er sveipuð léttum
hvítum þokuslæðum, sem eyðast
smátt og smátt fyrir ylgeislum
sólarinnar.
Eg lít yfir Herðubreiðarlindir
að skilnaði. Blátærar streyma
þær og hjala eins og þegar við
komum hingað. Hvannastóðið
speglast í fleti þeirra. — Innan
stundar mun órofin öræfaþögnin
ríkja hér eins og áður en við
komum. Merki heimsóknar okk-
ar sést þó glöggt. Troðningarnir
í grasinu benda ljóst á það sem
verða mun ef straumur ferða-
fólks leggst hingað. Ef til vill er
það fyrir bestu, að Jökulsá teygir
arm sinn æ ákveðnar hér vestur
með hraunjaðrinum, norðan við
lindirnar, og torveldar ferðirnar
þangað. Máske er meiri ástæða
að fagna þeirri friðunarráðstöf-
un náttúruaflanna, heldur en að
harma torfæruna.
Tjöldum er svift og bílarnir
settir í gang. Innan lítillar stund-
«
ar erum við komin heilu og höldnu
og höldum yfir Jökulsárkvíslina
og aksturinn norður sandana
hefst.
Það hlýnar. Loftið yfir söndun-
um hitnar. Tíbráin bylgjast og
titrar allt umhverfis. Ævintýrar-
legar hyllingar hefjast norður á
söndunum, Skógar, vötn, skip á
höfum úti. Blómleg býli, hjarðir
kvikfénaðar. Allt ber þetta fyrir
augu vegfarandans eins og leift-
urmyndir. Móbrúnir rykstrókar
teygjast hátt í loft upp, þar sem
loftið hefir hitnað mest yfir sönd-
unum. Alltaf ber eitthvað nýtt
fyrir augun, raunverulegt eða
blekkingar.
Við berumst heimleiðis til dag-
legra starfa. Sæl og glöð erum
við yfir því að hafa fengið að
njóta íslenskrar öræfadýrðar, þó
F'jalla-Bensi kemur úr Eyvindarkofa.
að ekki væri nema stutta stund.
Undir bílsætinu varðveitti ég eina
eyrarrós, sem ég hafði grafið upp
með rótum, og ætla að freista
að gróðursetja í garðinum heima.
Framtíðin sker úr því hvernig hún
unir fóstrinu út við hafið.
Við komumst heil á húfi yfir
Lindá hjá Lindhorni og ökum
þaðan norður eftir sömu slóð og
við komum í gær. Þegar við nálg-
umst Grafarlönd er ákveðið að
leggja krók á leiðina og koma þar
við. Við staðnæmdumst hjá all
stórri tjörn sem er umvafin grón-
um bökkum. Þar eru ljósmyndir
teknar af öllum hópnum. Síðan
dreifist hópurinn út í hraunjaðar-
inn. Eg setst ásamt einum sam-
ferðamanninum í gróna laut
skammt frá tjörninni. dag er
hér ilmur úr grasi og faðmlag
jarðarinnar hlýtt og mjúkt. Máske
var það þó hér, sem Grafarlanda-
Björn lagðist til hvíldar á freran-
um, er hann týndi lífi í Grafar-
löndum um hávetur fyrir manns-
aldri síðan.
Og enn velta hjólin heimleiðis.
Næsti áfanginn er í Hrossáborg-
arlindum. Þar setjumst við að
snæðingi í brennheitum sandin-
um. Að því loknu er ekið að Pét-
urskirkju við jaðar Nýjahrauns.
Péturskirkja er sæluhús, reist til
afnota fyrir f járleitarmenn úr Mý-
vatnssveit fyrir forgöngu Péturs
Jónssonar bónda og gestgjafa í
Reykjahlíð, og ber sæluhúsið nafn
hans. Ekki veit ég hvort þar eru
nokkurn tíma sungnar helgar tíð-
ir, svo sem draga mætti af nafn-
inu, en fullyrða má að margar
hljóðlátar þakkargjörðir færa
hugir þreyttra manna er þeir ná
þarna í skjól, kaldir og hraktir
eftir erfiða dagleið á fjöllum. —
Gestabók er í sæluhúsinu, sem í
er skráður margskonar fróðleík-
ur bæði í bundnu og óbundnu
máli.
Leiðin sækist vel. Brátt erum
viðstödd á Námaskaði. Nú ligg-
ur Mývatnssveit framundan eins
og útbreitt landabréf. Blá hita-
móða titrar yfir sveitinni. 1 því
ljósi eru allar línur mýkri en ella.
Við horfum hugfangin yfir hið
svipfagra og tilbreytingaríka hér-
að, og okkur skilst að rammar
taugar hljóti að tengja hvern þann
mann eða konu, sem vaxin er
upp í faðmi þessarar fjallabyggð-
ar, við föðurtúnin.
Þegar við ökum suður með Mý-
vatni að austan, sveimar rykmý-
ið yfir víkum og vogum i þéttum
skýjum. Stundum ókum við í gegn
um mökkinn, sem dynur á bílrúð-
unum eins og haglél.
Bílarnir erfiða upp brekkuna
norðan við Helluvað. Eyrarrósirn-
ar á barmi farðakvennanna eru
nú orðnar hnipnar og fölnaðar
En minningin um dýrðlegan dag í
skauti íslenskra háfjalla mun
ekki blikna í brjóstum þeirra,
sem öræfin hafa veitt blíðu sina
jafn örlátlega og okkur, sem nú
hverfum heim til daglegra starfa
Rafvélaverkstæði
Halldórs Ólafssonar
Njálsgötu 112 — Sími 4775
Framkvæmir:
Allar viðgerðir á rafmagns-
vélum og tækjum.
Rafmagnslagnir í verksm.
og hús.