Fálkinn


Fálkinn - 03.12.1948, Side 3

Fálkinn - 03.12.1948, Side 3
FÁLKINN 3 Samsongur Tónlistarlélagskórsins Vinsældir Twnlistarfélagskórsins fara sífellt vaxandi, enda hefir hann mörgum góðum söngvurum á að skipa, og söngskemmtanir þær, er hann efnir til, eru jafnan hinar á- gætustu. — Ilinn 25. nóvember söng kórinn i Austurbæjarbió, og á söng- skránni voru mörg sömu lögin, sem kórinn söng á norræna söngmótinu í Kaupmannahöfn síðastliðinn júní- mánuð, en þar gat hann sér góðan orðstír. Einsöngvarar með kórnum að þessu sinni voru Guðmunda Elias- dóttir og Sigurður Skagfield. Var þeim báðum vel fagnað. Söngstjóri var Victor Urbantschitsch. LEÐURBLAKAN TÓK BLÓÐ. Átján mánaða gömul telpa i Aix- le-Bains i Frakklandi fór allt í einu að horast, og fékk hún þó eins mik- ið að eta og hún vildi og læknir- inn gat ekki séð að neitt gengi að henni. Þetta var ráðgáta. En svo var það eitt sinn, þegar hjónin, for- eldrar telpunnar, komu heim úr ferðalagi, að þau fundu dauða leð- urblöku á borðinu í barnaherberg- inu. Var nú farið að athuga þetta og þá kom upp úr dúrnum, að leð- urblakan liafði lireiðrað um sig í skúmaskoti i herberginu, og á nótt- inni þegar barnið svaf hafði hún sogið blóð úr barninu, án þess að foreldrarnir yrðu þess vör. Undir eins og leðurblakan var dauð fór barnið að braggast aftur og er nú i eðlilegum holdum. Frægur fuglasafnari. — Meðal farþeganna d skipinu „Amer- Liaquat Ali Khan forsætisráð- ica“ frá Sonthampton nýlega herra Palcistan, sem tekur þátt var Peter Scott, sonur suður- í samveldisstefnunni í London skautsfarans fræga. Hér sést ásamt forsætisráðherrum allra Scott með einn fuglinn sinn, hinna samvehlislandanna. rússneska gæs með rauða bringu. Korfu-málið fyrir dómstólnum í Haag. — Fgrir framan kortið af Korfu-sundi, þar sem ensku herskipin rákust á tundurdufl og sukku, sést sendiherra Albaníu í París, Kahreman Ylli, og sir Hartley Shawcross, sem flytur málið fyrir alþjóðadóm- stólnum. Á afmæli byltingarinnar. — Á afmæli rússnesku byltingarinn- ar Iiafði rússneski sendiherrann í New Delhi í Indlandi há- tíðlega móttökuathöfn, þar sem fjöldi háttsettra gesta kom. Hér sjást nokkrir þeirra: Rússneski sendiherrann í Indlandi, Novikov (t. h.), Rajgopalacliari landstjóri (i miðið) og sendi- ráðsritarinn (t. v.), sem er í þann veginn að færa landstjór- anum gjöf frá sendiherranum. Dr. Paul Miiller, svissneski vís- indamaðurinn, sem hefir hlotið nobelsverðlaun í læknisfræði og lífefnafræði. Hann fann upp DDT skordýraeitrið. Mao-Tse-Tung, kínverski kom- múnistaforinginn, sem vann úr- slitasigrana í Mansjúkúo. Peter Zenkl, fyrrum varaforsæt- isráðherra Tékka, hefir verið kjörinn formaður í ráði hinn- ar frjálsu Tékkóslóvakíu, sem hefir verið stofnað í Bandaríkj- unum af ýmsum frægum land- flóttamönnum. Japanskir stríðsglæpamenn dæmdir. — Japönsku stríðs- leiðtogarnir með Tojo, fyrrver- andi forsætis- og hermálaráð- herra, í broddi fylkingar, hafa nú hlotið dóm eftir löng réttar- höld í Tokio. Tojo, sem var dæmdur til dauða, sést hér til vinstri við eina síðustu yfir- heyrsluna. Ennfremur sjást Oka aðmiráll og Araki hershöfðingi en hann fékk lífstíðarfangelsi.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.