Fálkinn


Fálkinn - 03.12.1948, Page 5

Fálkinn - 03.12.1948, Page 5
FÁLKINN 5 Flugferðir milli Reykjavíkur- Prestwick og Kaupmannahafnar Frá og meÖ næstkomandi mánaðamótum verður flugferðum vorum, á flug- leiðinni Reykjavík—Prestwick—Kaupmannahöfn hagað svo sem hér greinir: Frá Reykjavík til Prestwick og Kaupmannahafnar ÞRIÐJUDAGA: frá Reykjavík . .. . kl. 08,00 lil Prestwiclt . . . . kl. 13,30 frá Prestwick . . . . kl. 13.30 til Kaupmannahafnar . .. . .. . kl. 18,30 Frá Kaupmannahöfn og Prestwick til Reykjavíkur MIÐ VIKUDAGA: frá Kaupmannahöfn .......... kl. 09.30 til Prestwick .............. kl. 12,00 frá Prestwiclc ............. kl. 13.30 til Reykjavíkur ............ kl. 17.00 Millilandaflugvél Flugfélags íslands h.f., „Gullfaxi“ mun fara aðra hvora viku en önnurhvor millilandaflugvél Loftleiða „Geysir“ eða „Hekla“ mun fara hina vikuna. Loftleiðir munu annast ferðirnar frá Reykjavík 7. og 21. desember, en Flugfélag Islands h.f. ferðirnar 14. desember og 4. janúar 1949, o. s. frv. Engin ferð verður milli jóla og nýárs. Farseðlar hvors félaganna gilda með liinu og farþegar, sem fara frá Reykja- vik geta pantað farið hjá hvoru félaganna, sem er án tillits til hvort þeirra ann- ast ferðina. Afgreiðslu erlendis annast: / Kaupmannahöfn: Det Danske Luftfartselskab, A/S., Dagmai’hus. / Prestwick: Scottish Airlines, Prestwick flugvelli. Flugfélag íslands, h.f. Lækjargötu 4. Símar 6607, 6608, 6609. Loftleiðir, h.f. Lækjargötu 2. Símar 2469, 6971, 1485. Bókafregn Victor Hugo: Notre Dame de Paris í íslenskri þýðingu Björgúlfs Ólafssonar: Maria- kirkjan í Paris. Útgefandi: Hf. Leiftur. Victor Hugo var sem hvirfilbylur i samtið sinni (1802—1885). Hann var hataður og dáður, hafinn til skýja og talinn goðum jafn. Gaman er að minnast þess fyrir Norður- landabúa, að Hugo hefir verið kall- aður Björnson Frakklands og Björn- son hefir einnig verið nefndur Vict- or Hugo Noregs. Um marga áratugi var Hugo foringi og samviska hinna mörgu lærisveina sinna og aðdá- enda, æðsti prestur fjölmenns safn- aðar. En samtímis var muldrað í hálfum hljóðum af skuggavöldum sannra bókmennta að Victor væri mesta flón Norðurálfunnar, liégóm- legasta mannskepna i allri verald- arsögunni. Alla hans ævi stóð styr um hann, og alltaf stóð hann sjálf- ur í baráttunni. „Vesalingarnir“, „Maðurinn, sem lilær“, „Starfendur liafsins" og „Notre Dame de Paris“ (Maríukirkjan) voru og eru engu síður barátturit en skáldverk. En liann hamraði efniviðinn í eldi lirifningar sinnar og heilagrar bræði svo að úr varð ósvikin list. Hann livítfágaði efnið í flugi andans og veitti þvi gildi og gagnsemi vegna mjög alhliða og haldgóðrar þekking- ar. Ást á list og byggingarstil, stjórn málaskoðunum, samúð mcð öllu frummannlegu, blossandi hatur á jjrælkun og kúgun, oddhvöss orms- tunga, göfugt hjartalag, ólgandi og ofsafengnir skapsmunir voru eigin- leikar, sem einkenna skáldverk Victor Hugo. Nægtabrunnurinn er svo djúpur, fossaföllin svo undra- verð, að ckkert annað en óbrigðult vald lians ó efninu þrýstir þvi inn i fastmótuð og fögur form listar- innar. Notre Dame de Paris, sem ýmsir bókmenntafræðingar telja fræðileg- ustu skáldsögu hans, er svo efnis- niikil og ofviða, að nægja mundi öðrum i margar bækur. Með örlátri hendi gefur skáldið, varpar á blöð sögunnar ofurgnótt hugarsýna og hugarmynda, sagnfræðilegri þekk- ingu, svo að auðlegðin flæðir yfir sérhverja blaðsiðu og sérlivert at- vik opnar innsýn til allra hliða, og hinn treggáfaðasti lesandi verður nauðugur viljugur að fylgjast með og gerast innlífur efninu þar til hann sér Paris, eins og liún var á 15. öld, ljóslifandi fyrir liugarsjón- um. Skáldskapuc sögunnar er hin ein- kennilega glima eða sviftingar, milli fegurðar og ljósleika en fulltrúar þeirra eiginda eru Esmeralda og Quasimodo, unaðsfagra sígauna- stúlan, og vanskapaða ófreskjan, sem hafði það starf að hrista klukku- strengina i turni Maríukirkjunnar. Á þrettánda i jólum á að velja „gervipáfa“ samkvæmt gamalli Par- ísarvenju. Quasimodo verður þá reikað inn í sal ráðhússins. Þar er verið að leika launlielgar-sjónarspil vegna hjónahands Margrétar prin- sessu frá Flandern og franska erfða- prinsins. Leikurinn liefir farið út um þúfur vegna óhljóða og aðgerða stúdents frá Parisarháskóla. Kólga og prettir gera loftið lævi blandið, og liatur og lymska eru eldkveikju- efni atburðanna. Og hugkvæmni sam kundunnar finnur upp á þvi að vælegnast sé að velja gervipáfa kom- andi árs umsvifalaust. Samkeppnin liefst. Hver getur sett á sig glanna- legasta og djöfullegasta svip? Quaso- imodo sigrar, og fagnaðarlætin eru geysileg, þvi að skaparinn og gjaf- urinn allra góðra liluta hafði með leikandi leikni gefið honum það smetti, sem keppinautum hans var ofurefli að Hkja eftir. Leikur hans var auðveldur. Hann kom til dyr- anna eins og hann var klæddur. Allt er á ferð og flugi, svið sög- unnar er iðandi af lífi. Karlar og konur koma og hverfa svo hundr- uðum skiptir. Gervipáfinn fer í sig- urför um borgina, liirð lians og fylgismenn eru stúdentar, þjófahyski, drykkjusvolar og gleðikonur frá strætum og gatnamótum. En á Gréve- torginu mætir þessi friða fylking Esmeröldu. — Dýrið og fegurðin mætast. Og meðan hátíðin stendur sem liæst, kenmr erkidjákni Mariukírkj- unnar, Claude Frollo, til skjalanna. Og hið damatíska sprengiefni sög- unnar, ástríðubálið, þjáníngin, ham- ingjan, harmleikurinn, hyrlast í ó- töfrasveigum umhverfis þcssar þrjár teljandi persónur: Quasimodo — Esmeröldu — Claude Frollo. En baksviðið er menningarsaga — 15. öldin ljóslifandi á skuggatjaldi, en myndirnar eru manneskjur. Erkidjókninn er þegar í stað sann- færður um, að sígaunastúHr.an sé verkfæri djöfulsins, galdrakvendi, en hinn vígði þegn fær l>ó ekki staðist töfra fegurðar henmar og brennur allur í logandi ástareldi. 1 þeim eldi fuðrar upp siðvendnl hans og siðgæði, liinn prestslegi sjálfsagi. En Quasimodo, v:*nskapn- ingurinn hræðilegi, öðlast fagra sál, sundurtættur að vísu vegna mis- kunnarleysis mannlifsins, cn hið hið innra gull skin þó oft í gegnum hið hrjáða og ófagra gervi.. Esmer- alda hin fagra kveikir eld í hjörtum karlmannanna, er dáð og dýrkuð, þjáningar og sorg leiðir hún yfir aðra og er dæmd fyrir galdra. At- burðaröðin er hröð, máluð sterkum litum, gagnvirk og fjölskrúðug. Hár- fin og hrífandi list og nokkuð lang- dregnar mannlýsingar skiptast á, þar sem skammt er milli hláturs og grál- urs. Stundum er hrifningin mest vegna hinnar skrúðmiklu listar, stundum heyrist mannlegt hjarta slá á blöðuin sögunnar. Þannig er skáldsagan Mariukirkjan í París. Mariukirkjan hefir verið lesin upp til agna svo að skiptir hundruð þúsund eintaka um viða veröld. Það verður ekki mikið eftir af þessum fáu eintökum. sem Leiftur h.f. hef- ir gefið út á islensku á þrettándan- um 1949. Eiríkur Albertsson. Egils ávaxtadrykkir

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.