Fálkinn - 03.12.1948, Side 7
FÁLKINN
7
Berlín í öryggisráðinu. — Til vinstri sést forseti ráðsins dr.
Bramiiglia, sem lagði mikið kapp á að koma á sættum í Ber-
línardeilunni. Til hægri Evatt utanríkisráðherra Ástralíu, for-
seti UNO.
Sir William Slim hefir verið
skipaður forseti breska herfor-
ingjaráðsins eftir Montgomery
marskálk. Slim er 57 ára og
vann sér frægð i styrjöldinni í
Burma. Eftir stríðið fár hann
i'ir hernum og starfaði að þjóð-
nýtingu ensku járnbrautanna.
De Laítre de Tassigny, hinn
franski hershöfðingi lir síðustu
styrjöld hefir verið skipaður
hæstráðandi yfir landher Vest-
ur-Evrópusambandsins, sem að
svo stöddu nær til Belgíu, Hol-
lands, Luxemburg, Frakklands
og Bretlands.
Fjársöfnun til Berlínarbúa. — Jafnvel úlfaldinn úr dýragarð-
inum í Frankfurt a. M. tók þátt í tveggja daga fjársöfnun, sem
gerð var í borginni til þess að ná saman fé handa þeim 2.5
milljón Berlínarbúum, sem líða nauð vegna samgöngubanns
Rússa. Safnað var bæði peningum, mat og skömmtunarseðlum.
Til hægri:
Nýtt skip. — Bandaríkjamenn hafa smiðað 9100 smálesta skip
af sérstakri gerð, ætlað til þess að skjóta frá því eldflaugum
upp í háloftin með ýmis mælingartæki. Flotamálastjórnin
gerir sér vonir um aö hægt verði að nota þetta skip jafnframt
til þess að skjóta éldflaugasprengjum. Hefir skipið meðferðis
nokkrar V—2 eldflaugar, sem vega Ui smálestir.— Á efri
myndinni sést hlaupið, sem eldflaugunum er skotið úr. En
að neðan skipið. Það heitir „Norton Sound“.
Winston Churchill, sem er for-
maður enska íhaldsflokksins,
hefir fengið bendingu um það
í „Simday Times“ að hleypa
yngri kröftum að formennsk-
unni. Churchill vinnur nú að
stríðsbók sinni, senx verður um
tíu bindi.