Fálkinn


Fálkinn - 21.10.1949, Blaðsíða 4

Fálkinn - 21.10.1949, Blaðsíða 4
4 FÁLKINN SUMIR hafa tamið sér þann öfug- snáðahátt í liugsun, að láta sér finn- ast, að allt muni liafa verið hetra i gamla daga en nú. „Þá var nú gott að ]ifa!“ segir það. En það gleymir al- veg 'live fólk varð að liafa margfalt meira fyrir lífinu þá en nú, og hve varnarlaust það stóð uppi gegn sjúk- dóinum og landfarsóttum. Þá þótti bráður bani sjálfsagður, ef sumir sjúkdómar gengu sem enginn liræð- ist riú. Það er ekki langt siðan líftrygg- ingaruniboðsmennirnir liöfðu þau vopn á reiðum höndum, sem nú eru orðin bitlaus. Væri einhver tregur til að líftryggja sig var ekki ann- ar vandinn en að minna liann á eittlivert nærtækt tilfelli af lungna- bólgu, sem hafði lagt vin lians í gröfina fyrir nokkrum árum. Þvi að enginn var öruggur fyrir þeim vá- gesti, hversu heilsugóður sem hann var. En siðan súlfalyfin komu íil sög- unnar hræðist enginn lungnabólg- una. Og tryggingarsalar nútímans nota önnur vopn en hræðslu við sjúkdóma. Þeir nefna t. d. allar slys- farirriar. Það var árið 1934 scm Þjóðverj- inn Domagk fann fyrsta sufalyfið, en nokkur ár liðu þar til það var svo þaulreynt að það féklc hag- nvta þýðingu. Eiginlega eru ekki nema tiu ár síðan lungnabólgan missti vigtennurnar við tilkomu sulfalyfjanna. En þó eru margir bún- ir að gleyma því nú þegar, liver vá- gestur hún var. Læknavísindin hafa ekki unnið minni sigra á ýmsum öðrum svið- um. Á síðustu fimmtíu árum hafa þau fundið varnir gegn fjölda ann- ara sjúkdóma, sem hirtu þúsundir mannslífa á hverju ári, svo sem barnaveiki, stjarfa, mýraköldu, sára- sótt og heilahimnuhólgu. Og fólk hefir fengið nýja skoðun á eðli þess- Skurðlæknar nútimans rúðast á mein heila og hjurtna og vinna sigur á þeim. Hér sést aðgerð, sem fjöldi lœknaiiema horfir á með mikilli at- hygli. það líka mikla furðu að einstaka menneskja var svo gerð að það steinleið yfir hana ef hún kom nærri ketti. Fína fólkið kallaði þetta „óeðlilegt sálnæmi“. En i rauninni stafar þetta af tilfinninganæmi og ofnæmi gegn kattarhári i senn. Aðr- ar tegundir ofnæmis eru astma, eksem og sár i munni eftir að hafa drukkið mjólk eða étið jarðarber, rækjur, kartöflur o. fl. Eða verkir og ógleði eftir að hafa snert við ull, káksjúki, nikkel, leðri eða því líku. Talið er að tíundi hver maður hafi ofnæmi i einhverri mynd. Þegar sjúklingur kemur til of- næmi-sérfræðings teiknar liann munstur á bakið á honum •— 30—40 smáreiti. Hann stingur nálarbroddi í hvern reit og á nálarbroddinum eru ýmiskonar efni, blómaduft, iriél, hár, súkkulaði, fiskur o. s. frv. Eftir nokkrar mínútur sér læknirinn hvaða efnið liefir haft áhrif — hvaða efni sjúklingurinn er ofnæmur fyrir. Og svo kemur lækningin: 12—15 spraut- anir með mótverkandi blóðvatni. Læknavísindunum hefir ekki tek- ist að vinna bug á öllum tegundum ofnæmis, en hundruðum þúsunda af fólki hefir þó verið hjálpað. T. d. fólk sem þjáist af astma, eksemi, ýmiskonar kvcfhólgum, höfuðveiki og öðrum kvillum. Og um allan heim er unnið að því á rannsóltna- stofum að finna eitt lyf, sem dugi gegn öllum legundum ofnæmis, í stað einstaks meðals við hverju af- brigði. Oft hafa menn þóst liafa fundið slikt allsherjarlyf, en við nánari rannsókn liafa þau ekki reynst al- gild. En vísindin gefast ekki upp. Og einn góðan veðurdag þarf fólk ckki að óttasl neina tegund ofnæmis. Önnur grein læknavísinda sem mik- i’ð hefir verið starfað að undanfarið er rannsókn myglusveppanna.. Árið 1940 tókst ensku vísindamönnunum BARATTAN GEGN SJUKDOMUNUM „Eins og nokkur læknir geti ráðið við það?“ segir fólk stundum. En sá sem vill hugsa málið betur kemst að raun um að það er furðu margt, sem læknarnir geta ráð- ið við. — Þetta má siá af eftzrfarandi grein. ara sjúkdóma. Um 1800, þegar bar- áttan gegn flestum alvarlegum sjúk- dómum var árangurslaus þrátt fyrir allar tilraunir vísindanna, myndað- ist smátt og smátt skoðun meðal lækna og vísindamanna. Mannslik- aminn er svo ófullkominn að liann stenst ekki ýmsa sjúkdóma og fer þess vegna halloka fyrir. þeim. í lækningabókum og fræðiritum voru þessir sjúkdómar blátt áfram kallað- ir „ólæknandi". Og svo var ekki ineira um það að segja. Læknir nútímans er á annari skoðun: Ólœlaiandi sjúkdómar eru ekki til! Einn góðan veðurdag hafa læknavisindin fundið meðul gegn öllum sjúkdómum, jafnvel gegn berklaveiki, krabbameini, mænuveiki og gigt. Nú þegar hafa þessir sjúk- dómar verið læknaðir í þúsundum manna, og vísindum fleygir fram. Hins vegar eru læknarnir ekki eins vongóðir um að geta sigrast á meðfæddum kranldeik fólks, svo sem arfgengri geðveiki eða blindu. En vísindin munu smát og smátt yfir- buga alla aðkomna sjúkdóma, ef læknanna er vitjað í tæka tíð. Framfarir læknavísindanna koma í öldum, eins og allra annara vis- inda. Þessa stundina er það ein greinin, sem fjöldi uppgötvana ger- ist í.— næst kemur annað nýtt svið. Um þessar mundir eru t. d. gerðar margar uppgötvanir viðvíkjandi því, sem nefnist allergi, og kallað hefir verið ofnæmi á íslensku. Þetta lýsir sér í því, að fólk verður fyrir óeðli- legum áhrifum af ýmsum efnum í náttúrunni dæmi um þetta er hcyfe- ber (sem ekki má blanda saman við heysóttina, sem hestar fá af myglu í lieyi). Sjúklingurinn fær sótthita og kvef af smádufti úr grasi og blómum. Þeir sem eru mjög ofnæm- ir fyrir þessu verða jafnvel að flytja sig sumarmánuðina þangað sem gras- gróður er lítill eða cnginn. En þeim sjúklingum, sem eigi liafa tækifæri til þessa, er sumarið hreinasta kvöl. Ýmsir telja að heysótt þessi geti ekki talist sjúkdómur, en það er mesti misskilningur. Ofnæmi er í mörgum tilfellum þjáning, sem spill- ir lífi þess, sem fyrir þvi verður. En stundum kemur þessi kvilli hjá- kátlega fyrir sjónir. Hvað segir fólk t. d. um bílstjórann hjá kornkaup- manninum, sem fékk liósta og kláða af því að aka mélsekkjum? En það skritna var að lionum varð ekkert meint af að fást við rúgmél- sekki. Það var bara hveiti, sem hann þoldi ekki! Öðrum leið illa þegar hann var cinhvers staðar nærri kartöflum, cn þó ekki alltaf. Læknisrannsókn sýndi, að maðurinn hafði ofnæmi gagnvart einni ákveðinni kartöflutegund. En aðrar tegundir gat liann étið og verið í návist við. Fyrrum vakti Florey og Chain að ná efni nokkru úr sveppategund, sem Alexander Fleming landi þeirra liafði veitt athygli 1928. Fyrsta grammið af þessu efni, sem kallað var jienicillin, kostaði um 40.000 kr. og var því miklu dýrara en gull. En það var lika meira en gulls ígildi. Árið 1942—- ’43 voru Amerikumenn farnir að framleiða þetta efni í stórum stil og notuðu það í eyðimerkurhernað- inum í Afrilui með undraverðum árangri. Sóttkveikjusýkt beinbrot, sár sem ekki vildu gróa, ólæknandi lekandi og sárasótt læknaðist eins og með kraftaverki. Tveimur árum siðar fóru önnur lönd að fá lyfið og það breiddist út um allan heim. Að vísu fóru að heyrast aðrar radd- ir er frá leið: lyfið verkaði ekki eins vel og sagt hafði verið í fyrstu, sögðu sumir læknarnir. Áður liafði það t. d. verið notað með góðum árangri handa sjúklingum með smit- andi heilahimnubólgu — sem áður var talin ólæknandi. Og nú vildi það til hvað eftir annað að penicilin hreif ekki.. Og eins var það ekki eins óbrigðult gagnvart kynsjúkdóm- unum og áður.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.