Fálkinn - 21.10.1949, Blaðsíða 6
6
FÁLKINN
Stjörnulestur
Eftir Jón Árnason prentara
Sólmyrkvi 21. okt. 19W.
AlþjóSayfirlit.
Hugræmu áhrifin eru yfirgnæfandi
og framkvæmdaþrekið mikið og á-
kveðið. Sólmyrkvinn er í síðasta
hluta vog'armerkis. Bendir það á
örðugleika meðal heldri manna og
rýrnun eigna. Undir þessum áhrif-
um eru:, Austurriki, Indókína, Kína,
Tíbet, Efra-Egiptaland, Burma og
Argentina. Bæir: Antwerpen, Jó-
hanneshorg, Kaupmannaliöfn, Leeds
og Nottinghám. Jóhannesborg ligg-
ur mjög nærri þessum áhrifum.
Lundúnir. — Sólmyrkvinn er í 5.
húsi. Barnafræðsla, leikliússtarfsemi
og leiklist er mjög á dagskrá og af-
stöðurnar fremur góðar. Munu mál
þessi vekja mikla athygli. — Júpíter
i 7. húsi. Líklegt er að ágreiningur
rísi við önnur ríki út af fjárhags-
málum og fjármálaviðskiptum. Mun
afstaða verkamanna koma til greina
i þessum efnum og valda örðugleik-
um. — Satúrn í 4. húsi. Stjórnin á
í örðugleikum og andstaðan gegn
henni mun magnast og hindr-
anir liggja á leið hennar. — Venus
í 0. húsi. Ætti að vera góð afstaða
verkamanna, jafvel þó að Venus hafi
sumar afstöður slæmar.— Mars í 3.
húsi. Bendir á óróa meðal járnbraut-
arþjóna og flutningamanna og eld-
ur gæti komið upp i flutningatæki.
lierlin. — Sólmyrkvinn er í 4.
húsi. Landbúnaðurinn og hændur
munu vekja athygli og málefni þeirra
mun mjög á dagskrá, en afstöðurnar
eru nokkuð breytilegar. — Satúrn í
3. húsi. Samgöngur undir örðugum
áhrifum og tafir koma til greina í
þeim efnum. — Mars og Plútó í 2.
liúsi. Afstaðan til fjárhagsmálanna
mun undir mjög örðugum áhrifum.
Eldur gæti komið upp i bankabygg-
ingu — Venus í 5. húsi. Leiklist og
ieikarar undir góðum áhrifum og
tekjur af slíkri starfsemi munu auk-
ast. — Júpiter ræður 6. húsi. Ekki
beinlínis góð afstaða fyrir verka-
menn. Er hætt við að tekjur rýrni.
— Úran i 12. húsi. Endurbætur ættu
jafnvel að vera gerðar á opinberum
vinnuhælum, góðgerðastofnunum og
betrunarhúsum.
Moskóva. — Sólmyrkvinn er al-
veg við miðnætursmark, 4. hús. Land
búnaðurinn ætti að vera mjög á
dagskrá og vekja athygli. Afstöðurn-
ar eru athugaverðar í ýmsu tilliti og
varasamar. — Merkúr í 3. húsi. Þetta
ætti að vera athugaverð afstaða;
samgönguörðugleikar. Kunnur rit-
höfundur gæti Iátist og tap á útgáfu
bóka. — Satúrn i 2. húsi. Slæm af-
staða fjárhagsmála, banka og versl-
ana með verðbréf og eignir, töp
gætu komið til greina og tafir sýni-
legar. — Mars i 1. húsi. Urgur og
órói meðal almennings og íkveikjur
gætu komið til greina. — Júpíter i
G. húsi. Athugaverð afstaða fyrir
verkamenn og'þjóna og tekjur rýrna.
Tokyó. — Sólmyrkvinn er í 1.
húsi. Liklegt er að óróleiki komi í
Ijós meðal almennings og örðugleik-
ar vegna fjárhagsmála, samgangna
heima og við útlönd og vegna mis-
taka i þingi og stjórnarathöfnum. —
Venus í 2. húsi. Fjárliagsmálin undir
örðugum áhrifum, sem berast frá ýms
um hliðum.— Júpíter í 3. húsi Slæm
áhrif á rekstur samgangna, blöð og
bókaútgáfu, póst og síma. — Mars
i 10. luisi. Stjórnin á i örðugleik-
um ýmsum og viðfangsefnin örðug.
— Úran i 9. húsi. Tafir og hindr-
anir í utanlandssiglingum og við-
skiptum. — Sólin í 11. liúsi. Tafir i
framgangi þingmála.
Washington. — Sólmyrkvinn i 7.
Iiúsi. Utanríkismálin mjög á dag-
skrá og vekja athygli. En örðugleik-
ar ýmsir eru á ferðinni og umræður
miklar um þau efni. — Mars og
Satúrn í G. húsi. Þetta er slæm afstaða
fyrir verkamenn og þjóna. Órói og
jafnvel verkföll geta komið til
greina. — Venus í 9. húsi. Hefir yf-
irgnæfandi slæmar afstöður, svo að
líklegt er að örðugleikarnir birtist í
utanlandssiglingum og viðskiptum.
Júpíter i 10. liúsi. Hefir slæmar
afstöður. Stjórnin á í öðrugleikum
og munu þeir standa að nokkru
leyti í sambandi við fjárliagsmálin.
— Úran i 4. liúsi. Það eykur örðug-
leika stjórnarinnar og landbúnaðar-
ins. Þó sýnir heildarafstaðan mik-
inn framkvæmdaþrótt.
ÍSLAND.
5. hús. — Sólmyrkvinn er i húsi
þessu. — Leikliús og leiklist vekur
mikla athygli. Örðugleikum má bú-
ast við i þessuin máhim, einkumvegna
fjárhagsörðugleika og að nokkru
vegna aðstöðunnar út á við. Tafir
koma frá bændum og andstæðingum
stjórnarinnar. Þó mun ófyrirséð að-
stoð birtast ef þvi er að skipta.
1. Hás. •— TungL ræður húsi þessu.
- Breytileg áhrif munu almennt
gera vart við sig og nokkuð óá-
kveðin, því afstöðurnar eru mjög
skiptar til hins verra og betra.
2. hús. — Sól ræður húsi þessu.
.— Fjárhágsniálin undir mjög tvíræð-
um áhrifum og liklegt að áframhald-
andi örðugleikar komi til greina, og
bankaviðskipti treg.
• 3. hús. — Sól ræður einnig húsi
þessu. — Óábyggileg afstaða að
ýmsu leyti til flutninga og ferða-
laga. Tafir koma til greina.
4. hús. — Afstaða bænda ætti að
vera sæmileg, því Mars er í húsi
þessu og hefir góðar afstöður til
Sólar og Tungls, en þó er hætt við
ugg og óánægju frá þeirra hendi og
frekari kröfúm.
6'. hús. — Venus er í húsi þessu.
— Þetta ætti að vera sæmileg af-
staða fyrir, verkamenn og vinnu-
þyggjendur, jafnvel þó að Venus
liafi nokkrar afstöður slæmar.
7. hús. — Júpíter er í húsi þessu.
— Hefir slæmar afstöður, svo að
líklegt er að viðskipti við útlönd
gangi erfiðlega vegna dýrtíðar, þvi
slæm afstaða er á milli Júpíters og
Venusar, sem er í húsi verkamanna.
Slæm afstaða til Sólar og Tungls
bendir á þessa örðugleika stjórnar-
innar.
8. hús. — Satúrn ræður húsi þessu.
— Hið opinbera mun eigi eignast
fé að erfðum við dauðsfall undir
þessum áhrifum. Kunnur ehlri em-
bættismaður og jafnvel Iandbúnaðar-
frömuður og rithöfundur gæti látist.
9. hús. ■— Satúrn ræður húsi þessu.
— Utanlandssiglingar undir örðug-
um áhrifum og tafir gætu átt sér
stað. Ágreiningur i trúarlegum og
vísindalegum efnum gæti komið til
greina.
uS nú er hœyt að gera gerviaugu
úr plasti?
Ilér sést dálítið úrval af þessum
gerviaugum, sem gerð eru með ótal
litbrigðum, þannig að allir geti
fengið sér auga, sein er nákvæmlega
eins útlits og augað, sem þeir hafa
íyrir.
aS loftbrúin til Berlín kostaSi Banda
ríkjamenn 173A98.600 dollara frá
byrjun og þangaS til samgöngn-
bunniS var hafiS, 12. mai.
í þá 10 mánuði, sem samgöngu-
bannið stóð flugu Bandarikjamenn
126.565 og Bretar 60.359 ferðir til
Berlínar, til þess að flytja þangað
vistir lianda rúmlega tveimur millj-
ónum manna. Hér sést varningur,
sem skipað hefir verið út úr einni
vélinni á Gatow-flugvellinum i Ber-
lín.
aO í skipatoftskeytustöðinni í Burn-
ham-on-Sea er loftskeytasamband
við skip, hvar sem þan eru í heim-
inum?
Þegar stöð þessi tók til starfa
1925 dró hún skammt á móts við
það sem hún gerir nú og afgreiddi
ekki nema nokkur þúsund skeyti á
ári. En nú eru aldrei afgreidd undir
10 milljón skeyti á ári. — Hér sést
nokkur hluti af þessari merku loft-
skeytastöð.
að veiðiaðferðir liðinna alda ganga
i endurnýjung lifdaganna?
Þetta á sérstaklega við um fálka-
veiðarnar. Fuglahóparnir, sem haf-
ast við kringum flugvellina valda
oft tjóni og slysum. Þess vegna hafa
flughafnirnar fengið sér fálka til
þess að hrekja fuglana á burt. —
Hér er verið að senda fálka af stað
til þess „að reka úr túninu.“
VITIÐ ÞÉR . . . . ?
DREKKIÐ EBIL5-0L
10. hús. — Satúrn ræður húsi
þessu. -— Slæm aðstaða fyrir stjórn-
ina. Andstaðan færist í aukana og
tafir sérstaklega áberandi gegn fram-
kvæmdum koma þar í Ijós vcgna að-
gerðar hennar sjálfrar og fyrir á-
róður verkamanna.
11. hús. — Júpíter ræður húsi
þessu. ;— Örðugleikar sýnilegir í
sambandi við löggjöf, í þjóðmálum
og trúarlegum efnum, jivi Júpíter
hefir slæmar afstöður.
12. hús. — Úran er í húsi þessu.
— Mun að líkindum hafa áhrif á
lagfæringar í sambandi við góðgerða
stofnanir, betrunarliús, vinnuhæli,
spítala og opinberar stofnanir.
Ritaö 23. sept. 19'i9.