Fálkinn


Fálkinn - 11.05.1951, Qupperneq 1

Fálkinn - 11.05.1951, Qupperneq 1
16 síður fslen.skur græðingrar Þó að hesturinn sé vafalaast ennþá „þarfasti þjónninn“ víða til sveita hér á landi, þái dylst engum, að þáttur hans í íslenskum þjóðarbú- skap er miklu minni nú en áður fyrr. Breyttir samgönguhættir hafa leyst reiðlxestinn af hólmi víða um land og véltæknin dráltarklárana. Eigi að síður er hesturinn þjóð- inni hjarlfólginn — sennilega hjart- fólgnaslur allra húsdýra, og fjöld- inn kann ennþá að meta góðan reiðhest. Svo að nefndar séu nolckr- ar lölur sem tákn um þátt hestsins í þjóðarbúskapnum, má geta þess, að um aldamótin 1800 eru 60 hest- ar á hverja 100 landsbúa, 62 árið 1855, 55 um aldamótin 1900, 46 1930, 50 1942, en 1949 aðeins 31, þ. e. a. s. 43.814 lieslar. Samt sem áður en það ekki fyrr en á síðustu áratugum 19. aldar, að farið er að neyta hrossakjöts hér á landi. I heiðnum sið var hrossakjöt að vísu veisluréttur við trúarhátíð- ir, en með kristnitökunni var hrossa kjötsát bannað. En nú er viðhorfið breytt, eins og iyrr segir. Þó verður ekki sagt, að hrossastofninn sé fyrst og fremst alinn til neyslu heldur til notkunar við framleiðslustörf. Dráttarklár- inn þekkist ennþái, þó að dráttarvél- ar hafi að mestu leyst hann af hólmi. Reiðliestar eru allmargir ennþá, en flestir þó notaðir bæði til dráltar og reiðar. Kappreiðar, þar sem gæðingunum er att til keppni, eru alltiðar og hafa örvað menn til þess að ala upp reiðhesta. klvítasunnan hefir jafnan verið iengd kappreiðum í hugum Reyk- víkinga, þó að trúarhátíð sé hún fyrst og fremst. Á annan dag lwíta- sunnu munu verða kappreiðar í Gufunesi, og er það Þorgeir Jónsson bóndi þar, sem gengst fyrir þeim. Hér birtist mynd af islenskum gæð- ingi. — Ljósm.: Ólafur K. Magnúss. 1 t *

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.