Fálkinn


Fálkinn - 11.05.1951, Side 15

Fálkinn - 11.05.1951, Side 15
FÁLKINN 15 Flugvél endurheimt. Frh. af bls. 3. Fálkinn talaði við liann á sunnudags- kvöldið. Ekki var neitt viðlit að gera flug- braut þarna uppi á Bárðarbungu. — Þess vegna var það ráð tekið, eftir að flugvélinni liafði verið iyft upp úr snjóhúsinu, sem verið hafði skýli hennar í vetur, að láta jarðýturnar draga hana alla leið vestur af jöklin- tim, yfir CO km. leið. Neðan við jökulbrúnina er allbreið flatlendisdæld frá norðri til suðurs. Þar var nú tekið til óspilltra málanna að gera flugbraut. Jarðýturnar jöfn- uðu „gúlana“ á snjósköflunum og þjöppuðu síðan saman fönninni og var brautin, til vonar og vara, gerð á ann- an kílómetra löng, eða helmingi lengri en þarf til venjulegs flugtaks véla, af þeirrigcrð, semhér átti í hlut-Douglas Dakota. Hreyflar flugvélarinnar fóru að snúast eftir einn snúning á skrúf- unni, mælitæki öll í lagi, og það eina sem þurfti áð gera að vélinni var að lagfæra sligun nokkra á vængjunum og spengja skíðin undir vélinni, sem bilað höfðu. „Það var nærri þvi eins og vélin hefði staðið á ágætu skýli allan tim- ann,“ segir Alfred flugm. Elíasson. Annars lætur hann mjög lílið yfir því, að þessi björgun, sem að áliti sérfróðra manna er einstætt þrekvirki hafi verið nokkurt afreksverk. Eigin lega fór allt samkvæmt áætlun, segir hann. — Við töfðumst að vísu meira en fjóra sólarhringa vegna byls, sem var svo mikill að þá var ekki hægt að gera neitt, en liins vegar notuðum við hverja góða stund, og spurðum ekk- ert að þvi hvort vinnudagurinn væri langur eða skammur. Þetta tókst vel, cnda liafði áætlun þessa einkennilega björgunarleiðangurs verið vel undir- búin. Fjöldi fólks var viðstaddur á flug- vellinum er vélin lenti á sunnudaginn, og allir voru broshýrir á svipinn. Hér var verið að fagna árangri sérstæð- asta björgunarleiðangursins, sem gerð ur liefir verið hér á landi. Og afrek leiðangursins eru merkileg, vegna þess, að óvíst er hvort nokkurs stað- ar í veröldinni hefir slíkt tekist sem tókst hér. Allir skulu Hallveigu muna. Frh. af bls. 2. veigarstaða. — „Allir skyldu Hallveigu muna,“ og minnast þess, að hún var annar aðilinn að fyrstu varanlegri byggð á íslandi. Á myndinni, sem hér fylgir sést frú Bodil Begtrup sendiherra Dana á Is- landi, vera að kaupa Hallveigarstaða merki, af frú Arnheiði Jónsdóttur. Sendiherrann var um margra ára skeið aðalfrömuður og óþreytandi starfsmaður hinna dönsku kvenrétt- indasamtaka, og finnst mikið um það vert, live íslenskar konur starfa með mikilli elju að Hallveigarstaðamálinu. lV/V<V>ViV/V<V/V/ Sýning slökkviliðsins. Fhr. af bls. 3. siðan af 3. hæð, sem í þessu húsi er 9 metra frá jörðu, eða álíka og ofan af þaki á venjulegu 3ja hæða húsi. Stukku fimm menn á hvorum stað og tókst prýðilega. Mun óhætt að sögn fróðra manna, að henda sér ofan í Oft veldur lítill neisti stóru báli FARIÐ YARLEGA MEÐ ELDIM BRUMTRYGGIÐ I|NNRÉ yðar og aðrar TRYGGJAMLEGAR eigur hjá CARL D. TULINIUS & Co. H.F. V ÁTR Y GGIN G ARSKRIFSTOF A Austurstræti 14 SÍMI 1730 SÍMI 1730 Gliigrgatjalclasteiigiir Verslunin BRYNJA SÍMI 4160 fallmottu þessa ofan af þaki hvaða húss sem er í Reykjavík. Næsta atriði var að sýnd var gömul véldæla, er slökkviliðið fékk 1915 og notuð var er Hótel Reykjavik brann það ár, og er enn starfhæf. Dældi hún vatni vel upp fyrir þak hússins. Til Fi/i/i slökkviliðsmanna stekkur út um glugga á Iðnskólahúsinu í fall- mottu slökkviliðsins. - Ljósm. Guðm. Kr. Iljörnsson. samanburðar var á sama tíma sýnd lítil véldæla af nýrri gerð, er hefir sömu afköst. Benti slökkviliðsstjóri á hversu handhæg slík dæla væri i svcitum og á stöðum þar sem engar slökkvivarnir væru, en vatn fyrir hendi. Þá var sýnd björgun með línu, og sigu þrír menn niður úr sjálfheldu- stiga úr 15 rnetra hæð. Linur þær er til þess eru notaðar hafa sérstakan hemlaútbúnað, og getur maður sá, er sigur í línunni, sjálfur ráðið hraðan- um og jafnvei stöðvað sig á lciðinni ef þörf krefur. Jón Oddgeir Jónsson tók það sérstaklega fram að linur þessar væru ávallt til hjá Slysavarnafélaginu og ættu þær alls staðar að vera við hendina á efri liæðum liúsa. Var síðan gefið merki til slökkvi- stöðvarinnar og komu þá tvær dælu- bifreiðar brunandi á staðinn og hafði hvor þeirra meðferðis kraftmikla dælu aftan á. Voru nú allar dælur, sem á staðnum voru, settar við Tjarnar- bakkann og dældu samtímis vatni úr 18 stútum. Undruðust menn liversu fljótt gekk að koma dælunum fyrir og ná vatni í gegnum þær. Var það lignarleg sjón, er fimm kraftmiklar dælur þeyttu 7 tonnum af vatni á hverri mínútu í loft upp og mynduðu bunurnar allar regnbogans liti í sói- skininu. Var ein slangan tengd við stút efst á sjálfheldustiga stöðvarinn- ar og gnæfði þar vatnsbunan við him- in. Tekið var fram að ekki hefði slökkvi liðið komið með öll sín tæki á stað- inn, vegna öryggis bæjarins. Var skil- in eftir háþrýsti-dælibifreið og tvær kraftmiklar dælur, og enn á stöðin i fórum sinum gamlan 15 metra sjálf- heldustiga. Þess var einnig getið að á Reykjavíkurflugvelli væru þrjár slökkvibifreiðar og tvær lausar dæl- ur, er ávallt væru ti ltaks ef á þyrfti að halda. Sýningu þessari lauk kl. 16 og þótti hún hafa tekist vel. Dpekkiö Egils-öl

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.