Fálkinn


Fálkinn - 15.06.1951, Page 3

Fálkinn - 15.06.1951, Page 3
3 FÁLKINN ~ 11' MmwÉr Vílhjdlmsson sextugur Ef atkvæði væru látin fara fram um það, mcðal allra landsmanna, hvaða fyrirtæki riði mest á að væri vel stjórnað, mundi svarið tvímæla- laust verða: Eimskipafélag íslands. „Óskabarn íslands" var það kallað fyrr og síðar, og „félag allra lands- manna“ var það að visu lika (þó að ég, innan sviga verði að minna á, að Ferðafélagi íslands var valið það kjörorð á sínum tíma). En þess má líka geta, því að í raun og veru liefir Eimskipafélagið verið mesta ferða- félagið, sem nokkurntima liefir starf- að á íslandi. Leiklistarskóli Þjóðleikhússins. Fyrsta starfsári Leiklistarskóla Þjóðleikhússins lauk 19. mai s.l. Ellefu nemend,ur stunduðu þar nám í vetur. Luku tvær stúlkur burtfarar- prófi með mjög góðum vitnisburði, þær Gerður Hjörleifsdóttir og Mar- grét Ólafsdóttir, en liin tóku próf upp i annan hekk. Valdimar Lárus- son, sem var óreglulegur nemandi vegna aldurstalunarks, lauk einnig burtfararprófi. Forstöðumaður skólans er Guð- laugur Rósinkrans, þjóðleikhússtjóri, en kennarar Haraldur Björnsson, Ind riði Waage, Hildur Kalman, Yngi Thorkelsson, Klcmens Jónsson, Sif Þórs og Ævar Kvaran. Auk þess flutti Lárus Sigurbjörnsson fyrir- lestra um leiklistarsögu. Kennslu- greinar eru raddmyndun, framsögn, plastic, skylmingar, leikur og ýmis undirbúningsatriði leiks. Kennslu- stundir voru 12 á viku, en auk þess léku nemendurnir nokkur smærrihlut verk í leiksýningum eða tóku þátt í þeim sem „statistar“. Og það var „félag allra landsmanna“ að því leyti, að ekkert íslenskt liluta- félag liefir átt nándarnærri eins marga hluthafa og Eimskipafélagið. Það skiptir miklu máli að slikur félagsskapur sem Eimskipafélagið er njóti jafnan góðrar, markvissrar og öruggrar stjórnar. Þetta félag varð í öndverðu tákn sjálfstæðisbaráttu ís- lands fyrir því að gera siglingarnar innlendar. Eg man vel fyrstu ár félags- ins, - eldmóð þeirra manna, sem fyr ir því börðust og sinnuleysi og van- trú margra annarra. í dag finnst flest- um andúðin og sinnuleysið óskiljan- legt, en á árunum siðan Eimskipafé- lagið var stofnað hefir ísland og hætt- ir þjóðarinnar breyst meira en á mörg- um öldum á undan. Sú breyting getur að ýmsu leyti rakist til stofnunar þess félags, sem setti sér það markmið að gera siglingar til landsins og frá inn- lendar. Núverandi forseti íslands var fyrsti stjórnarformaður E. í. en Emil lieitinn Nielseþ skipstjóri fyrsti forstjórinn. Forsjónin var fyrirtækinu að ýmsu leyti holl, og var oftar byr en andbyr. En „á misjöfnu jirífast börnin best,“ segir máltækið. Eftir Emil Nielsen var Ólafur heit- inn Benjamínsson valinn forstjóri, en ef ég man rétt tók hann aldrei við starfinu, sökum heilsubrests. Það var því annar maður, sem setið hefir við stjórnvölinn — i landi — síðan Ernil Nielsen fór frá. Guðmundur Vilihjálmsson tók við stjórn félagsins i ársbyrjun 1931 og hefir gegnt því starfi síðan. Og þó að þessi grein sé skrifuð í tilefni af því að hann varð sextugur á mánudaginn var, þá verður að taka fram, að hann cr maður á „besta aldri“, eins og oftar er sagt um menn, sem eru tals- vert undir scxtugu. Guðmundur hafði margt til að bera, auk jjess sem hverjum góðum manni cr nauðsynlegt, sem þarf að hafa skipti við marga, hvort heldur útlenda eða innlenda, en það er háttprýði, ljúf- menns'ka, kunnátta og framsýni. Á framsýninni veltur ef til vill meira en flestu, þegar menn eiga að stjórna siglingafyrirtæki, því að tæplega mun á nokkru öðru sviði atvinnurekstrar mega tala frckar um „hverfanda hvel“ en einmitt í siglingum. Forstjórn Guð- mundar nær yfir tímabil í sögu ís- lands, og enda allrar veraldar, sem segja má að hafi verið rneiri óvissu- tími en nokkurt annað tímabil i sögu ])jóðarinnar. Og Eimskipafélagið lief- ir þessi ár siglt á órólegri sjó en dæmi eru til. Það hefir gengið upp og niður fyrir Eimskipafélaginu þessi rúm 20 ár, sem Guðmundur hefir borið á- byrgð á þvi: kreppuár fyrstu árin, heimsstyrjöld með illbærilegu skipatjóni fyrir félagið. Mér er ekki fyllilega kunnugt um það, en þykist þó mega fúllyrða það, að það hefði fyrst og fremst verið forstjórinn, sem Frh. á bls. li. Samnorrcena sundheppnin Þing liins norræna sundsambands ákvað jöfnunartölu íslands í samnor- rænu sundkeppninni, en landsnefndin liér hefir sett þjóðinni tölu til þess að keppa að. Hinn G. júni, eða eftir 17 daga keppninnar, hafði þjóðinni tekist að ná 36,6% þessarar tölu. Af ýmsum ástæðum hófst starfræksla 20 sundstaða eigi fyrr en nú um sl. mánaðamót og 14 sundstaðir byrja ckki starfrækslu fyrr en um miðjan júni. Ilikur sá, sem Hákon Noregskonung- ur gaf. Þátttaka nemenda sumra skóla er minni en vonir stóðu til. Frá ýmsum fyrirtækjum liefur margt af starfs- fólkinu þegar lokið keppni, en þátt- taka þess, cins og skólanemenda, er misjöfn. Auðfundið er, að of margir setja framundir með að æfa sig eða Ijúka þáttlöku, en bagalegt gæti reynst, ef fólk streymdi til sundstaðanna síð- ustu dagana og kæmist þá ekki að. Landsnefndin leyfir sér því að hvetja alla til æfinga eða þátttöku eins fljótt og störf og aðstæður leyfa. Hinn 6. júni hafði Hrunamanna- hreppur hæstu hlutfallstölu af hrepps- félögum af sýslum Árnessýsla, Akranes og Siglufjörður hæstir kaup- staðanna, en af stærri skólum er Gagn fræðaskóli Austurbæjar í Reykjavik hæstur. Fremri röð t. v.: Sólveig Jóhannstlóttir, Regkjavik, Anna Halldórsdóttir, Reykjavik, Gerður Iljörleifsdótt- ir, Reykjavik, Margrét Ólafsdóttir, Vestmajinaeyjum, María Þorvaldsdóttir, Hufnarfirði, Kristín Jóhannsdótt ir, Reykjavik. — Aftari röð t. v.: Valdimar Lárusson, 'Reykjávík, Lúðvík Hjaltason, Reykjavík, Knútur Magn ússon, Reykjavík, Jóhann Pálsson, Reykjavik, Dessi Bjarna,son, Rcykjavik. i

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.