Fálkinn


Fálkinn - 15.06.1951, Side 5

Fálkinn - 15.06.1951, Side 5
FÁLKINN 5 skuldum. En það virðist ósenni- legt, hafi hann notið stuðnings konungsfjölskyldunnar. — önnur skýringin er sú að hann hafi flú- ið vegna þess að reynt hafi verið að stela áætlunum hans um vest- urleiðangurninn. Einmitt árið 1484 hafði hann lagt þessar á- ætlanir fyrir Portúgalskonung. Og hann hafði skipað nefnd, til þess að segja álit sitt um áformið. — Nefndin var mótmælt, en lagði samt til að leiðangur yrði gerður út vestur — án Kólumbusar. Það var líka gert, en fór í hundana. Og nú áleit Kólumbus að ekki væri vert að treysta Portúgal í málinu og þess vegna best að fara! Þessi skýring er þó ekki fullnægjandi. Hafi Kólumbus verið í ætt við konunginn, liggur nærri að spyrja hvers vegna Kólumbus hafi verið settur hjá! Og hefði leiðangurinn tekist, undir hans umsjá, mundi það einnig hafa orðið til að varpa ljóma á konungsættina. Hér verð- ur að leita annarra skýringa. Þegar Kólumbus var kominn til Spánar varð honum brátt ljóst að ekki mundi hlaupið að því að fá fjárstyrk þar. Landið var í styrjöld við Mára og fjárhagur ríkisins þoldi engin aukaútgjöld. Auk þess frétti Kólumbus um þessar mundir að Bartolomeo bróðir hans væri orðinn þátttak- andi í leiðangri, sem gekk í líka átt og Kólumbus áætlaði. Þóttist hann nú sjá að hollast mundi að hverfa aftur til Portúgal og sendi því 1488 konungi umsókn um að fá að komast tálmanalaust inn í- landið. Konungur svaraði því vin- gjarnlega. Hann byrjar bréfiO með því að kalla hann „sérstakan vin“ og heldur svo áfram: „Hvað viðvíkur för yðar hingað vegna þeirra erinda sem þér nefnið (þ. e. leiðangursins) og annarra erinda, í þeim tilgangi að ástundun yðar og gáfur komi oss að notum, þó óskum við þess að allt gangi að óskum. Og af því að þér máske hafið nokkurn ótta af dómurum vorum, út af málinu, að þér skuluð hvorki við komu yðar eða burt- för skuluð vera fyrir óþægindum, settur fastur, lcallaður fyrir rétt eða yfirheyrður. Og með þessu sama bréfi skal það lagt fyrir alla dómara vora að þeir hagi sér sam- kvæmt þessu.“ — I bréfinu er beinlínis gefið í skyn að Kólumbus hafi aðhafst eitthvað refsivert, — það hefir jafnvel verið giskað á að hann hafi stundað sjórán. En ef til vill er það eitthvað annað. Við skulum nú líta á. Skömmu eftir að Kólumbus var kominn til Spánar komst hann i kynni við unga stúlku, Beatriz Enripuez, af fátækri aðalsætt spænskri. Með henni eignaðist hann soninn Fernando, sem síðar yarð merkur atorkumaður, bók- fræðingur og siglingafræðingur. Portugalar telja að hann hafi skírt þennan son í höfuðið á föð- ur sínum, Fernando prinsi. En um Beatriz Enriques fer fáum sögum, og er helst svo að sjá sem Kólumbus hafi yfirgefið hana skömmu eftir að sonur þeirra fæddist. Á einum stað rekst mað- ur þó á nafn hennar. Það er í arfleiðsluskrá, sem Kólumbus kvað hafa samið árið 1506. Þar stendur m. a. þetta: „Eg legg svo fyrir son minn (Diego) að hann sjái farborða Beatriz Enriques, móður Fernandos sonar míns — Hann (Diego) skal sjá um að hún geti átt heiðarlega ævi, því að hún er manneskja, sem ég á mik- ið að þakka. Þetta segi ég til að friða samvizku mína, þvi að þetta mál hvílir þungt á mér.“ Nú liggur þessi spurning nærri: Hvers vegna hafði Kólumbus svona slæma samvisku? Ilefir ver- ið getið til um ýmislegt: Var það vegna þess að hann hafði yfirgef- ið Beatriz? Var það af því að hann varð trúmaður á efri árum ? Eða af því að hann hafði átt vin- gott við hana áður en kona hans dó? Hafði hann verið konu sinni ótrúr? En var þá ekki frú Filipa Moniz dáin 1480, áður en Kólumbus fór frá Madeira? Jú, hún var það, segja Portúgalar. En aðrir segja að hún hafi ekki dáið fyrr en undir 1490. Ef svo er þá er hugsanlegt að hann hafi beinlínis strokið frá henni er hann fór fram Madeira. Kann að vera að hún hafi komið mann sinn dæmdan fyrir heitrof, til Portugal síðar og hafi fengið og að það hafi verið sá dómur, sem Kólumbus var að flýja er hann fór til Spánar. Ef til vill er það sá dómur, sem Portúgalskon- ungur víkur að í bréfi sínu? Þeg- ar Kólumbus kom úr fyrstu Amer- íkuferð sinni lenti hann ekki á Spáni, eins og vænta hefði mátt úr því að ferðin var kostuð af spönsku fé, heldur lenti hann fyrst í Portúgal og átti vinsamlegt tal við konung. En þá var Filipa dá- in og engra óþæginda að vænta úr þeirri átt. Hvernig hefir Kólumbus komist af fjárhagslega á árunum til 1490? Margir hafa velt því fyrir sér. Lengi var talið að hann hafi haft ofan af fyrir sér með korta- teikningum og hafi barist í bökk- um. Á þetta bendir m. a. það, að þegar hann yfirgaf Beatriz fékk hún aðeins 10.000 maravedis (um 150 gullfranka) á ári í lífeyri. — Hins vegar er vitað að á þessum árum samdi hann tvær bækur landfræðilegs efnis, og að vetur- inn 1485—86 var hann í áheyrn hjá spænsku konungshjónunum. Eftir þá áheyrn fékk hann stöðu á Spáni, með föstum launum, er sagt. Vert er að minnast þess að Kól- umbus átti tvo bræður, Bartolo- meo og Diego Colon. Þeir voru dugnaðarmenn, einkum Bartolo- meo og studdu oft bróður sinn í erfiðleikum hans. — Voru þeir sprottnir af fátæka vefaraheimil- inu í Genua líka? Eða eru þeir synir Fernando og ungfrú Zarco? Að vísu var hún í útlegð í Genua og mátti ekki þaðan fara. En prinsinn gat farið hvert á land sem hann vildi og reyndi einu sinni að koma til Italíu. Komst hann þó ekki lengra en til Gibralt- ar í það skipti, en vel getur hugs- ast að betur hafi tekist til í önnur skipti. Kólumbus viðurkenndi bæði Bartolomeo og Diego sem bræður sína. Sá siðari var — samkvæmt sögn Portugala — heitinn eftir föðurbróður sínum, hertoganum af Vizeu, sem Kólumbus sem Kól- umbus lét fyrsta son sinn heita eftir. Það er eftirtektarvert að þegar Kólumbus kom frá Madeira til Lissabon, var Bartolomeo líka kominn þangað, og að báðir áttu ríkt fólk að þar. Líklega er það fyrir stuðning þessara ættingja að Bartolomeo komst til Eng- lands og hafði meðmælabréf til Hinriks VII, og hann lofaði hon- um að ljá Kólumbusi skip í leið- angurinn. Þykir flest benda á að Bartolomeo hafi líka verið son- ur Fernando prins og ungfrú Zarco. Áður hefir verið minnst á erf ða- skrána sem Kólumbus gerði 1506 og á lífeyrinn til Beatriz. 1 sama skjali mælir Kólumbus svo fyrir að ákveðnar upphæðir séu greidd- ar nafngreindu fólki í Genua. — Þetta gæti bent til þess að móðir hans hafi verið skuldug þessu fólki, og Kólumbus hafi talið sér skylt að greiða skuldirnar. En svo getur líka hugsast að það sé annar Kristófer Kólumbus en land könnuðurinn, sem gert hefir þessa erfðaskrá, eða að hún sé fölsuð. Þvi að margvísleg skjöl voru föls- uð með nafni Kólumbusar eftir að hann var orðinn frægur maður. Þá vildu margir hafa gott af hon- um. Árið 1598 féll dómur í stórmáli um það sem þá var eftir af eign- um Kólumbusar. Margs konar erf- ingjar frá ýmsum löndum höfðu gefið sig fram, en sá sem vann. málið var portugalskur greifi, Nuno Colon. I málinu lét frægur lögmaður svo um mælt, að ef Kólumbus væri fæddur í Genua þá væri það tilviljun, og þá sem sonur útlendra foreldra er þar hefðu verið á ferð.“ Og verður ekki skýrar á kveðið um það, að hann hafi ekki v.erið sonur vefara þar í borginni. Þessi portúgalska túlkun, sem 'hér hefir verið gert grein fyrir er ekki aðeins fróðleg, heldur er hún í ýmsum greinum sennileg. Hún neitar ekki að Kólumbus geti ver- ið fæddur í Genua. En hins vegar neitar hún því þvert að hann hafi verið sonur vefara, en heldur því fram að hann hafi verið afkom- andi konungsins í Portúgal. UNO fær frímerki. — Að uhdangengum samningum við Banda- ríkin liefir aðalbækistöð Sameinuðu pjúðanna í New York nú sett upp sína eigin póstmálaskrifstofu og notar framvegis sín eigin frímerki. Það eru il mismunandi verðgildi frá 1 centi upp í eirin dollar, sem UNO gefur út og auk þess ferns konar ftúg- frímerki. Hér á myndinni sést Trygve Lie og Svíinn Berttil Renborg, sem verður póstmádastjári UNO, vera að undirskrifa póstmálasamninginn ásamt fulltrúum Bandaríkjastjórnar.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.