Fálkinn - 31.08.1951, Side 10
10
FÁLKIN N
t
/
— Nú er lestin farin hjú, svo að
yður er óhætt að draga upp bóm-
una!
— Nei, ég vil helst vera viss um
að lestin renni ekki til baka.
— Iíafa krakkarnir nú verið að
glettast við þig aftur?
— Þei, þei — ég hefi týnt bað-
buxunum mímim.
Flugdreki fyrir
haustnæðingana.
Það tekur dálítinn tíma að búa
til flugdreka, en það er líka gaman
að fara með hann út á tún í golu
og láta liann fljúga.
Fyrst búið þið til kross (mynd
1), sem verður „beinagrindin“ i
drekanum. í liann notið þið lista,
sem er 2 cm. breiður og' V-i cm. á
þykkt. Lengra stykkið er 72 cm.
og það styttra 45 cm. Listinn verð-
ur að vera kvistlaus. Fyrst gerið
þið hak á listana, um 1 cm. frá
endanum (mynd 2) og svo hak 20
cm. frá endanum á lengri listanum,
cins og sýnt er á mynd 3, þar sem
listinn er sýndur frá hlið. Hakið
skal ná til hálfs niður á listana og
vera svo breitt að hœgt sé að fella
þá saman. Svo er það gert og nagli
settur í til að festa listana saman
með, cða lielst skrúfa. En áður eru
hökin límborin, svo að þau festist
betur saman
Síðan er sterku seglgarni bundið
milli endanna á krossinum, og brugð
ið um liökin. Og nú er þessi grind
lögð á sterka umbúðapappírsörk og
svo klippt af lienni þannig, að hún
nái um 3 cm. út fyrir seglgarnið.
Þessi jaðar cr límborinn og síðan
brettur inn yfir seglgarnið, en klipp-
ið skarð í jaðarinn við listana, svo
að ckki verði bögglingur þar. (Sjá
mynd 5). Þrýstið jaðrinum vel nið-
ur og látið límið þorna.
Nú er eftir að bora tvö göt fyrir
dragsnúruna, gegnum lengra kross-
tréð og pappírinn. Efra gatið á að
vera 15 cm. frá endanum og það
neðra 30 cm. ncðar. Sjá merkið x
á mynd 1.
Takið 75 cm. langan seglgarns-
spotta og borið endanum gegnum göt
in og bindið þá vel saman á bakhlið
drekans. En drekasnúruna festið þið
í lykkjuna liinu megin (sjá mvnd
6).
Halinn á að vera 6 sinpum lengri
en sjálfur drekinn. Brjótið saman
papirsrenninga, eins og sýnt er é
mynd 7 og stingið þeim inn i lykkj-
urnar á drekahalanum. í cndann á
halánum er festur pappírsskúfur.
Svo er lialinn festur við drekann
með þvi að gera gat neðst á kross-
inum.Drekasnúrunar er best að vinda
upp á typpi, eins og sýnt er á mynd
8. Hún verður að vera löng svo að
að drekinn geti komist hátt.
Ef þið þreytist á að hlaupa með
drekataugina til að fá drekann á
loft, getið þið reynt að láta liund-
inn gera það, eins og strákurinn á
myndinni gerir.
w
— Hentugur nótnastóll.
— stóri drengurinn minn er svona
— Hvernig dettur þér í hug að
hengja upp svona mgnd, strákur?
Adamson og Amor.