Fálkinn


Fálkinn - 04.04.1952, Side 5

Fálkinn - 04.04.1952, Side 5
//Qorðurinn okUttt" ÁLKINN Uppeldi hdlplantna Kálplöntum scni planta á út í maí- lok, sem er algengast hér á landi, er hæfilegt að sá 10.—20. apríl. SáSmold in á að vera góð og heilbrigð garð- mold hæfilega þurr. Gott er að blanda moldina með allt að Vi af fín- um sandi og mómylsnn, ef hún er þung í sér. Úr moldinni skal sigta allt rusl, smásteina og köggla. Heppi legt er að sá i grunnan kassa, 8—10 cm. djúpan. Kassinn er fylltur afmold inni þannig að 1—2 cm. horð sé á. Moldin síðan sléttuð vandlega og þjöppuð ofurlítið, sérstaklega í horn- um kassans. Siðan er fræinu dreift sem jafnast á moldina. Ekki skal sá þéttara en svo, að 1 gr. af fræi komi á ferfet (30x30 cm.). Fræið er siðan þakið með fínni mold eða finum sandi, sem sáldrað er gegn- um fínt sigti. Kassinn er siðan völcv- aður vandlega með dreifara eða með því að láta hann standa í vatni, þar til moldin er orðin gegnldaut. Glerplata (eða pappír) er lögð yl'ir kassann og liann látinn standa i 15—120° C hita, þar til fræið spírar, Strax og plönturnar eru komnar upp er kassinn fluttur í birtu t. d. bjart- an glugga eða vermireit. Þegar plönt- urnar byrja að skipta blöðum, þarf að dreifplanta þeim. Er þánotuðsams konar mold til sáningar, blönduð mcð % af húsdýraáburði, lielst ekki alveg nýjum. Ef hann er ekki fáan- legur þá má nota i þess stað ofur- lítið af venjulegum loftáburði. Plönt- unum er dreifplantað (priklað) með 3—5 cm. millibili í kassa eða vermi- reit, ef tið leyfir. 2—3 vikum áður en plönturnar cru gróðursettar eru þær „hertar“, þ. e. a. s. vandar smám saman við útiloft. Jóel Jóelson, Reykjahlið. Gulrætur Það liníga mörg rök að þvi að rækta gulrætur liér á landi. Þær eru einhver Ijúffengasta matjurtin sem hér þrífast og það má fá mikla upp- skeru af þeim á litlum bletti. Þær geta verið komnar í gengið um miðjan ágúst, þó að sáð sé á bersvæði og við góð skilyrði má geyma gul- rætur fram undir jól. í fimm til scx mánuði cr því hægt að bafa gulrætur sem ræktaðar eru bér á borðum. —■ Þá má ekki heldur gleyma því að gulrótin er næringar- rík matjurt og auka binna beinu næringarefna er hún einhver besti A-bætiefnagjafi sem völ er á. í benni cr litarefni sem beitir karo- tin — en' úr því vinnur líkami manna og dýra A-vitamín, — sem er hin besta vörn fyrir slímhimnur líkamans, einkum í hálsi, augum og cyrum. Þeir sem neyta gulróta þurfa því ekki að óttast kvilla og sjúkdóma sem rekja orsök sína til skorts á A-bætiefni — kvef, inflúensu o. j). h. hörgulkvilla. Enn er ctt óupptalið: Iválflugan, sem nú sem stendur gerir ræktun gulrófna mjög erfiða, getur ekki gert gulrótum hið minnsta mein. Þær geta þvi gefið mikla og heil- brigða ii])pskeru þar sem kálflugan er orðin „svcitlæg.“ Hér skal í fáum orðum, skýrt frá því, sem þýðingarmest er að vita fyrir þá, sem vilja rækta gulrætur. Þær þrifast best í sendinni moldar- jörð — og það er talið að nýr og megn búfjáráburður eigi ekki vel við — sé hann notaður er talið að gulræturnar verði greinóttar. Hafi mikið verið borið i blett fyrir kál eða kartöflur — má venjulega fá góða gulrótaruppskeru úr honum ár- ið eftir, an þess að bera nokkuð á. Gulrótarfræi þarf að sá snemma, helst í apríl — aldrei seinna, cn 10.—-15. maí. Gulrótarfræið er þurrt með hörðu skurni, sem er lengi að blotna svo það geti spírað. Best er að sá röðum á 1 meters breitt beð og sá þannig að korn liggi við korn — en þó umfram allt ekki of þétt. Eftir 3 vikur fara plöntur að koma upp — og er þá nauðsynlegt að eyða illgresi þvi scm er að byrja að gróa. Þegar „hjartablöð“ fara að koma þarf að grisja þannig að sé minna en 2—4 cm. milli plantna, og livergi nema ein i stað. Við gul- rótarækt þarf að beita natni og vandvirkni — en sé j)að gert marg- borgar liún umbyggjuna. Hirðing þeirra cr í því fólgin að sjá um að hvergi sjáist arfaplanta í gulrótabeð- inu og halda yfirborði moldarinnar lausu með handherfi eða arfasköfu því að það kemur í veg fyrir að moldin skorpni og springi og of- þorni. Ánægjulegt er það fyrir liús- móðirina að ganga út í eigin garð og kippa upp fallegum gulrótum i hvert sinn sem á þeim þarf að FLÓRA selur yður fræið Nornavcndir á birki. Kvillor í trjdm 09 runnum Reyniátan er skæðasti reyniviðar- kvillinn hér á landi, einkum. ná- lægt sjó þar sem umhleypingasamt er. Hcfir átan oft skemmt og jafn- vel drepið talsvert af reyni t. d. í Reykjavík. Mest ber á veikinni í slæmu árferði. Brum trjánna þrosk- ast illa í erfiðri sumarveðráttu; trén kelur oft veturinn eftir og sveppurinn, sem átunni veldur, sest að í kalskemmdunum. Reyniátan lýsir sér þannig að sár koma á greinar og stofna, venjulega ögn lægri en húsin i kring. Sjá mynd. fíeyniáta. halda. Vel hirt gulrótabcð er prýði matjurtargarðsins. — Börn ættu að fá að rtaga eins mikið í sig 'og þau lystir af liráum gulrótum meðan þær eru til. Það eykur breysti þeirra og mótstöðu gegn áðurnefndum kvill- um og er i raun og veru á við lýs- isgjöf. ReyniÖ að koma,st upp á lagið með að rækta gulrætur. Það marg borgar sig ef rétt er að farið. Byrj- ið í smáum stil, á meðan þið eruð að lcomast upp á lagið og aukið svo ræktunina þegar kunnáttan er feng- in. Og enn eitt, sem ekki má gleyma: Biðjið um fræ af Nantes gulrót. Það er reynsla, fyrir þvi að það afbrigði á vel við liér. Fyrst verður börkurinn óeðlilegur á litinn og viðurinn hálffúinn undir lionum. Æxli geta líka myndast. Ef sárin ná utan um grein eða stofn, drepst það sem ofan sárs er. Stund- um nær tréð sér fljótlega aftur ef kjör eru góð. Vetrarúðun með 3% blásteinsvatni ver dálitið smitun. Átuskemmdirnar skal skera burtu með beittum hníf. Sjúkar smágrein- ar skal sniða af, en skera sár á stofnum og gildum greinum hrein. Má bera plöntuvax i sárin, olíu- málningu og koltjöru má lika nota í sár, (en ekki út á börkinn). Rauð- ar vörtnr sjást oft á dauðum eða veikluðum greinum á reyni, ribsi o. fl. Skal skera þær greinar af og brenna. fíyðsveppa.r valda oft ryð- brúnum blettum á birki, víði o. fl. trjám og runnum. Verða blöðin Ijót og falla stundum af snemma. Ber t. d. allmikið á j)essu á ungu birki i uppeldisreitum sum ár. Úðnn með Perenox, cða Bordóvökva o. fl. mygglunarlyfjum er helsta varnar- ráðið. Nornavendir; þ .e. einkenni- legir, hrukkublaða, þéttir smágreina- vendir, sjást oft á birki, en gera sjaldan verulegt tjón. Best er að sníða af jafnóðum og l)eir sjást. Blaðranda þornun er algeng á rauðberjarunn- um (ribsi), einkum þar sem skjól- iítið er og jarðvegur fastur og þétt- ur) t. d. í leirjörð). Visna blað- rendurnar oft furðu fljótt í næðing- um. Skortur á kalí getur líka verið orsökin. Lítið ber á visnuninni i djúpum, frjósömum jarðvegi. Góð- ur búfjáráburður og þvag á vcl við runnana og hleypir grósku i þá. Mikið göturyk er gróðrinum ska.ð- legt og veldur oft blaðfalli trjánna við miklar umferðargötur. Tið vatns úðun gatna og gróður er auðvitað til bóta. En naumast verður ráðið við rykið fyrr cn göturnar eru stein- lagðar og hætt að bera rauðamöl, sand og ísaldarleir á þær. Ingólfur Dapíðsson. Tvcir sjómenn komu á hundasýn- ingu og sáu þar meðal annars lubha- hund, sem var svo loðinn að liann var líkastur ullarreyfi. „Hvoru meg- in er hausinn, Tumi?“ spurði annar. „Skrattakornið að ég veit það,“ svaraði hinn. „En nú ætla ég að reka prjón í liann, og þá skaltu taka eftir livoru megin hann geltir!“ fíagnar Ásgeirsson.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.