Fálkinn - 18.07.1952, Qupperneq 3
FÁLKINN
3
Svefnvagnar á
Nor'ðurleiöir liafa nú tekið í notkun
svei'nvagna á leiðinni milli Reykjavík-
ur og Akureyrar. Lagði sá fyrsti af
norðurleiðinni
stað kl. 10 á mánudagskvöldið og át'ti
að vera kominn þangað milli kl. 7 og
8 á þriðjudagsmorgun. — Rifreið-
in er innréttuð talsvert frábrugð-
ið venjulegum iangferðabifreiðum.
Sætabökin eru hærri og er hægt
að halla þeim aftur. Þá er og rýmra
um fætur farþeganna en í öðrum lang-
ferðabifreiðum.
Bílasmiðja annaðist yfirbygginguna
og studdist við danska fyrirmynd. —
Bifreiðin er af Reo-gerð. Líklegt cr,
að ])etta fyrirkomulag á norðurferð-
um vcrði mjög vinsælt.
Ljósm.: Stefán Nikulásson.
Ishi forsetans greftrnð að Bessastððum
Aska Sveins Björnssonar forseta var
jarðsett í kirkjugarðinum á Bessa-
stöðum árdegis í gær að viðstöddum
nánustu vandamönnum, ráðherrum og
frúm þeirra og nokkrum öðrum.
Atböfnin bófst mcð því að kór
Bessastaðasóknar söng sálminn: „Eg
lifi og ég veit“. Sóknarprcsturinn,
séra Garðar Þorsteinsson, flutti bæn,
en séra Bjarni Jónsson vigslubiskup
iokaði hinni steyptu gröf, er gerð
hafði verið fyrir ösku forsetans, mælti
nokkur orð og flutti drottinlega bless-
un. Síðan söng kórinn „Eg lifi í Jesú
nafni.“
Legstaður forsetaiis er í kirkju-
garðinum að Bessastöðum við norð-
urvegg kirkjunnar. Á gröfinni er liella
úr íslenskum steini og á hana letrað:
Sveinn Björnsson.
Að alliöfninni lokinni var gengið
til Bessastaðastofu og ávarpaði for-
saétisráðhérra frú Georgíu Björnsson
og þakkaði benni í nafni þjóðarinnar
hin mikilvægu störf he-nnar sem fyrstu
forsetaifrúar landsins. Henrik Sv.
Björnsson sendiráðwnautur flutti að
skilnaði þakkarorð fyrir móður sína
og fjölskylduna.
(Tilkynning forsætisráðuneytisins).
Stærri myndin er tekin við at'liöfn-
ina í Bessastaðakirkjugarði. Minni
myndin er af gröfinni sem aska for-
setans var iögð í.
Myndirnar tók Vigfús Sigurgeirsson.
SAKAR SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR UM SÝKLAIIERNAÐ. —
Það hefir vakið feykilega gremju í Bretlandi, að dómprófasturinn af Kant-
araborg, dr. Hewlett M. Johnson, skuli hafa tekið upp sönginn með komm-
únistum um sýklahernað Sameinuðu þjóðanna í Kóreu. Dómprófasturinn er
nýkominn hcim frá Kína og lagði leið sína um Moskvu. — Hérna á mynd-
inni sést hann á blaðamannafundi í London, þar sem hann bar þetta fram.
„FEGURSTA STÚLKA HEIMSINS“ í HOLLYWOOD. —
Eins og kunnugt er hreppti fegurðardrottning Finnlands', hin 18 ára gamla
Armi Kuusela, titilinn „Miss Universe" við alþjóðafegurðarsamkeppni
nýlega. — Hér sést hún ræða við Tony Curtis frá Hollywood, sem býður
henni hagstæðan samning hjá kvikmyndafélagi sínu..—