Fálkinn


Fálkinn - 18.09.1953, Page 9

Fálkinn - 18.09.1953, Page 9
FÁLKINN 9 Óttast breshi oðollinn vaxondi dhrif Mountbotten-œttarinnor? útum, sem ég var að læðast niður stigann. Meðan ég stóð i ganginum heyrði ég braka í einhverju ■— og ég vissi að það var verið að opna eld- húsdyrnar. Eg hríðskalf frá hvirfli til ilja. Ein- liver stóð bak við mig. Og svo hljóð- aði ég. Hljóðaði og fleygði mér áfram í áttina að dyrunum og opnaði upp á gátt. Fyrir framan mig sá ég ganginn, helluiagðan. Eg bljóp út úr húsinu og niður að hliðinu. Þegar ég leit við um leið og ég lokaði hliðinu á eftir mér, sá ég hann. Karlmaður stóð í dyrunum og horfði ó eftir mér. Þegar hann leit við sá. ég andlitið á honum í tunglsljósinu — það var föit, djúp og dökk augu og hárið ó- greitt niður á ennið. Það var voða- legt að sjá hann. Eg opnaði rnunninn og æpti einu sinni enn. Og svo hljóðaði ég aftur og lyfti höndunum og bandaði frá mér. Hann færði sig nær mér og var langstígur. Augu hans voru stór og starandi. Ailt í einu nam hann staðar — að- eins fá skref frá nrér — stóð kyrr og starði — og hljóp svo áfrarn fram- hjá mér og hvarf út í myrkrið. Eg gat ekki liætt að hljóða. Líklega hefði ég fallið i ómegin ef ég hefði ekki heyrt djúpa, rólega rödd bak við mig. Við það þagnaði ég. •— Hættið þér þessum hávaða! Hvað er að? Sterkir fingur gripu um úlnliðina á mér og tvö dökk augu störðu á mig, undrandi. Áður en ég vissi af hafði ég tekið báðum höndum um hálsinn á manninum. — Svona, já. Þetta var betra. Jæja, — hvaða læti voru þetta? Eg reyndi að segja eitthvað, en ekki varð annað úr því en stamandi skjálfti. — E — draugur — nei, ég — ég á við — maður — Tom ■— ha- hann kemur á vettvang sinn aftur. Mér hægði við hláturinn í gestin- um. — Hvaða bull! Þér hafið vafalaust liaft martröð. Hann tók utan um mig og leiddi mig heim að húsinu aftur. Röddin var viðfelldin og mér fannst öryggi í þvi að vita að hann hélt utan um mig. Hann beið ekki eftir því að ég byði honum inn, en fór með mér inn í stofuna og kveikti á lamp- anum á borðinu. Ennþá lifði í glæð- unum á arninum, og hann tók nokkra viðarkubba og lagði á eldinn, og inn- an skamms fór að loga glatt. — Nú skuluð þér setjast hérna og ná yður eftir geðhræringuna, sagði hann. — Og svo skal ég hita tebolla handa okkur. I ! " •' EGAR hahn kom inn aftur með tebakkann var ég búin að jafna mig, því að ég fór að hugsa um hve úfin ég væri. — Iívar hafið þér heyrt allt þetta bull — um drauga og morðingja? spurði hann er hann var sestur í stól- inn beint á móti mér .... Eg sagði honum með semingi frá öllu saman — frá byrjuninni, sem' var bréfið frá Minu frænku og fram að því að ég las póstkortin i skápnum. — En hvað gat bráðókunnugur maður verið að vilja hingað um miðja nótt? spurði ég svo, til að afsaka mig. Hann yppti öxlum. -— Hvað svo sem hann liefir ætlast fyrir þá tókst yður að minnsta kosti að gera hann laf- Iiræddan, svo að hann lagði á flótta þegar ég kom til sögunnar. — Það skeður svo margt hérna á nóttinni, bætti liann hátíðlega við. Æ -— þetta hugmyndaflug mitt! Hvað þekkti ég til þessa manns? Hvernig gat liann vitað upp á hár, hvar eldhúsið var hérna í kofanum? — Hver eruð þér? stamaði ég. Hann brosti iítið eitt og nú tók ég eftir skugganum við munnvikið, sem hafði gert andlitið dálítið þjösna- legt. — Eg er frændi ungfrú Bellu Sand- ers, svaraði liann hægt og fast. Eg setti bollann frá mér. ■—- Ó! Við sátum og horfðumst i augu nokkrar sekúndur. Hann stóð upp og skugginn af hon- um náði yfir alla stofuna. —■ Þér hafið ekkert að óttast. Eg er alveg meinlaus. Eg myrði ekki auralausar telpur. Og sannast að segja myrti ég ekki hana frænku mina heidur. Hún er, eins og stendur, i besta yfirlæti hjá henni móður minni í í Somerset. Annars er það ég, sem á þennan kofa. Hún frænka mín gaf mér hann. Eg varð miður mín — vegna þess hve mér létti. Eg hneig máttlaus nið- ur í stólinn og grét. Hann var svo skynsamur að liann lét mig vera í friði. Mér létti við að -gráta. Og nú tók ég ekker.t eftir að barið var á dyrnar. Eg lieyrði að einhverjir voru að tala saman i ganginum. Og svo heyrði ég hlátur, og ég heyrði að dyrunum var lokað aftur. — Þetta var morðinginn yðar, sem kom aftur, sagði hann. — Eg liafði rétt fyrir mér, hann hélt að þér vær-^ uð vitlaus. Þegar hann kom hingað fyrst var hann að sækja ljósmóður- ina því að konan hans var að ala barn, og það var asi á honum og hann vissi ekki að ljósmóðirin var flutt liéðan. Hann fór i frakkann og myndaði sig til að fara. — Eg hefi hugsað mér að lita hérna inn í fyrramálið og sjá livernig yður líður. Eg fylgdi honum út. — Eg heiti Angela Collins, sagði ég feimnislega. Hann brosti. — Eg lieiti Thomas Sanders, sagði hann. — Flestir kalla mig Tom. Eg kom hingað í kvöld til að heilsa nýja leigjandanum. Það var að vísu seint, en ég man aldrei hvað klukkan er. Þér þekkið mig von- andi aftur þegar ég kem í heimsókn í dagsibirtu. Nei. Eg fékk ekkert tækifæri til að gleyma Tom. Og fæ það ekki heldur síðar. Eftir daginn á morgun heiti ég frú Sanders -— og Bella frænka kemur í brúðkaupið. Ameríkumaður falaðist nýlega eftir kauþum á — dómkirkjunni i Poitiers í Frakklandi. En ekki varð af kaup- unum, þvi að Ameríkumaðurinn setti það skilyrði, að hann mætti nota mynd af kirkjunni, sem sinni eign, á miða á niðursuðudósunum sínum. Hann selur nfl. alls konar niður- suðuvörur. # Breal Holmes í New York er 11 ára og vegur 75 kiló. Hann þyngist um 2%—5 kiló á mánuði og læknarn- ir finna ekki nein ráð til að spyrna á möti spikinu. * í Indlandi hirti fóllc tennur sínar fyrir 3000 árum. Það notaði tann- bursta, en að vísu voru þeir mjög ófullkomnir. ÞAÐ hafa vafalaust orðið gleðifregn- ir fyrir Elisabetu Englandsdrottn- ingu og Margréti systur hennar, þeg- ar Butler, sem gegndi forsætisráð- herraembættinu í veikindum Churc- hills, gaf það til kynna í neðri mál- stofu breska þingsins, að fhaldsflokk- urinn hefði í hyggju að breyta rikis- stjóralögunum frá 1937. Skv. þeim lögum yrði Margrét prinsessa ríkis- stjóri, ef Elísabeth félli frá, þangað til Charles prins næði 18 ára aldri. Ef Margrét losnaði undan þeirri ábyrgð, sem lög þessi leggja henni á herðar, mundu líkurnar til þess, að hún fengi að eiga Peter Townsend, vaxa stórum. Elísabet systir hennar hefir og, að því er talið er, lengi liaft mikinn áhuga á því, að lögunum verði breytt þannig, að Philip maður henn- ar verði útnefndur ríkisstjóri. Þó að hægri menn á breska þinginu muni vafalaust greiða lagabreyting- unni atkvæði, verður mörgum það vafalaust óljúft. Það er ekki vegna þess, að þeir vilji koma í veg fyrir áframhald á ástarævintýri Margrétar prinsessu og Peters Townsend, heldur vegna þess, að þeir liafa horn í siðu Philips. Nú er Philip, hertogi af Edinborg, mjög vinsæll meðal almennings í Bretlandi. Hvers vegna er liann þá ekki jafndáður af breska aðlinum? Að nokkru leyti stafar það af frjáls- lyndi hans i skoðunum og frjálsmann- legri framkomu, en einnig vegna þess að hann er útlendingur, sem veitt hef- ir verið borgararéttindi í Englandi. Aðalástæðan er samt sú, að hann er af Mounbatten-ættinni, náfrændi Mountbattens jarls af Burma og skjól- stæðingur hans frá öndverðu. Mountbatten-heitið er upprunalega þýskt og ættarheitið var Battenberg. Battenbergarnir tilheyrðu þýska lág- aðlinum og höfðu aðsetur í Darmstadt. Ættin missti tignarheitið árið 1314. en fékk það aftur 1851 fyrir tilstilli stórhertogans af Hessen. Það var Julia Theresa sem þá var sæmd tign- arheitinu greifaynja af Battenberg. Sonur hennar, Louis Alexander, pólsk-þýskur að uppruna, varð síðar enskur rikisborgari og góður vinur og ráðgjafi Victoríu drottningu og eft- irmanna hennar í hásæti Bretaveldis. Hann varð einnig yfirmaður breska flotans, en varð að láta af því embætti snemma í fyrri heimsstyrjöldinni vegna ahnennrar kröfu, þvi að Bret- Louis Mountbatten. Philip hertogi. ar höfðu ekki gleymt liinum þýslca uppruna hans. Sonur hans, Louis Mountbatten, sem nú er 53 ára, hefir verið þekktur maður um 30 ára skeið. Hann giftist Edwinu Ashley, barnabarni Sir Ernst Cassel, sem lét 37,5 milljónir dollara eftir sig, þegar hann dó 1921. Þau hjónin liafa alltaf öðru hvoru verið forsíðuefni heimsblaðanna, sið- an þau giftust. Þau eru bæði glæsileg á velli og vel gefin. Jarlinn, sem geng- ur undir nafninu „Dickie“ var liátt- settur maður í breska hernum á stríðs- árunum, en var síðan gerður að land- stjóra í Indlandi — hinum síðasta. Nú er hann yfirmaður breska Mið- jarðarhafsflotans. Edwina er af þýsk- um, enskum, írskum, skoskum og Gyðingaættum. Auk þess rennur Indíánablóð í æðum hennar. „Dickie“ vann sig mjög í álit á slríðsárunum. Hann er snjall her- stjórnandi, fljótur að lmgsa óg áræð- inn. Einkum fór mikið orð af honum í Burma, er hann var yfirmaður hers Breta í Suðaustur-Asíu. Enginn vafi er á því, að Moúnt- battenhjónin liafa siður en svo reynt að spilla fyrir því, að Philip og Elísa- bet næðu saman. Breski aðallinn og íhaldsmenn yfirleitt telja Philip líka vera mjög undir áhrifum frænda sins, en jarlinn er talinn vinstrisinn- aður og eiga marga vini meðal vinstrj manna. Edwina hefir heldur aldrei verið boðin velkomin i hóp breska aðalsins. Hún er aðeins skoðuð sem metorðagjarn afkomandi þýsks fjár- málamanns af Gyðingaættum. En lnin hefir brennandi löngun til þess að láta bera á sér, en jafnframt hefir hún ætið haft ríka samúð með þeim, sem hafa orðið undir i lífsbaráttunni, og hefir unnið mikið i þágu góðgerða- starfsemi í Bretlandi og í Indlandi. Hægri menn i Bretlandi liálda þess vegna að áðurnefnd lagabreyting verði til þess að auka völd Mountbatt- enættarinnar, og þá einku.m Louis Mountbatten, sem hafi svo mikil á- hrif á Philip liertoga. En ótti þeirra er vafalaust að ýmsu leyti ástæðu- laus. Louis Mountbatten hefir fasta bólfestu á Malta og kemur aðeins í Framhald á bls. 10.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.