Fálkinn - 18.09.1953, Blaðsíða 10
10
FÁLKINN
För Andrées til
norðurpólsins
13. Klukkan 8 að kvöldi 13. júlí er
komið í óefni. Andrée, Strindberg og
Frenkel rannsaka allan farangur
sinn til að reyna að finna eitthvað
til að fieygja út. Sex litlar flotbaujur,
15
vindspegill, 75 kíló af sandi, ein
tunna og 200 kíló af dýrmætum mat
fer fyrir borð. Þetta bætir úr slcák.
Þeir lyftast aftur og líða áfram, og
30 metrum undir þeim sést ísbjörn
skokkandi. Andrée skrifar í dagbók-
ina: „Þetta er sannarlega stórfeng-
legt!“
En gamanið verður endasleppt.
Klukkan 0.30 morguninn eftir lýkur
flugferðinni. Loftbelgurinn kemst
ekki lengra, hann lendir á ísnum.
Hvergi sér til lands.
14. Mennirnir þrír eru nú staddir
á ísjaka langt norður í bafi. Alls stað-
ar kringum þá er hafís á reki, og næsta
land er 300 km. burtu. Loftferðin hef-
ir staðið 05 klukkustundir. Mennirnir
eru soltnir og þreyttir, en þeir hafa
annað að liugsa um en hvíla sig. Þeir
leiðangr'inum. — Þeir undirbúa ferða-
lagið, búa um farangurinn á sleðan-
um. Þeir eru þrír, einn handa hverj-
um þeirra. Líka hafa þeir segldúks-
bát, tjald, stóran svefnpoka, vopn og
skotfæri — og mat til þriggja mánaða.
Þeir eru þarna á jakanun: i heila
viku til að undirbúa ferðalagið. En
jakinn heldur ekki kyrru fyrir. Hann
rekur til suðvesturs.
10. Loks eru þeir ferðbúnir 22. júlí.
Klukkan 0 síðdegis hefst ferðin til
lands. Þeir komast brátt að raun um,
að það er mjög erl'itt að ganga þessa
íshrönn. Undir eins í ferðarbyrjun
verða þeir fyrir óhappi. Fyrsti sleð-
inn lendir í pytti. Strindberg stendur
í vatni í hné til að hann skuli ekki
sökkva.
Alltaf eru að verða fyrir þeim vak
ir og jakar á reki. Þeir nota litla jaka
sem ferjur yfir vakirnar. Ýta þeim
saman svo þeir myndi brýr. En þetta
er bæði tafsamt og erfitt.
VERÐLAUNAÞRAUT:
»Klnv(rslio*il(ejirodirijlin«
Verðlaun kr. 500.00
og kr. 200.00
43. 44.
MOUNTBATTEN.
Framhald af bls. 9.
skyndiheimsóknir til Bretlands. Þó
að hinum látna konungi hafi þótt
mikið til Mountbattens koma, þá geðj-
ast drottningarmóðurinni ekki að
Edwinu. Það er staðreynd, að nokkurs
kala hefir gætt milli Mountbattens-
hjónanna annars vegar og konungs-
fjölskyldunnar bins vegar upp á síð-
kastið. Telja má víst, að hugur
Mouritbattens standi ekki til annars
en þess að verða yfirmaður alls
'breska flotans, eins og faðir lians
var, þó að hann væri hrakinn úr
þeirri stöðu. „Dickie" hefir aldrei
gleymt því og þættist hafa reisf við
heiður ættarinnar, ef liann sjálfur
kæmist til þeirrar sömu tignar og
faðir hans.
Philip á Mountbattenhjónunum
frama sinn að miklu leyti að þakka.
Samt verður hann þess nú var, að
frændsemin við Louis Mountbatten
er honum nú orðið fremur fjötur um
fót en lyftistöng. En ættarböndin
verða ei afmáð. Hann er af Batten-
bergættinni og næsti konungur Breta-
veldis, Charles, er líka af þeirri ætt.
Það hefir ekki tekið nema eina öld
fyrir lítt þekkta lágaðalsætt frá
Hessen að komast að þýðingarmesta
hásæti veraldarinnar. *
Vilið þér...?
að mörg dýr geta svelt miklu
lengur en nokkur maður hefir
gert?
Til dæmis getur veggjalúsin lifað
sex ár matarlaus, og dæmi eru til
að körtur (pöddur) hafi svell i tiu
ár, og tórt þó.
að Niagara nagar einn mctra á ári
framan af bergstallinum, sem
fossinn fellur af?
Síðan hvítir menn sáu fossinn fyrst,
árið 1678, eða fyrir tæpum 300 árum,
hefir bergið slitnað um 300 metra.
Þess vegna hefir nú verið afráðið að
láta vatnið ekki streyma með fullum
kraftí nema frá kl. 8 til 22 þann tima
ársins, sem flestir koma til að skoða
fossinn, svo að „slitið“ verði minna
á honum.
verða að búa um sig á ísnum og afráða
hvað nú skuli taka til bragðs. — Það
brakar og brestur í ísnum kringum
þá. Stundum koma langar rifur en
svo lokast þær aftur. Ofan á ísnum
eru pollar — heilar tjarnir, — því
að sólin hefir brætt yfirborðið á isn-
um. — Síðdegis leggjast þeir til hvíld-
ar og sofa til klukkan 10 morguninn
eftir.
15. Þá fara þeir að afráða hvað gera
skuli. Þeir verða sammála um að
stefna til Franz Jósefs-lands. Þar
hefir verið sett upp vistabúr handa
Nú fer að fækka þrautunum, sem þið
eigið eftir að ráða. Aðeins nokkrar
þrautir eiga eftir að koma í blaðinu.
Ekki hefir ennþá endanlega verið
ákveðið, fyrir hvaða tíma síðustu ráðn-
ingar þurfa að hafa borist blaðinu, en
ykkur sem hafið sent okkur ráðningar
utan af landi, viljum við segja það, að
við munum hafa tímann það rúman,
að auðvelt verði fyrir ykkur að koma
siðustu ráðningunum til Fálkans í tæka
tíð, áður en dregið verður um verð-
launin.
Hinum sem ekki hafa sent okkur
ráðningar ennþá, en kynnu að hafa
hug á því, viljum við benda á, að ennþá
er nægur tími til að byrja. Aðeins ef
þið hafið öll blöðin sem dægradvölin
hefir komið í, getið þið þegar hafist
handa og sent okkur allar ráðningarnar
í einu lagi. Afgreiðsla Fálkans mun
þegar senda ykkur þau blöð, sem ykkur
kýnni að vanta.
Við viljum þakka öllum sem sent
hafa ráðningar, og látið i ljós ánægju
sína yfir þessari skemmtilegu dægra-
dvöl, sem Fálkinn héfir tekið að sér
að kynna ofurlítið fyrir lesendum
sínum.
Kaupmönnum úti á landi viljum við
banda á að Kínversku dægradvölina
er hægt að panta hjá Leikfangagerðinni
Langholtsvegi 104 og hjá heildverslun
Vilhelms Jónssonar Miðtúni 50. Reykja-
vík.
— Má ég kynna ykkur — unnustinn
minn, Hansen — og húsbóndinn. Svo
að nú geturðu séð það sjálfur, Viggo,
að það er ástæðulaust af þér að vera
afbrýðisamur.
— Það eru aurnu garðyrkjutækin,
sem þú hefir viðað að þér!
— Eg vissi það nú alltaf — hér er
ekki nokkur branda!
— Þarna, lestu svo síðuna með
teiknimy ndunum!