Fálkinn - 26.11.1953, Side 11
FÁLKINN
11
RITSTJORI: RAGNHEIÐUIt ARNADOTTIR.
Blár jakki með hvítum röndum
Þessi opni jakki gerir niann svo
grannan, með bragðningu um mittið
og slær sér út í gúlp á bakinu.
Efni: 400 gr. blátt fjórþætt ullar-
garn. H.vitt sömu tegundar.
I’rjónar: No. 2Vi og 3Vi. Heklunál.
Stærð: No. 42.
Bakið: Fitja upp 130 1. á prjóna no.
3% og prjóna slétt 9 prjóna. 10 prj.
prjónist slétt, á röngunni. Prjóna 10
prj. slétt. Tak á hjálparprjón, 130 1.
upp á fitinni og prjóna á næsta slétta
prjón aðra lykkjuna af honum og hina
af fasta prjóninum í einu tvær saman
sína af hvorum prjón þannig að
myndist faldur að neðan sem brýst
út á rönguna. Prjóna svo slétt ]>ar
til komnir eru 10 cm.. Þá er fært á
prjóna no. 2%. Breg’ ð 20 prjóna
(1 br., 1 sl.), fær þá aftur á
prjóna no . 3 V2 og prjóna slétt
þar tii bakið er 42 cin. Fell af
í liandv no' L O 8-3- -2—2- -1 1 . .hvoru
mcgin. Þegí ir handvegur inn er 22 cm.
er fellt af öxlunum 3x11 1., 32 I.
verða eft :ir og skai drag a þær á band.
Hægri barmur: Fitja upp 68 i. á
prjóna no. 3%. Prjóna i 9 prj. slétt,
þann 10. brugðinn (slétt á röngu).
Fitja 15 1. upp á enda prjónsins. 11.
prjónn: 7 i. slétt, 1 1. takist óprjónuð,
0 1. slétt, 1 1. brugðin, það sem eftir
er slétt. Þessar 15 1. að framan á
barminum prjónist þannig á öllum
slétln prjónunum.
12. prjónn: Er brugðinn að 15 síð-
ustu lykkjunum sem eru á þessum og
öllum binum ranghverfu prjónunum
eins (1 br., 14 sl.). Prjóna svo faldinn
eins og á bakinu, nema ekki á 15
fremstu lykkjunum, þær eins og áður
er sagt.
IÞá koma 4 prj. slétt, og nú er prjón-
að eftir mynstrinu, hvitar randir lá-
rétt og brugðnar rákir lóðrétt. Þegar
komnir eru 16 cm. eru 31 1. prjónuð
slétt, þá fært á prjóna no. 2Vi og
brugðið 20 prj. (1 br., 1 sl.) 52 1. sem
eftir eru á prjóninum. Fremstu 31
lykkjurnar prjónist ailtaf eins og
áður og mcð prj. no. 3Vl>.
Eftir 2., 14. og 24. jrrjón prjónist
aðeins 52 1. og þá er snúið við og
prjónað til baka. Þegar brugðningin
er búin er prjónað áfram þar til
lcomnir eru 42 cm. þá er fellt aftur í
handveginn 8—3—2—2—1 1. Þegar
liandvegurinn er 15,5 cm. er fellt af
i hálsinn, fyrstu 7 1. eru felldar af
og 22 1. dregnar á band. Þá er 1 1.
felld af i byrjun livers prjóns (háls-
niegin) 5 sinnum. Þegar handvegur-
inn er 22 cm. er fellt af á öxlinni
3x11 1.
Vinstri barmur: Spegilmynd af þeim
hægri.
Ermin: Fitja upp 48 1. á prjóna
Stjörnulestur
Eftir Jón Árnason, prentara.
Nýtt tungl 0. des 1953.
Albjóðayfirlit.
Orka, hugsun og tilfinning er yfir-
gnæfándi í heimsmálunum, en hygg-
indin eru frekar í dvalarástandi. eru
minna áberandi og breytiieikaáhrif
koma mjög til greina. Óvissa nokkur
og ráðleysi og liik i framkvæmdum. —
Nýia tunglið er i 3. lnisi ísienska lýð-
veldisins og bendir á að flutningavið-
fangsefnin séu mjög á dagskrá og
þeim veitt athygli. Venus hefir hér
góð áhrif og ýtir undir framkvæmdir.
Merlcúr bendir á blaðaumtal viðvíkj-
andi þessUm verkefnum.
Lundúnir. — Nýja tunglið er i 11.
no. 3Vi. Prjóna 9 prjóna slétt, 10 prj.
slétt á röngunni. Þá 10 prj. slétt. Á
næsta prjón prjónast faldurinn. Þá
er næst nriónað * 1 1. hr., slegið um
prjóninn * endurtekið alian prjóninn
á enda. Þá eru 95 1. á. Prjóna 18 prj.
slétt, eru hvítu randirnar prjónaðar
með 2 bláum prjónum á milli. Þegar
ermin er 47 cm. er fellt af í handveg:
Fvrst 8 1. livoru megin. svo 1 i. á
hvorum prjón þegar byrjað er, 25
sinnum á iivorri brún, og þá 2 ]. í
byrjun livers prjóns 3 sinnum livoru
megin. Fell 17 1. af sem eftir eru.
Uppsetning: Þegar stykkin hafa
legið í pressu milli blautra dagblaða
nokkra tíma eru þau saumuð saman
á öxiunum og hiiðunum. Framan á
börmunum eru beygðir inn faldar
um 8. lykkjuna þá sem tekin ey laus
af á réttunni alla leið upp. Nú eru
lykkjurnar teknar u’>n á liálsmálinu á
nrióna no. 2V. og fyrsti nrjónn prjón-
ist siétt yfir slétt og brugðið yfir
brugðnu, þó þannig að þær lykkjur
sem eru teknar unp á bilinu frá öxl
rð lykkjunum á bandinu á framstykk-
inu eru einnig brugðnar. Á næsta
prjón liyrja livítu randirnar á krag-
anum, eftir mynstrinu. Þegar kraginn
er búinn eru hvítu rákirnar að
framan heklaðar á brugðnu iykkjurn-
ar langs með barminum þannig: Hvíta
garnið er lagt undir að innan og
heklað gegnum lykkjurnar og verður
það eins og lylckjan sé prjónuð. Að
lokum eru ermarnar saumaðar í og
3 höft falin i brugðna stykkinu í mittið.
Þá eru hornin á kraganum pressuð.
Mynstrið: Svarta röndin hvítt, dep-
ídinn brugðið.
1. Bekkirnir sýna hvernig randirnar
og brugðnu iykkjurnar mætast.
2. Kraginn, þeir 12 prjónar sem
prjónaðir eru með hvítu leggist inn
á rönguna.
húsi. Stjórnin ætti að hafa nokkuð
sterka afstöðu í þinginu og þingmál
mjög á dagskrá og þeim veitt mikil
og almenn athygli. — Venus í 10. húsi.
Þetta ætti að boða góða aðstöðu stjórn-
arinnar og friður ætti að vera um
hana. — Satúrn i 9. húsi. Tafir nokkr-
ar munu koma í ljós í utanlandssigl-
ingum og viðskiptum. — 18. liúsi eru
Mars og Neptún. Ólíklcgl að ríkið
eignist fé að erfðum og samningar
ganga slælega og óorðheidni gæti átt
sér stað og svik. — Júpíter í 5. húsi.
— Góðæri fyrir leikhús og ieikara.
Berlín. — Nýja tunglið í 10. húsi.
Stjórnin og afstaða hennar undir
mjög áberandi áhrifum og henni veitt
mikil athygli. — Merkúr og Venus í
9. húsi. Utaniandssiglingar og við-
skipti undir góðum áhrifum og ættu
að ganga vel. Umræður nokkrar þó
um þessi mál. — Mars og Neptún í 8.
húsi. Ríkið mun ekki eignast fé við
dauðsfall á þessum tíma. — Plútó
í 7. húsi. Saknæmir verknaðir gætu
komið i ljós í meðferð utanrikismál-
anna. — Úran í 0. lúisi. Óánægja og
urgur meðal verkamanna og spreng-
ing gæti átt sér stað í herskipi og
orsakað dauðsfail. — Júpíter í 4. húsi.
Landbúnaðurinn undir góðum áhrif-
um og stiTlur í veðri, norðlæg átt.
Moskóva. — Nýja tunglið í 9. húsi.
Bendir á að utanríkisverslun sé undir
áberandi áhrifum og henni veitt at-
hygli. — Merkúr í 8. húsi. Ríkið ætti
að auka eign sina að verulegu leyti.
— Plútó í 6. húsi. Bendir á athuga-
verðar hreyfingar á bak við tjöldin
gegn ráðendunum og saknæmir verkn-
aðir koma í ljós. — Úran í 5. húsi.
Leikhús og leikarar undir siæmum
áhrifum. Sprenging gæti átt sér stað
í leikhúsi eða skennntistað. Júpíter í
3. húsi. Góð áhrif á flutninga, póst
og síma, prentun, blöð, bækur og
fréttaþjónustu yfir höfuð.
Tokýó. — Nýja tunglið í 5. húsi,
ásamt Merkúr og Venusi. I.eikarar og
leikhús og skemmtistaðir undir góð-
um áhrifum og vekja nokkra atliygli
og fjárhagur þeirra mun batna og um-
ræður um það í blöðum. — .Mars,
Satúrn og Neptún í 4. húsi. Slæm
áhrif á bændur og aðstöðu þeirra.
Barátta kemur i ijós í viðskiptum
þeirra, en ])ó munu ráðendur aðstoða.
— Plútó í 2. húsi. Fjárliagurinn undir
óheppilegum áhrifum og saknæmir
verknaðir gætu komið i ijós í sam-
bandi við rekstur fjáraflafyrirtækja
og banka. — Júpíter í 12,-húsi. Betr-
unarhús, spítalar og góðgerðarstarf-
semi undir góðum áhrifum og njóta
aukinna fjárframlaga.
W.ashington. — Nýja tunglið er i 2.
húsi. Fjármálin æltu að vera undir
góðum áhrifum og þeim veitt áber-
andi athygli. — Merkúr og Venus í 1.
húsi. — Afstaða almennings ætti að
vera góð og sæmilega friðsælt tíma-
bil. — Neptún i 12. húsi. — Dulfræði
og andatrúarstarfsemi færist i aukana
og barátta nokkur gæti komið til
greina í þeim efnum. Saknæmir verkn-
aðir gætu komið í ljós i sambandi við
góðgerðastofnun, betrunarhús eða
spítala. — Úran í 9. ln’isi. Sprenging
gæti komið upp í skipi og uppivaðsla
gegn yfirráðendum á siglingaflotan-
um. — Júpíter í 8. iu’isi. Ríkið gæti
cignast fé að erfðum eða hagnast á
útgáfu bóka.
1 s 1 a n <1 .
1. hús. — Nýja tunglið er i húsi
þessu. — Aðstaða almennings mun
verða áberandi og veitt almenn at-
hygli. íþróttir ættu að færast i ank-
Framhald á bls. 14.