Fálkinn - 26.11.1953, Side 12
12
FÁLKINN
FRAMHALDSSAGA:
Þeir elskuðu
Skáldsaga eftir Anne Duffield.
ráðahag! Fátæk eins og kirkjurotta í dag,
prinsessa og milljónamæringur á morgun. —
Hvað gengur að þér, Suzette?
Suzette hafði hlustað á móður sína með
fyrirlitningarsvip og'svaraði nú afundin: —
Stundum liggur mér við að halda að ég sé
sú eina í fjölskyldunni, sem hefi augu í hausn-
um. Af öllum bjánum og flónum sem ....
— Suzette! Hvernig dirfist þú . ...!
En ofanígjöf móðurinnar missti marks.
Suzette hafði rokið út eins og eldibrandur
og skellt hurðinni eftir sér.
SUZETTE TEKUR 1 TAUMANA.
Rósalinda lá í rúmi sínu, örmagna og harm-
þrungin. Hún var náföl og í birtunni frá nátt-
lampanum komu baugarnir undir augunum
skýrt fram, og rákirnar kringum munnvikin.
Það hafði tekið mjög á hana að halda
sér uppi þetta kvöld, en það hafði tekist, og
meira að segja mjög vel. örvæntingin, þján-
ingin af að sjá John aftur og yfirnáttúrulegur
vilji hennar á því að komast yfir torfærurnar
óbeðin og án þess að bregðast prinsinum, hafði
í sameiningu gætt hana eins konar hrollkátínu,
sem ókunnugir gátu vel haldið að væri ham-
ingjukennd og lífsgleði. Hvorki gestirnir né
fjölskyldan höfðu tekið eftir neinu óeðlilegu
í háttalagi hennar um kvöldið. Hún var hin
eiginlega húsmóðir i samkvæmi Agöthu þá
eins og endranær, sá um að gestunum liði vel
og að framreiðslan gengi greitt. Hún var stoð-
in sem Greensfólkið gat ekki verið án. Á eftir
var spilað bridge og Rósalinda spilaði betur
en nökkru sinni áður, og það líkaði Green
vel.
En nú var ailt afstaðið og hún var ein. Og
hugrenningarnar komu með einverunni og
myrkrinu; örvæntingin og harmurinn fengu
yfirhöndina aftur. John! Hvers vegna hafði
hann komið aftur? Það var óréttlátt og
grimmilegt. Hún hafði loksins sætt sig við
þá tilhugsun að geta lifað án hans. Hún hafði
öðlast þor til þess að horfa fram og von um
að hún gæti fetað þá slóð sem hún hafði valið
sér — samferða Ali prins. En nú! John hafði
komið aftur og með nærveru sinni hafði hann
tætt sundur grundvöllinn sem hún stóð á. Hún
reyndi að sjá Ali í huganum, hugsa um hlýj-
una og alúðina í framkomu hans og um fram-
tíðaráform þeirra. En það var árangurslaust.
Sviphreina, næma andlitið á John með gráu
augun kom alls staðar fram og afmáði hina
myndina. Þetta var brjálæði og hún vissi það,
en engar skynsemisfortölur gátu drepið ást
hennar til Johns.
Og hún sem hafði sagt að ást hennar til
hans væri dauð? Hún gat aldrei dáið. Það
vissi hún núna. Hún hafði gert allt sem hún
gat til að gleyma honum, hún hafði hatað
hann og sett annan í hans stað. En þessir
stuttu samfundir í dag höfðu sópað öllu 'þessu
á burt.
Bara að hann hefði aldrei komið aftur! En
óskaði hún þess í raun og sannleika? Nú vissi
hún þó að minnsta kosti að hann elskaði hana,
21.
hniia tveir.
og að hann hafði ekki ætlað sér að yfirgefa
hana. — Iíann elskar mig! John elskar mig!
.... Hún roðnaði við þessa tilhugsun. Hún
bylti sér óþreyjufull í rúminu. Ef hún hefði
aðeins beðið dálítið lengur .... ef hún hefði
treyst honum ....
Það var barið varlega á dyrnar og Suzette
kom inn á tánum.
Rósalinda reis upp við dogg. — Suzette,
er eitthvað að?
— Nei, hvers vegna sefurðu ekki, Rósa-
linda? Eg sá að það var Ijós inni hjá þér.
Klukkan er orðin yfir þrjú.
— Eg er ekki syfjuð. En hvers vegna ertu
ekki sofnuð sjálf?
— Eg er heldur ekki þreytt.
Suzette settist á rúmstokkinn. Hún var í
rósrauðum slopp utan yfir náttkjólnum. Hár-
ið var slegið og var eins og fögur umgerð
um sólbrennt andlitið og stór gljáandi augun.
Rósalinda, sem ekki hafði náð sér eftir eftir
hvað henni varð bylt við að sjá Suzette þarna
á þessum tíma sólarhringsins, horfði nú á
hana og sagði ósjálfrátt: — En hvað þú ert
falleg, Suzette!
— Er ég það. Verst að enginn annar skuli
taka eftir því, svaraði Suzette stutt. — En
annars kom ég ekki hingað til að tala um
sjálfa mig.
— Til hvers komstu þá?
— Æ, ég veit það varla .... En ég lá og
var að hugsa um dálítið .... Hvers vegna
ertu svona áfjáð í að halda áfram þessari
vitfiri'ingu, Rósalinda?
— Hvaða vitfirringu?
— Að giftast Ali prins!
Brúnu augun í Rósalindu urðu flöktandi.
— Þú veist það vel sjálf .... Vegna þess
að mér þykir vænt um hann.
— Bull! Þér þýðir ekkert að reyna svona
fyrirslátt við mig. Eg er ekki steinbiind — þó
að hitt fólkið á heimilinu virðist vera það.
— Heyrðu nú, Suzette ....
— Þú mátt ekki segja að þú gerir þetta
vegna þess að þú sért ástfangin af Ali prins!
Heldurðu að ég viti ekki hvers vegna þú fórst
að trúlofast honum, alveg upp úr þurru? Það
er fúleggið hún Iris, sem á sök á þessu öllu!
Eg veit ekki hvað gerðist en ég get lesið
mest af því milli línanna, held ég. Þú gerðir
þetta af þvi að þú máttir til að hylma yfir
með henni á einhvern hátt, og svo stendur
þú við orð þín af því að þú vilt ekki særa
prinsinn.
— Nei, þetta er ekki satt ....
— Vertu ekki að ljúga, tók Suzette fram
í. — Þú fórnar sjálfri þér. Einmitt þess háttar
firrur tekur þú stundum í þig. 1 raun og sann-
leika elskar þú Jöhn Midwinter út af lifinu,
og hann þig. Jú, víst .... þú þarft ekki að
taka fram í til að gefa skýringar, ég veit
að þið hafið rifist, en þú ert jafn ástfangin
af honum eftir sem áður. Hann kom hingað
i dag til að hitta þig og sættast við þig, og
þú hraktir hann auðvitað burt, af þvi að þú
þóttist verða að efna það sem þú hefir lofað
prinsinum. Æ, ég hefi enga samúð með svona
hetjum eins og þú ert.
— Þér skjátlast, Suzette, sagði Rósalinda.
— Eg giftist Ali vegna þess að mig langar
til þess. John er mér einskis virði framar.
En allt í einu og án þess að Rósalinda gæti
ráðið við það, glúpnaði hún fyrir rannsókn-
araugum Suzette. Hún kastaði sér til baka í
rúminu og reyndi að stöðva grátinn sem braust
fram með sárum ekka.
— Rósalinda! Suzette beygði sig niður að
henni og lyfti grönnum líkama hennar upp
í rúminu og strauk henni hárið.
— Vertu ekki að gráta.
Rósalinda þurrkaði sér um augun og leit
upp. — Eg hélt að .... þú hataðir mig!
— Enga vitleysu! Suzette sleppti henni og
rétti úr sér. — Mér hefir þótt vænt um þig
síðan við sáumst í fyrsta skipti. Þú ert göf-
ugasta og heiðarlegasta manneskjan sem ég
þekki.
— En .... það hefir verið svo erfitt að
skilja þig, muldraði Rósalinda í vasaklútinn
sinn.
— Eg veit að ég hefi verið níðingsleg við
þig, sagði Suzette, — en við vildum báðar ná
í sama manninn. Eg öfundaði þig — þú ert allt
það sem ég gat aldrei orðið. Og ég hefi hatað
allt þetta tilstand, mér fannst háðung að láta
þig koma okkur á framfæri í samkvæmislífinu
í Cairo. En það var ekki fyrr en eftir að John
kom til sögunnar að ég lét gremju mina bitna
á þér. Eg vildi ná í hann en hann vildi enga
nema þig. Nú veistu það!
— Eg hefi alltaf vitað það, sagði Rósa-
linda. — En mér þykir vænt um að heyra
að þér hefir þótt dálítið vænt um mig.
— Þú virðist nú ekki beinlínis ánægju-
leg samt, þarna sem þú liggur. Eg varð laf-
hrædd þegar ég opnaði dyrnar og sá þig
liggja þarna eins og liðið lík. Og í dag þegar
við komum heirn ....
— Nei, Suzette .... Rósalinda fór að gráta
aftur.
— Hlustaðu á mig, Rósalinda, sagði Suz-
ette einbeitt. — Þú getur ekki haldið þess-
um skrípaleik áfram. Það er fásinna! Prins-
inn mundi verða fyrstur manna til að segja
það. Hann mundi gefa þig frjálsa aftur undir
eins og þú segðir honum sannleikann. Og
hann mundi ekki hallmæla þér. Hann mundi
alls ekki taka í mál að giftast þér ef hann
vissi sannleikann.
— En hann fær aldrei að vita neitt.
— Þú játar þá að þú elskir John?
— Eg víl ekki játa það, svaraði Rósalinda
og nú vottaði fyrir brosi, — en mér er víst
engrar undankomu auðið gagnvart þér.
— En — ef þú elskar John, hvernig i öllum
ósköpunum getur þér þá dottið í hug að gift-
ast prinsinum? Hvers vegna viltu gera tvær
manneskjur óhamingjusamar í stað einnar.
Eða þrjár, ef því er að skipta því að vitan-
lega kemst Ali prins að því sanna í málinu
fyrr eða síðar.
— Nei, þess þarf hann ekki, sagði Rósa-
linda þrá.
Brúnu augun í Suzette skutu neistum. —
Það væri gaman að geta troðið ofurlítilli
vitglóru í þig. — Hvernig ætlarðu að komast
hjá því að hann fái að vita sannleikann?
— Með því að koma aldrei upp um mig.
Ali er besti vinurinn sem ég hefi nokkurn
tíma átt, og ekkert afl í veröldinni gæti knúð