Fálkinn - 29.01.1954, Blaðsíða 11
FÁLKINN
11
J)rfónuð húfa-
handa smábörnum
RITSTJÓRI: RAGNIIEIÐUR ÁRNADÓTTIR.
„Húsfreyjan“
TímaritiS „Húsfreyjan“ 3.—4. töln-
])lað 4. árgangs kom út rétt fyrir jól-
in. Tímarit þetta er gefið út af kven-
félagasambandi íslands og hefir ]iví
meðai annars þann tilgang að flytja
fréttir af starfsemi kvenfélaga um allt
land, og jafnframt er það ætlað ölinm
íslenskum konum til fróðleiks og
skemmtunar. Nokkrar breytingar hafa
orðið á rekstri blaðsins, og var blað
])að, er út kom fyrir jólin bið fyrsta
eftir breytinguna. Meðal annars var
kosin sérstök útgáfustjórn fyrir blað-
ið, og 'hana skipa þær Sigrún Árna-
dóttir, Elsa Guðjónsson og Svava
Þórleifsdóttir, sem jafnframt er nú
ritstjóri blaðsins.
Umrætt tölublað er mjög fjölbreytt
og prýtt fjölda mynda. Margt ágætra
greina er i blaðinu, m. a. tveir nýir
þættir, heimiiisþáttur, sem flytur
m. a. prjónauppskriftir og manneldis-
þáttur sem flytur mataruppskriftir og
fleira. Mun fyrirhugað að hafa blaðið
með svipuðu sniði fyrst um sinn og
lofar síðasta tölublað góðu um fram-
tíð þess.
Greinin sem hér fer á eftir birtist i
heimiÍÍSþætti Húsfreyjunnar og er
skrifuð af frú Elsu Guðjónsson.
Um nylonsokka
Hvað táknar denier og gauge?
Þegar nylonsokkar fóru fyrst að
flytjast hér til lands, þóttu þeir af-
burða sterkir og þvi hið mesta þing.
En þegar frá leið fór að bera á
óánægju manna i meðal með endingu
nylonsokkanna og er svo enn. Sum-
part kann þetta að stafa af því, að
konur eru farnar að gleyma því hve
rayon (gervisilki sem þá var kallað)
og „pure“-sokkarnir voru raunveru-
lega endingarlitlir, en aðalorsökin
mun þó vera sú, að fyrstu nylonsokk-
arnir, sem inn voru fluttir, voru
sterkari og betri en allur þorri þeirra,
sem nú eru hér á boðstólnum.
Gæði nylonsokka fara eftir styrk-
leika (þykkt) þráðanna og þéttleika
(stærð) lykkjanna. Þykkt þráðanna
er mæld í denier, en þéttleiki í gauge
(frb. geidsj). Algengustu þráðarþykkt-
ir eru nú 15 og 30 denier, og er 15
denier þráður helmingi fíngerðari en
30 denier þráður. Er mcgnið af nylon-
sokkunum, sem hér ertt á boðstólum,
úr 15 denier þráðum, þótt einnig fáist
30 denier sokkar. En þá er þess að
gæta, að upphaflega voru nylonsokk-
ar ekki úr fínni þráðum en 40 denier,
sem sé úr mun þykkari þráðum cn
þykkustu sokkarnir, sem við getuni
keypt í dag.
Algengar lykkjustærðir á sokkum
eru 45, 51 og 60 gauge, og er 45 gauge
gisnast en 60 gauge þéttast. Eftir því
sem lykkjan er þéttari (smærri) verð-
ur meiri teygja í sokkunum og þeir
þá um leið sterkari, en jafnframt þessu
sýnast þeir finni * *á fæti. 30 denier
sokkarnir eru oftast nær 45 gauge,
en 15 denier sokkarnir ýmist 51, 54
eða 60 gauge. Eru þá að sjálfsögðu
60 denicr sokkarnir bestir af þeim
síðastnefndu. En slíkir sokkar sjást
sjaldan i verslunum hér, hvað þá
30 denier sokkar með hærri lykkju-
tölu en 45. Þó munu framleiddir
30 denier sokkar með 60 og jafnvel
(56 gauge. Eru þeir bæði fallegir á fæti
og auk þess mjög sterkir. Væri ósk-
andi að liægt væri að fá slika sokka
flutta til landsins!
Hér á landi, a. m. k. i höfuðstaðn-
um virðist sú skoðun rikjandi, að
tískunnar vegna verði konur að ganga
i næfurþunnum sokkum. En sumum
hefir reynst dýrt að tolla í þeirri tísk-
unni. Nylonsokkar eru dýrir í inn-
kaupi, og geta óhagkvæm sokkakaup
því hæglega valdið nokkurri röskun
á daglegri rekstraráætlun heimilis.
Til ])ess að forðast slíkt, er gott að
hafa eftirfarandi atriði í huga:
— Kaupið 30 denier sokka til hvers-
dagsnotkunar, og notið 15 denier
sokka aðeins þegar mikið liggur við.
— Kaupið helst tvenna eða þrenna
sokka í einu, ef fjárhagurinn leyfir.
Þá er hægt að nota staka sokkinn, ef
cinn skyldi ónýtast, með hinum
sokkunum.
—- Þvoið ætíð sokkana úr góðu vel
volgu sápuvatni í hvert skipti sem þeir
hafa verið notaðir. Nuddið þá ekki og
vindið þá ekki í höndunum, heldur
þrýstið vatninu úr þeim. Hengið þá
til þerris í tá eða fit á hlýjum stað,
en þó ekki of nálægt ofni.
U M HÚSGÖGN.
Forngrikkir söfnuðu húsgögnum
fyrstir manna. Á heimilum efna-
manna varð ekki þverfótað fyrir
gömlum húsgögnum og forngripum,
á sama hátt og á heimilum ríkra
Englendinga á 19. öld. Rómverjar
söfnuðu líka gömlum húsgögnum, og
fornsölur voru jafn algengar i Róm
forðum eins og þær eru í Reykja-
vík núna.
*
Mazarin kardínáli, liinn frægi
stjórnspekingur, seldi húsgögn í
París í æsku. Þegar hann gekk í
])jónustu páfans og varð að vera á
sífelldu ferðalagi milli Paris og
Róm, notaði hann tækifærið til að
búa i haginn fyrir sig. Ilann keypti
húsgögn i Róm, fór með þau til
París og scldi þau þar með miklum
ágóða.
#
Þegar Caligula keisari var i fjár-
þröng, en það var hann oft, liélt
hann uppboð á húsgögnum í höll-
inni sinni. Á einu uppboðinu bar það
lil að gamall þingmaður, Aponius
Saturnius, sofnaði á stól aftarlega
í salnum. Caligula sagði uppboðs-
haldaranum, að í hvert skipti sem
höfuð Aponius kipptist við þá þýddi
það boð. — Og þegar gamli maður-
inn vaknaði uppgötvaði hann að hon-
um höfðu verið slegin liúsgögn fyrir
um tvær milljón lcrónur.
#
Þessi húfa er einkar snotur og hlý-
leg á smábörn. Stærð hennar miðast
við eins árs aldur. Hún er prjónuð
á prjóna nr. 3Ve og 3, og í liana fara
ca 60 gr. af uílargarni (14 lykkjur
eiga að mælast 5 cm.).
Ryrjað er á húfunni að neðan, og
eru fitjaðar upp 125 lykkjur. Vegna
munstursins verður lykkjufjöldinn að
standa á stöku. Prjónaðar 2 sléttar og
2 brugðnar á víxl; endað á einni
sléttri. Endurtekið þar til komnir eru
9 cm., þá er skipt yfir á prjóna nr. 3,
og á þá eru næstu 4 cm. prjónaðir.
Skiptið síðan aftur yfir á grófari
prjónana, prjónið siðan fyrstu 16
lykkjurnar og setjið þær á öryggis-
nælu eða aukaprjón, prjónið síðan
93 lykkjur, en siðustu 16 lykkjurnar
eru einnig geymdar á prjóni eða nælu.
Miðlykkjurnar 93 eru prjónaðar þar
lil komnir eru 13 cm; fellið síðan af
28 lykkjur í byrjun tveggja næstu
prjóna, lykkjurnar, sem þá verða eftir,
eru prjónaðar þar til komnir eru 10
cm. Fellið siðan af, sléttu lykkjurnar
slétt en þær brugðnu brugðið.
Hliðarnar, sem búið er að fella af,
eru saumaðar við miðstykkið. Snúið
réttunni að yður og prjónið á fínni
prjónana, fyrst fyrri 16 lykkjurnar,
sem geymdar voru, takið siðan 92
lykkjur upp á framkanti húfunnar og
síðast hinar 16 lykkjurnar. Prjónið
2 sléttar og 2 brugðnar og endurtakið
þar til komnir eru 2V4 cm, fellið
siðan af.
Að lokum er neðsti hluti húfunnar
saumaður saman að framan. Ef óskað
er má brjóta upp á húfuna að framan.
Nýtt silfurhreinsiefni.
Nýlega kom á markaðinn hér i bæ
nýtt efni til að hreinsa með silfur og
silfurborðbúnað. Efni þetta heitir
Silver Quick og er flutt inn af versl-
uninni „Málarinn“. Er hér um algera
nýjung að ræða því að með efni þessu
má hreinsa silfurmuni án þess að
nudda þá og fægja. Silver Quick er
þunnur vökvi og nægir að dýfa silfr-
inu ofan i hann eða ef um stóra
silfurgripi er að ræða er vökvanum
liellt í klút og hluturinn þveginn með
honum. Siðan eru hlutirnir skolaðir
lauslega og þurrkaðir og eru þá öll
óhreinindi á brott úr silfrinu. Silver
Quiclc er mjög auðvelt í notkun og
fljótvirkt og þvi líklegt til vinsælda
meðal reykvíslcra húsmæðra.
T ískumyndLr
LÁTLAUS KJÓLL.
Sléttur einjaldur kjóll úr brúnu ullar-
jersey. HálfsíÖ kápa samlit lögö
íburöarmiklu refaskinni er notuö utan
yfir.
VETRARHATTUR.
Þessi liattur er úr gráu og rauöu prjóna-
efni (Jersey) og er sagöur tolia mjög
vel á liöföinu í vetrarnepjunni. Prjóna-
efniö er allt lagt í örsmáar fellingar.