Fálkinn - 30.04.1954, Síða 10
10
FÁLKINN
GARÐURINN OKKAR.
Frh. af bls. 5.
Til eru fleiri afbrigði af Nemopliilu
sem einu nafni eru nefnd Vinablóm,
þótt þau hafi lítið verið rækluð hér.
Vinahlómin eru mjög fallegar og vina-
legar jurtir eins og nafnið her með
sér. Auðræktuð og hlómgast oft
snemma í jiilí þótt sáð sé beint út i
garðinn, en rétt er að sá svo snemma
sem mögulegt er. Grisja verður jiannig
að 20—25 cm. bil verði milli plantna.
Jurtin er fremur skriðul og sómir sér
best sem kantjurt.
2. Phacelia campanularia (Blá-
klukkubróðir og Phacelia tanaceti
(Bíflugnablóm).
Einu nafni nefndar Hunangsjurtir.
Litur krónublaða blár. Bláklukku-
bróðirinn dekkri en Bíflugnablómið,
því nær fjólublátt.
Sáist í þurra mold svo snemma sem
liægt er. Grisjun nauðsynleg, 10—20
cm. milli plantna. Stöngullinn allt að
20 cm. á liæð. Er jurt þessi sérstaklega
heppileg í brekkubeð innan um lá-
vaxinn gróður. Blómgast í júlí.
3. Helipterum roseum (eða Acroc-
linium roseum).
Eilífðarblóm. Blómgast tæplega fyrr
en seint í júlí eða í ágúst. Sé sáð
seinna en síðast í apríl. Getur orðið
allt að 50 cm. á hæð. Blómin má
þurrka og hafa til skrauts innan húss
í vösum eða blómsveigum og gcta þau
haldið lit og lögun svo árum skiptir
séu þau ekki látin ná til raka.
Grisjun þarf ekki að vera nauðsyn-
leg, sé þess gætt að sá ekki um of
þétt. Best fer á að láta jurtina vaxa
i grúppu (þ. e. samfelldri beðju).
Blómlitur rauð gulur. Fræ fremur fín-
gert, sáist ekki of djúpt.
Eilífðarblómið Helichrysum kemur
einnig til greina en blómstrar mun
seinna sé sáð beint i garðinn.
4. Eschscholtzia californica (Gull-
brúða).
Valmúgategund, mjög auðræktuð
með Ijósgulum krónublöðum. Mjög
þokkaleg jurt í trjábeðum eða í
blómabeðju sér í beði. Hæðin á stöngli
getur verið frá 15—35 cm. eftir vaxt-
arskilyrðum.
Blómgast frá miðjum júni til byrjun
júlí. Getur myndað fulI])roskuð fræ
í flestum árum og sáð sér út í beðið
og komið upp undir veturinn eða fræ-
ið iifað af veturinn og komið upp
næsta vor. Færsla á jurtinni kemur
tæpast til greina en grisjun getur orð-
ið nauðsynleg, 15—20 cm. milli
plantna.
Fleiri tegundir valmúa eru heppi-
legar til áningar beint í garðinn með
jöfnum ræktunarárangri og Eschsc-
hotzía og ber þá sérstaklega að nefna
júlísól (eða Papaver glaucum) og hin
fjölmörgu afbrigði Deplasólar (eða
P. rhoeas).
5. Borago officinalis (Hjólkróna).
Blómgast í júlí—ágúst. Hæðin á
stöngli um 40 cm. Blómin blá, drjúp-
andi, ginlepparnir hvítir. Falleg jurt
og auðræktuð. Góð í grúppur eða
margfaldar raðir með gular blómjurtir
að bakgrunni.
(i. Ursinía (Baugstjarna). Góð í
þétta brúska. Rauðgul blóm. Blómgast
í júli—ágúst. 5—10 cm. millibil milli
plantna. Þarf skjól.
7. Mimulus (Apablóm). Fræið ekki
hulið, sökum þess hve smátt það er.
Grisjun nauðsynleg, 15—20 cm. milli-
bil. Þolir vel færslu og gróðursetn-
ingu á nýjan leik. Æskilegra að sáð
sé til þess inni snemma vors. Jurtin
þolir all velrakan jarðveg og tals-
verðan skugga. Getur lifað úti yfir
veturinn. Jafnvel sáð sér og vaxið
upp af fræinu næsta vor. Blómin
skrautleg runna blóm. Gul með rauð-
um óreglulegum dröfnum (því sem
næst skræpótt). Blaðlús sækir mjög á
Apablóm. Nýtur sín best í samfelldri
röð eða grúppum. Hæð 10—20 cm.
8. Nigella damacena (Skrautfrú).
Blómgast í júlí—ágúst. Grisjun æski-
leg 15 cm. millibil. Litur Ijósblár. Sá-
ist eins snemma og hægt er. Hæð
40—50 cm.
9. Iberis arma (Snækragi). Litur
hvítur. Hæð misjöfn. Sáist beint í
garðinn í apríl—maí og grisjist með
10—15 cm. millibili. Blómgast í júli.
10. Linum grandiflorum (Sumarlín).
Getur orðið nokkuð há. Blómkrónan
rauð og gljáandi. Verður að vera út
af fyrir sig i beði. Sáist gisið til að
komast hjá grisjun (5—10 cm.).
Blómgast i júli ef sáð er snemma.
11. Malcolmía maritima (Strandrós
eða strandlewkoj). Blómin í klösum
rauð og ilmrík. Sáist svo fljótt sem
hægt er. Grisjun nauðsynleg, millibil
15—20 cm. Hæðin 15—25 cm. Byrjar
að blónistra í júli og heldur áfram
blómgun allt til hausts. Góð í raðir i
trjábeðum.
12. Asperula azurca setosa (Skógar-
stjarna). Sáð beint i garðinn upp úr
miðjum april. Grisjun ekki nauðsynleg
ef sáð er gisið. Litur Ijósblár. Blómið
stendur skannna tíð, svo að heppilegra
er að gróðursetja aðrar síðblómstrandi
jurtir við hlið hennar og nema Skógar-
stjörnuna á burt eftir blómgun. Blómg-
ast i júlí.
13. Dimorphoteca sinata. (Regn-
boði). Segir til um ef regn eða þoka
er í aðsigi og lokar þá blómið sér.
Mjög ánægjuleg jurt. Litur bleik gul-
ur. Sáist mjög snennna i april. Þolir
illa mjög rakan jarðveg. Blómin
standa fram eftir öllu hausti. Blómg-
un hefst i júlí. Grisjun nauðsynleg
15—20 cm. Nýtur sín best i sérbeðum
eða tveim samfelldum röðum og getur
þá farið vel á að hafa tegundina
Calendula pluvialis í annarri röðinni
en það er hvítt afbrigði af Dimor-
photecu og öllu fegurra en hið bleika.
Æskilegra væri að sá inni i niars—
apríl.
14. Centaurea cyanus (Kornblóm).
Stöngullinn 40—00 cm. hár. Blómin
blá. Góð til afskurðar. Blómgast í júlí
ef sáð er í rnars eða snemma í apríl.
Ekki sérlega skennntileg planta en
getur verið góð upp við garðveggi og
á öðrum slíkum stöðum. Þolir illa
sterka vinda. Millibil milli plantna
æskilegt 20—25 cm.
15. Calendula officinalis (Fagurfíf-
ill). Þekktust undir nafninu Morgun-
frú. Þarf helst að sá henni inni
snemma i april eða enduðum mars og
umplanta í kassa fljótlega eftir spír-
un. Mörg afbrigði til en öll i gulum
lit eða rauðgulum. Kemur til greina
að sá henni beint í garðinn, en blómg-
unar er tæpast að vænta fyrr en um
mánaðarmót júli—ágúst. Millibil milli
plantna þarf að vera 20—25 cm. Hæð
liennar getur orðið frá 20—45 cm.
Þótt fleiri blómjurtir mætti til-
nefna sem til greina geta komið við
sáningu beint í garðinn læt ég liér
staðar numið. Við skulum ekki gera
ráð fyrir áburði í sambandi við þessa
ræktun okkar, þar sem lítils árang-
urs þarf að vænta við þessar sáningar
beint í garðinn nema því aðeins að sáð
sé í frjóa vel ræktaða jörð. Heppilegt
getur verið að gefa öðru hvoru í
júní fram að blómgun væga áburðar-
upplausn (t. d. 1 hnefa af köfnunar-
efni, Vi hnefa kali, V2 hnefa fosfar út
í 12 lítra af vatni).
Og að lokum þetta: Hafið það ávallt
Iiugfast að alúð og umhyggja fyrir
vellíðan blómjurtanna er eina leiðin
til þess að þið njótið árangurs og
ánægju af verkum ykkar. Garðurinn
við hús ykkar er fordyrið að heim-
ilum ykkar og útlit garðsins gefur
betur en allt annað til kynna hvernig
menningu húsráðenda er liáttað. Og
farið nú þegar í dag út í garðinn ykk-
ar og alhugið livað þar má umbæta.
10. apríl 1954.
Hafliði Jónsson frá Eyruni.
Sir Isaac Newton tók aðeins einu
sinni til máls meðan hann sat í parle-
mentinu enska. Hann stóð upp til að
spyrja forsetann hvort ekki mætti
láta aftur gluggann.
í Evrópu er alls 37% af landrýminu
liæft til ræktunar, en 10% i Norður-
og Mið-Ameríku, en í hinum heims-
álfunum aðcins 3—G%!
TUTTUGU ÁRUM SÍÐAR
Framhald af bls. 9.
mennirnir tveir litu íbyggnir hvor til
annars. Drower kinkaði aðeins kolli
og sneri sér svo undan. Hann beit
á vörina og gekk að meðalaskápnum
með rauða krossinum á hurðinni.
Marshland stundi. Drower leit
snöggt við og sá náfölt andlitið og
augun stara á aðra höndina. Blóðið
lagaði úr vinstra þumalfingri. Drower
opnaði skápinn í snatri og náði i um-
búðir og flýtti sér að binda um fing-
urinn.
„Þetta getur dlltaf viljað til þegar
manni er órótt, þá hættir manni til
að slasa sig,“ sagði Drower. „F.n eflir
nokkrar vikur er sárið gróið, og þá
getið þér byrjað nýtt líf.“
„En fingrafarið?“ hvíslaði Mars-
hland og reyndi að harka af sér.
„Við getum ekki tekið það núna,“
svaraði Drower. „Ég get alls ekki
hugsað mér að heiðarlegur maður eins
og þér, Marshland, geti verið sami
maðurinn og bankaræninginn fyrir
tuttugu árum. Mér þykir leitt að ég
skyldi verða of seinn til að afstýra
þessu slysi.“
„Þakka yður fyrir, Drower," sagði
Marhland lágt og reyndi að byrgja
fyrir tárin með ósködduðu liendinni. *
PÍNA, PUSI OG SIGGI SVARTI
1. mynd: Maren gamla er sennilega ekki heima, því að enginn lýkur upp
fyrir þcim. — 2. mynd: Pína, Pusi og Siggi svarti gægjast inn um ghiggann,
eft sjá Marenu hvergi. — 3. mynd: Hún hlýtur að vera farin, því að stóllinn
hennar er auður og kaffikanna og bollar standa á borðinu. — 4. mynd: „Hún
er kannske hinu megin í garðinum," segir Pína. Þau gæta að því. — 5. mynd:
En þar er ekkert að sjá nema köttinn uppi í eplatré. — 6. mynd: Loks koma
þau auga á Marenu gömlu. Éún þýtur um garðinn, en sér ekki Pínu og Pusa.
— 7. mynd: Nú skríður hún upp á garðborðið. Hvers vegná? — 8. mynd: Hún
stendur uppi á borðinu og ber frá sér með kúst. „Hvað er eiginlega á seyði?“
spyr Pína.