Fálkinn - 19.11.1954, Side 10
10
FÁLKINN
að það kostar hundruð þúsunda
að hreinsa rusl úr görðum stór-
borganna?
Það kostaði t. d. 12.000 sterlings-
pund síðasta ár að hirða ruslið eftir
fólk úr görðunum í London. Eftir einn
einasta dag var ekið 16 tonnum af
rusli úr St. James Park.
að í sumum deildum atómstöðv-
anna verða menn að vinna alger-
lega einangraðir?
Þeir eru í ioftheldum plast-fötum
og úr þeim er loftleiðsla i annað her-
bergi, handa vísindamanninum að
anda að sér.
að til eru jurtir sem vökva jörð-
ina?
Prófessor einn í Kaliforníu liefir
komist að raun um, að sumar jurtir
hleypa dögginni sem safnast á blöðin,
ofan í jörðina. — Þetta liefir mikla
þýðingu fyrir jarðrækt á þurrlendi,
þvi að þar gætu jurtirnar sjálfar séð
fyrir raka í jörðinni. Bæði tómatar og
sykurrófur skila dögginni sem sest á
blöðin, ofan í jörðina.
(u mijncl
% Hvaða dýrahöfuð sést á myndinni annað en höfuð ö
X flóðhestsins? #
Það þarf ekki að setja Ati Khan á
neitt Grundarfjarðarhæli fyrir van-
goldin barnsmeðlög. Hann hefir boð-
ist til að greiða 1% milljón dollara
á næstu fjórtán árum til Yasmin
litlu, dótturinnar sem hann eignaðist
með Ritu Iiayworth og nú er fjögurra
ára. Og samt á Rita að fá að liafa hana
mestan hluta ársins. 100 þúsund doll-
arar eiga árlega að leggjast í sérstakan
sjóð handa Yasmin, en auk þess
borgar Ali 8.000 dollara á ári í líf-
eyri handa henni. Svo að Rita hefir
orðið „dýr i drift“. Hún skildi við
Ali í janúar 1953 og giftist aftur átta
mánuðum siðar.
„Karlmennirnir í Kaupmannahöfn
eru svo kjánalegir þegar þeir eru að
kíkja á kvenfólk, að það er ómögu-
legt að stilla sig um að stela af þeim,“
sagði 22 ára stúlka utan úr sveit, sem
var nýkomin i borgina. Á tveimur
dögum hafði lienni tekist að rýja allt
fémætt af sjö mönnum.
1. mynd: Nonni froskur hoppar. Skvett .... skvett. Beint ofan í þvottaskál-
ina. — 2. mynd: Svo á Siggi svarti að hoppa næst. Líka ofan i þvottaskálina.
— 3. mynd: Æ-æ. Hann hoppar of langt og lendir á grasinu, rétt lijá músinni.
— 4. mynd: Næst ætlar liún Trilla að sýna hve fim hún er með blöðruna. —
5. mynd: Þetta var vel gert, Trilla. Þú ert heimsmeistari í blöðruleik. — 6.
mynd: Trilla getur líka setið á blöðrunni, óstudd. Sjáið þið bara. — 7. mynd:
Gaman væri að athuga þessa blöðru betur, hugsar Lóra með sér. — 8. mynd:
Ég reyni að fljúga til hans. — Æ, hún Lóra flýgur frá mér. Stopp!
fó
— Voruð þér að kalla?
— Þér munduð ekki hafa húsnæði
til leigu?
— Þú getur haft fataskipti. Mér
hefir snúist hugur — Við förum suður
að Miðjarðarhafi en ekki í Jötun-
heima.
— Hafið þið blað og blýant til-
búið ........