Fálkinn


Fálkinn - 22.02.1957, Blaðsíða 3

Fálkinn - 22.02.1957, Blaðsíða 3
FÁLKINN 3 HERRANÓTT MENNTASKÓLANS. „Kátbroslegar kvonbænir“ UHKEF - bjargvsttur barnanno Ólafur Mixa sem hr. Hardcastle og Hólmfríður Gunnarsdóttir, sem leikur konu hans. Stundum er á það bent, að skóla landsins skorti mjög liefðir af ýmsu tagi, sem skipi nemendunum saman i eina heild og geri skólana að sér- stöku „þjóðfélagi", þar sem hver ein- staklingur hefir sínu ábyrgðarhlut- verki að gegna. Þetta er að vísu bæði rétt og ekki rétt. Rétt að því leyti, að íslenskir skólar standast að þessu leyti fæstir samanburð við gamla og þekkta erlenda skóla, sem okkur hættir til að taka til samanburðar, cn rangt að því leyti, að innan skóla- veggjanna í flestum skólum landsins vinna nemendurnir að margvíslegum hugðarefnum af elju og áhuga, þótt fáar sögur fari af þvi, þar sem mörg- um liættir til að halda hinu fremur á lofti, sem iniður fer. Eitt af því, sem almenningur verð- ur þó jafnan var við í skólalífi höf- uðstaðarins, er leikstarfsemi Mennta- skólans. Herranótt Menntaskólans í Reykjavík þykir skemmtilegur við- burður i leiklistarlífinu, ekki síst hjá unga fólkinu. Margir góðir leikarar hafa líka öðlast sína fyrstu reynslu i þessum mcnntaskólaleikjum. Að þessu sinni er sýndur gaman- leikurinn „Kátbroslegar kvonbænir" eftir Oliver Goldsmith. Benedikt Árnason annast leikstjórn, og Bjarni Ingigerður Iíonráðsdóttir, Bjiirn Ólafs, Guðmundur Ágústsson og Brynja Benediktsdóttir. •-tSLENDINGAR standa líklega engri þjóð veraldar að baki, að því er snertir samúð með þeim sem bágt eiga, og rausnárlega stoð við þá, sem verða fyrir óláni og harmi. Þeir sýna það dags daglega, þegar slys eða tjón mæða á samborgurum þeirra, og þeir sýna það einnig þegar alþjóð- arhjálpar er óskað, vegna styrjalda og slysa. Engin þjóð lagði fram jafn rausnarlegan skerf hlutfallslega til samskota í stríðslokin eins og þeir. Þegar stórtjón hljótast af hamför- um náttúrunnar er því veitt athygli og fólk bregður við td að hjálpa. Iín það veitir síður athygli hinni varan- legu neyð þjóðanna, sem bitnar eigi livað síst á börnunum, sem hrynja r.iður úr hungri og sjúkdómum. Um 600 milljón börn í veröldinni fá ekki nóg að borða. Tvö af hverjum þremur, sem til eru. Og þau þjást af sjúkdómum, sem bægt er að lækna, en eru ekki læknaðir vegna menn- ingar- og getuleysis þjóðanna, sem eiga þessi börn. Stofnun Sameinuðu þjóðanna, UNICEF — eða United Nations International Childrens Emergency Fund: Barnalijálparnefnd Samein- uðu þjóðanna, hefir það fagra en afar erfiða verkefni, að bjarga þessum börnum frá hungri og fári. íslenska ríkið greiðir framlag til þessarar slofnunar, en einstaklingar gætu 1 ið- sinnt henni líka, frekar en gert er, án þess að þá munaði nokkuð um. Nú kynni einhvcr að segja sem svo: Hvað munar um þó að ég gefi smá- upphæð. Það yrði ekki nema dropi i liafið. En lítum nú á livaða gagn getur orðið að þessum litla „dropa“. Penicillinsprauta, sem getur bjargað. barni með trachoma frá blindu, kost- ar 5 krónur. Er það „dropi í hafið“ að bjarga sjón barns með smágjöf, jafnvel þó að barnið eigi heima aust- ur á Indlandseyjum? Fyrir hvcrjar átta krónur getur UNICEF séð fjórum hungruðum börnum fyrir mjólkur- skanunti á dag í heila viku, eða bólu- efni til að vernda 14 börn gegn barna- veiki, eða lýsi til að verja 14 ung- börn gegn ensku sýkinni i heilan mánuð, eða bóluefni til að gera 10 börn ónæm fyrir berklaveiki, eða DDT til að verja 5 manns fyrir mýra- köldu i heilt ár! Þetta eru engir smá- munir. Þvert á móti má segja, að það sé ótrúlega mikið, sem fæst fyrir ekki meiri peninga. Það kostar nær 400 milljón krónur að fullnægja þeim beiðnum sem UNICEF hefir fengið um aðstoð frá 65 löndum. Stofnunin telur það ómiss- Guðmundsson hefir þýtt leikritið á íslensku. Lcikendur crti alhnargir og fara þeir vel með hlutverk sín, enda er mikið hlegið á áhorferidabekkjunum og allir skennnta sér hið besta. Helstu kvenhlutverkin eru lcikin af Hólmfriði Gunnarsdóttur og Brynju Benediktsdóttur, og sópar mjög að þeim á sviðinu. Aðalkarlahlutverkin eru í höndum Ólafs Mixa, Jóns Ragn- arssonar, Guðmundar Ágústssonar og Björns Ólafs og vel á þéim öllum lialdið. Mestan hlátur vekja þó senni- lega drabbarar og þjónar, sem koma fram í góðum gervum. * andi grundvöll fyrir starfseminni i framtiðinni, að koma upp leiðbein- ingastofnunum fyrir mæður og ung- börn í öllum þeim löndum, sem ekki hafa komið skipun á heilbrigðismál sin. Það koslar um 90 milljón krónur. Stofnunin þarf um 45 milljón krónur til þess að koma skipulagi á mjólkur- gjafir og stofna þurrmjólkurgerðir. Og mikið fé þarf lika til að berjast við sjúkdómana: mýraköldu, berkla- veiki, holdsveiki og traohoma, sem nú verða fjölda barna að bana eða gera þau að aumingjum ævilangt, vegna þess að engin læknishjálp er fyrir hendi. Fjöldi fólks les orðið UNICEF án þess að vita hvað það er eða þýðir. Hér hefir verið sagt örlitið frá verk- cl'num félagsins til ])ess að benda fólki á, að það getur unnið undra- mikið líknarverk með þvi að gefa litla gjöf. Forstjórinn var orðinn fokvondur. Hann hafði sent vikapiltinn í erindi úl í hæ og fannst hann vera óhæfilega Icngi. Þegar hann loksins kom aftur, öskraði forstjórinn: — Næsta skipti sem ég þarf að láta einhvern golþorsk gera eitthvað fyrir mig, skal ég svei mér gera það sjálfur. Brandur í Miðseli kom í bankann tii að fá 500 króna seðli skipt i tíu króna seðla. Hann fékk seðlana og taldi þá gaumgæfilega hvað cftir annað. Þegar hann byrjaði að telja í fjórða sinn spurði gjaldkerinn loks- ins: — Jæja, er það ekki rétt upphæð, sem þér fenguð? — Jú, það er rétt — en heldur ekki meira, svaraði Brandur. CAItLSEN Á NÝ. — Margir muna eun danska skipstjórann Carlsen frá því hann neitaði að yfirgefa skip sitt, „Flying Enterprise“ fyrir nokkrum árum og varð heimsfrægur fyrir. Nú hefir hann unnið nýtt afrek. Hann var staddur í New York er bruninn mikli og sprengingin varð i höfninni þar í desembev og tíu manns fórust en fjöldi særðist. Við það tækifæri gekk Carlsen best fram í björgunar- starfseminni og bjargaði lífi margra raanna.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.