Fálkinn - 09.10.1959, Side 3
FALKINN
3
Myndin sýnir upp-
skipun sements í
Reykjavíku^höfn.
Akranesferjan
liggur við kola-
krann, þar sem
verið er að ferma
bíla.
n''n
llillllllll
Sementsframleitelan fullnægir
eftirspurninni
UM þessar mundir er ár liðið frá
því að Sementsverksmiðjan á Akranesi
tók til starfa. Að því er Jón E. Vest-
dal, verkfræðingur, framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar, skýrir frá, er líklegt
að heildarsalan á yfirstandandi ári verði
80—90 þús. smálestir, en það fer að
sjálfsögðu nokkuð eftir tíðarfarinu í
haust, þ.e.a.s. hve mikið verður hægt
að vinna að byggingaframkvæmdum.
Um helmingur af framleiðslu Sem-
entsverksmiðjunar fer til Reykjavíkur
og nágrennis, en hitt til annarra staða
á landinu. Með öllu er hætt að flytja
inn erlent sement, þar sem verksmiðj-
an fullnægir þörfinni innanlands. Byrgð-
ir hjá verksmiðjunni eru nú um 10
þús. lestir.
Það sement, sem flutt er til Reykja-
víkur er lestað í ferju að kvöldi til, og
Xf 'j sviMifingaraðfcrö
Eftir amerískri fyrirmynd hafa
dönsk sjúkrahús tekið upp nýja að-
ferð til þess að deyfa smábörn undir
lœknisaðgerðir. Er dúsa, vœttri í
viskí stungið í munninn á barninu
og það látið diuga. Til þess hafa yfir
100 börn verið svæfð svona í Dan-
mörku, segir dr. Erik Wain Ander-
sena, sem hefur innleit þessa aðferð
í sjúkrahúsi í Aarhus.
er hún komin til Reykjavíkur að
morgni. Á Akranesi hefur verið komið
fyrir mjög fullkomnum tækjum til út-
skipunar. Eru það færibönd, sem skila
1900 pokum á klukkustund. Tekur því
skamman tíma að lesta ferjuna. í
Reykjavík leggst ferjan við kolakran-
ann, sem notaður er við uppskipunina.
Langmestur hluti sementsins er settur
beint á bíla, sem aka því á ákvörðunar-
stað í bænum, en hitt er flutt með kran-
anum í skemmu, sem er rétt hjá. Mun
láta nærri, að ekki muni kosta nema
30 kr. að flytja og skipa upp hverri
smálest, enda eru tæki þau sem notuð
eru hin fullkomnustu.
Sementsverksmiðjan getur nú fram-
leitt um 110 þús. smálestir árlega, og
verður þess ekki langt að bíða, að við
verðum að nota allt það magn hér
innanlands. Talið er, að sementsnotk-
unin tvöfaldist á hverjum tíu árum.
Er Sementsverksmiðjan byggð þannig,
að hægt er að auka afköst hennar um
helming með 30 prósent tilkostnaði frá
upphaflegum stofnkostnaði. Þarf aðeins
að reisa nýtt ofnhús og fá vélar í hús
þau, sem fyrir eru.
Þegar á þessu fyrsta ári hefur ber-
lega komið í ljós, hve mikill þjóðhags-
legur hagnaður hefur orðið við bygg-
ingu Sementsverksmiðjunnar. Hráefnin
sem hér eru til sementsframleiðslu eru
hin beztu og vinnslan hefur tekizt með
ágætum.
;!
8ÍB8 eykur starfsemi sína
SÍÐAN Samband íslenzkra berklasjúklinga var stofn-
að, hefur baráttan við berklaveikina borið svo góðan ár-
angur hér á landi, að sjúkdómurinn er á hröðu undan-
haldi og fyrirsjáalegt virðist, að berklaveikinni verði með
öllu útrýmt.
En þessi árangur er slður en svo til þess að draga úr
starfsemi SÍBS. Hafa samtökin ákveðið að færa út kví-
arnar og verða til gagns á öðrum sviðum. Sem liður í
þeirri viðleitni hefur nú verið sett upp vinnustofa fyrir
almenna öryrkja í húsnæði að Ármúla 16, sem nefnt er
„Múlalundur“. Er þar unnið að því að hjálpa öryrkjum,
sem standa höllum fæti í lífsbaráttunni, til þess að öðlast
aftur þrek og sjálfstraust, er gerir þeim kleift að hefja
vinnu aftur á almennum markaði. Gegnir starfsemin í
Múlalundi því svipuðu hlutverki og Reykjalundur.
SÍBS vinnur ekki einungis mikið mannúðarstarf með
þessari starfsemi heldur einnig þjóðhagslegt. Öryrkjum,
sem ekki gætu tekið þátt í samkeppninni á hinum al-
menna vinnumarkaði, er veitt skilyrði til þess að verða
að gagni. Starfsorka þeirra er nýtt, þeim sjálfum til hags
og blessunar ag þjóðinni allri til góðs.
Það er þjóðinni til sóma, hve vel hún hefur stutt við
bakið á SÍBS, og það hefur hún gert þar sem hún hefur
fundið, að að samtökunum stóðu menn, sem hægt var
að trevsta.
Frá vinnustofu að Reykjalundi.